Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fundar um lögbrot dómsmálaráðherra

„Skylda nefndarinnar að fjalla um hennar stöðu,“ segir Helga Vala Helga­dóttir, formaður þing­nefndarinnar. „Ekki okkar að ákveða ráðherraval annarra flokka,“ segir þing­flokks­formaður Vinstri grænna.

Mál Sigríðar rætt í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd
Mál Sigríðar rætt í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Á fund­inn koma umboðs­maður Alþingis, yfir­lög­fræð­ingur Alþingis og jafn­framt sér­fræð­ingar í stjórn­skip­unar- og stjórn­sýslu­rétti. Mynd: ©Bragi Þór Jósefsson / Alþingi
Helga Vala Helga­dóttirfor­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar

Stjórn­skipunar- og eftirlits­nefnd fundar um stöðu Sigríðar Á. Andersen dómsmála­ráðherra og lögbrot hennar við skipun dómara við Landsrétt á fimmtudaginn. 

„Viðfangs­efni fundarins er máls­meðferð Sigríðar Andersen við skipun dómara og staða hennar sem ráðherra,“ segir Helga Vala Helga­dóttir, formaður stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar, í samtali við Stundina.

„Hún gegnir auðvitað ráðherra­embætti meðan hún er varin af meirihluta þings, en það er skylda nefndarinnar að fjalla um hennar stöðu, og jafnframt stöðu þingsins og aðkomu þess að skipun dómara almennt. Næstu skref miðast svo kannski dálítið við hvað kemur fram á þessum fundi.“

Á fundinn koma umboðs­maður Alþingis, yfir­lögfræðingur Alþingis og jafnframt sérfræðingar í stjórn­skipunar- og stjórnsýslu­rétti. 

Píratar hafa talað fyrir því að Sigríður Andersen segi af sér ráðherra­embætti og gefið til kynna að ellegar verði lögð fram vantrausts­tillaga gegn henni.

Jón Þór Ólafsson, fulltrúi flokksins í stjórn­skipunar- og eftirlits­nefnd, telur mikilvægt að allir þingmenn geti tekið upplýsta ákvörðun um hvort þeir treysti ráðherra til áfram­haldandi starfa.

Jón Þór Ólafssonþing­maður Pírata

„Til að svo megi vera í þessu máli, þá þurfa upplýsingar um ákvarðanir og verklag ráðherra að liggja fyrir. Þess vegna hefur stjórn­skipunar- og eftirlits­nefnd kallað eftir tiltækum upplýsingum frá ráðuneytinu,“ segir hann.

Jón bendir á að þegar lögð er fram vantrausts­tillaga hafi þingið í raun aðeins þrjá daga þar til málið er tekið fyrir. „Þess vegna þarf undir­búnings­vinnan að fara fram með meiri fyrirvara.“

Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra hefur gefið út að hún líti ekki á Lands­réttarmálið sem afsagnarsök fyrir Sigríði Andersen. „Hún situr bara áfram í ríkis­stjórn,“ sagði Katrín í sjónvarps­fréttum RÚV þann 19. desember og tók Kolbeinn Óttarsson Proppé, þingmaður Vinstri grænna, í sama streng. „Hún er nátt­úrlega ráðherra í þessari ríkis­stjórn áfram,“ sagði hann. Eftir því sem Stundin kemst næst hefur ekki komið til sérstaks ágrein­ings um stöðu Sigríðar Andersen meðal þingmanna og forystu­fólks Vinstri grænna. 

Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttirfor­maður þing­flokks Vinstri grænna

Stundin spurði Bjarkeyju Olsen Gunnars­dóttur, formann þing­flokksins, hvort hún væri samstíga Katrínu Jakobs­dóttur hvað varðar stöðu Sigríðar Andersen. „Já, ég er það og það hefur ekkert breyst í sjálfu sér. Við vissum þegar við gengum inn í þetta samstarf að þetta gæti orðið niður­staðan,“ sagði hún og bætti við: „Það er auðvitað ekki okkar að ákveða ráðherraval annarra flokka.“

Blaða­maður benti þá á að Sigríður gæti ekki setið á ráðherra­stóli nema með stuðningi meirihluta þingsins, meðal annars þingmanna Vinstri grænna. „Vissulega, það er rétt,“ sagði Bjarkey.

Aðspurð hvort eining sé um málið innan þing­flokksins svarar hún: „Þetta hefur ekki verið tekið sérstak­lega fyrir innan þing­flokksins, en þar eru eflaust skiptar skoðanir um málið. Okkur fannst viðeigandi að það yrði tekið fyrir á vettvangi stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar en að öðru leyti hefur þetta ekki verið rætt neitt sérstak­lega.“ 

Þessi grein er brot úr ítarlegri umfjöllun um ráðherra­feril og embættis­færslur Sigríðar Á. Andersen dómsmála­ráðherra sem birtist í nýjasta tölublaði Stundarinnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár