Fjáraukalög ársins bæta samtals 61,5 milljörðum krónum við gjöld ríkissjóðs

Ný framlög til heilbrigðis­mála og vegna atvinnu­leysis­bóta vega þyngst í seinni fjárauka­laga­frumvarpi ársins 2021. Afkomu­horfur ársins 2021 eru um sex milljörðum krónum lakari en gert var ráð fyrir í frumvarpi til fjárlaga 2022 sem lagt var fram nýverið.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Samkvæmt fyrir­liggjandi öðru fjárauka­laga­frumvarpi ársins 2021 er stefnt að því að bæta við gjöldum upp á 46,5 milljarða króna við rekstur ríkis­sjóðs frá því sem áður hafði verið ákveðið. Þetta er annað fjárauka­laga­frumvarpið sem lagt er fram í ár, en það fyrra sem var lagt fram í maí var til þess fallið að fjármagna fjórða efnahags­pakka ríkis­stjórnarinnar vegna kórónu­veiru­faraldursins. Sá pakki var metinn á um 20 milljarða króna en hækka þurfti útgjaldaramma ríkis­sjóðs vegna hans um 14,9 milljarða króna.

Samtals verður því bætt við 61,5 milljarði króna með fjár­aukalögum á yfir­standandi ári að óbreyttu. Það þýðir að heildar­útgjöld í ár eru nú, þegar nokkrar vikur eru eftir af árinu, áætluð á 1.254 milljarða króna.

Þetta kemur fram í frumvarpi til fjár­aukalaga sem var lagt fram seint á mánudag.

Rúmur helmingur vegna kórónuveirufaraldursins

Nýju útgjöldin sem ráðast á í með fram­lagningu seinna fjárauka­laga­frumvarps ársins eru annars vegar 23,6 milljarðar króna sem rakin eru til kórónu­veiru­faraldursins og hins vegar 22,9 milljarðar króna vegna annarra þátta.

Þeir peningar sem vantar upp á til að mæta útgjöldum vegna faraldursins sem ekki var búið að gera ráð fyrir eru meðal annars 6,2 milljarðar króna vegna aukins rekstrar­kostnaðar Land­spítalans. Alls 6,1 milljarður króna vegna framlags til atvinnu­leysis­bóta, sem að stórum hluta má rekja til atvinnu­átaksins Hefjum störf sem hófst í mars síðastliðins en 7.420 ráðningar­samningar hafa verið gerðir í kjölfar þess. Alls 2,9 milljarðar króna falla til í viðbótar­kostnað vegna sjúkra­hótela.

Þá kostaði tæplega 2,2 milljarða króna til viðbótar við áætlun að kaupa bóluefni og önnur aðföng vegna COVID-19 og 2,1 milljarð króna vegna framkvæmda við bólu­setningu og skimana á landa­mærum. Aðrar heilbrigðis­stofnanir en Land­spítalinn fá svo 1,4 milljarða króna vegna ófyrirséðs kostnaðar vegna COVID-19 og auk verkefni svo sem hjá Landlækni og lögreglu­embættum kosta tæpan milljarð króna í nýtt fjármagn. Nokkrir aðrir liðir í þessum hluta kosta svo á bilinu 250 til 628 milljónir króna hver.

Vaxtagjöld rífa hressilega í

Þau útgjöld sem eru ekki talin beint rakin til COVID-19 eru meðal annars ný vaxta­gjöld ríkis­sjóðs, aðallega vegna hækkunar á verðbótum sökum hárrar verðbólgu og dráttar­vaxta vegna uppgjörs við ISAVIA. Samtals kostar þessi liður ríkissjóð 8,6 milljarðar króna umfram það sem heimilað var í fjárlögum ársins 2021. Endurmat á útgjalda­horfum vegna lyfja, lækninga­vara og sjúkrahús­þjónustu erlendis er verðlagt á 5,5 milljarða króna og útgjöld til að kaupa fasteignir, annars vegar Hótel Sögu og hins vegar jörðina Mið-Fossa, eru tæplega fjórir milljarðar króna.

Einnig er lagt til að auka framlög til endur­greiðslu vegna kvik­myndagerðar á Íslandi um 1,5 milljarða króna vegna aukins umfangs þeirra.

Desember­uppbót atvinnu­leitenda, sem er óskert 92.229 krónur fyrir hvern barn­lausan auk þess sem sérstök uppbót er greidd fyrir hvert barn á framfæri viðkomandi, kostar ríkissjóð einn milljarð króna. Þá hafa útgjöld Fæðingar­orlofssjóðs reynst meiri en áætlað var vegna þess að fleiri börn fæddust og feður voru duglegri við að taka orlof. Viðbótar­kostnaður vegna þess er 940 milljónir króna. Aukinn viðbúnaður vegna farsótta kallar svo á 420 milljón króna viðbótar­framlag.

Þá hafa útgjöld Fæðingar­orlofssjóðs reynst meiri en áætlað var vegna þess að fleiri börn fæddust og feður voru duglegri við að taka orlof. Viðbótar­kostnaður vegna þess er 940 milljónir króna. Aukinn viðbúnaður vegna farsótta kallar svo á 420 milljón króna viðbótar­framlag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár