Mynd: Bára Huld Beck

Fjárlagafrumvarpið á mannamáli

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, kynnti fjár­laga­frum­varp vegna árs­ins 2022 í síð­ustu viku. Það segir til um hvernig þjóð­ar­heim­ilið er rekið.

Hver er stóra mynd­in?

Heild­ar­tekjur rík­is­sjóðs verða um 955 millj­arðar króna á næsta ári. Það er um 105 millj­örðum krónum meira en áætl­aðar tekjur hans eiga að vera á árinu 2021. Tekj­urnar í ár hafa verið end­ur­metnar frá því sem var sett fram í fjár­mála­á­ætlun og hækkað um 66 millj­arða króna frá því sem reiknað var með þegar hún var lögð fram í vor.

Stærstu ástæður þess að þetta á sér stað er að dregið verður veru­lega úr stuðn­ingi vegna efna­hags­legra áhrifa COVID-19, sem veldur afkomu­bata hjá rík­is­sjóði upp á 68 millj­arða króna, og bættar efna­hags­horfur upp á 52 millj­arða króna. Það þýðir afkomu­bata um 120 millj­arða króna milli ára.

Áætl­aður halli á árinu 2022 er 169 millj­arðar króna en í ár er hann áætl­aður 288 millj­arðar króna. Í fyrra var hann 144 millj­arðar króna. Sam­an­lagður halli á þessum þremur árum er því áætl­aður 601 millj­arður króna. Þótt það sé afar há tala þá er hún samt sem áður lægri en grunn­s­viðs­myndir gerðu ráð fyrir í vor.

Útgjöld munu aukast nokkuð milli ára og verða 1.124 millj­arðar króna.

Hvernig verður þetta fjármagnað?

Hallinn verður ekki fjár­magn­aður með stór­felldur nið­ur­skurði, þótt hóf­leg hag­ræð­ing­ar­krafa sé gerð í fjár­lögum, eða nýjum skatta­hækk­un­um. Þess í stað verður hall­inn fjár­magn­aður með lán­um.

Nei­kvæðir raun­vextir og lækk­andi ávöxt­un­ar­krafa á rík­is­skulda­bréf hafa gert lán­tökur eft­ir­sókn­ar­verða fyrir rík­is­sjóð, og pen­ingar hafa verið nán­ast eins ódýrir og þeir verða. Rík­is­sjóður gaf til að mynda út út vaxta­laus skulda­bréf í evrum að virði 110 millj­arða króna á núvirði, sem jafn­gildir um fjórum pró­sentum af lands­fram­leiðslu, i byrjun árs.

Í fjár­laga­frum­varp­inu er heim­ild til að taka lán í erlendri mynt upp á 230 millj­arða króna til að brúa halla­rekst­ur­inn.

Hverjir fá mest?

Fram­lög til heil­brigð­is­­mála verða aukin um 16,3 millj­­arða króna á árinu 2021 og verða um 300 millj­arðar króna á föstu verð­lagi. Af auknu fram­lög­unum fer mest í fram­kvæmdir við nýjan Land­spít­ala, en alls er gert ráð fyrir 14 millj­örðum króna til bygg­ingar hans á næsta ári.

Það þýðir að rúmur fjórð­ungur af öllum útgjöldum rík­is­sjóðs fari í rekstur heil­brigð­is­mála (27 pró­sent). Svipað fer í félags-, hús­næðis- og trygg­inga­mál og um 124 millj­arðar króna fara í mennta- og menn­ing­ar­mál.

Staða uppbyggingar á nýjum meðferðarkjarna Landspítalans 17. nóvember síðastliðinn.
Staða upp­bygg­ingar á nýjum með­ferð­ar­kjarna Landspítal­ans 17. nóvem­ber síðast­lið­inn.

Samgöngu- og fjar­skipta­mál kosta um 50 millj­arða króna og mála­flokk­ur­inn nýsköpun, rann­sóknir og þekk­ing um 30 millj­arða króna.

Úr hvaða kostnaði verður dregið?

Verulega verður dregið úr stuðn­ingi vegna efn­hags­legra áhrifa COVID-19. Umfang stuðn­ings­að­gerð­anna frá byrjun árs 2020 og út næsta ár er metið á 260 millj­arða króna. Á næsta ári er hins vegar ein­ungis reiknað með 50 millj­örðum króna í þau verk­efni, sem er 68 millj­örðum krónum minna en í ár. Bara útgjöld vegna greiðslu atvinnu­leys­is­bóta eiga að drag­ast saman um 13 millj­arða.

Við­spyrnu­styrkir vegna tekju­falls verða nið­ur­felldir, leng­ing tíma­bils tekju­tengdra atvinnu­leys­bóta aflögð, hætt verður að greiða við­bót­ar­á­laga á atvinnu­leys­is­bætur, átak í náms- og starfsúr­ræðum rennur sitt skeið, greiðslur til íþróta­fé­laga vegna launa- og verk­taka­kostn­aðar verða ekki end­ur­teknar og hluta­bóta­leiðin svo­kall­aða, þar sem ríkið greiðir hluta launa fólks í starfi, mun heyra sög­unni til.

Hver borgar fyrir tekjur rík­is­sjóðs?

Ein­stak­lingar og fyr­ir­tæki

Skatt­tekjur aukast á ný á næsta ári eftir að hafa hríð­fallið í ár. Ein­stak­lingar munu greiða 218 millj­arða króna í tekju­skatt og skatt­greiðslu sem er 25 pró­sent meira en í ár. Til við­bótar borgum við auð­vitað virð­is­auka­skatt af flestu. Á næsta ári er búist við að virð­is­auka­skatts­tekj­urnar verði 289,7 millj­arðar króna (34 pró­sent aukn­ing) og að við fáum að greiða 7,1 millj­arða króna í við­bót í stimp­il­gjöld.

Tekju­skattur sem leggst á lög­­að­ila, fyr­ir­tæki og félög lands­ins, er nú áætl­aður 77,9 millj­arðar króna og eykst umtals­vert milli ára.

Þá munu tekjur rík­is­sjóðs vegna trygg­inga­gjalds aukast að nýju, þrátt fyrir að gjaldið hafi verið lækkað enn á ný um 0,25 pró­sentu­stig síð­ustu ára­mót, og verða 107 millj­arðar króna á næsta ári.

Sér­stakt gjald á banka

Bankar lands­ins borga líka sinn skerf til rík­is­ins til við­bótar við hefð­bundnar skatt­greiðsl­ur, þótt það fram­lag fari lækk­andi. Þar skiptir mestu að á banka­skatt­ur­inn var lækk­aður niður í 0,145 pró­sent skulda í fyrra. Fyrir vikið lækk­aði álagður banka­skattur sem rík­is­sjóður lagði á bank­ana um 6,1 millj­arð króna vegna árs­ins 2020 og var 4,8 millj­arðar króna. Það er lækkun upp á 56,2 pró­sent. Áætlað er að hann verði 4,8 millj­arðar króna í ár og tæp­lega 5,3 millj­arðar króna á næsta ári.

Veiði­gjöld

Svo eru það auð­vitað útgerð­ar­fyr­ir­tæk­in. Þau borga rík­is­sjóði sér­stök veiði­gjöld umfram aðra skatta fyrir afnot af fisk­veið­i­­auð­lind­inni.

Veiðigjöldin dragast saman um 1,4 milljarða króna milli ára.
Veiði­gjöldin drag­ast saman um 1,4 millj­arða króna milli ára.

Ný lög um veið­i­­­gjald tóku gildi í byrjun árs 2019 þar sem meðal ann­­ars var settur nýr reikni­stofn sem bygg­ist á afkomu við veiðar hvers nytja­­stofns. Sam­kvæmt þeim er veið­i­­gjaldið nú ákveðið fyrir alm­an­aksár í stað fisk­veið­i­­ár­s. Útgerð­irnar greiddu 4,8 millj­arða króna í veiði­gjöld í fyrra, 7,7 millj­arða króna í ár og áætlað er að veiði­gjaldið skili 6,3 millj­arða króna í rík­is­sjóð á árinu 2022. Þar af munu um 700 millj­ónir króna falla til vegna gjalds á fisk­eldi sem var inn­leitt 2020.

Veiði­gjöldin voru 11,3 millj­arðar króna árið 2018.

Þeir sem eiga mikið af pen­ingum

Rúm­lega tvö þús­und fram­telj­endur afla að jafn­aði tæp­lega helm­ings allra fjár­magnstekna á Íslandi. Um er að ræða, að minnsta kosti að hluta, rík­asta eitt pró­sent lands­ins sem á nægi­lega mikið af við­bót­ar­pen­ingum sem það getur látið vinna fyrir sig til að skapa tekj­ur.

Rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur hækk­aði fjár­magnstekju­skatt í byrjun árs 2018, úr 20 í 22 pró­sent. For­sæt­is­ráð­herra sagði við það til­efni að þessi hækkun væri liður í því að gera skatt­kerfið rétt­lát­ara.

Þessi hækkun skilar þó ekki mik­illi tekju­aukn­ingu fyrir rík­is­sjóð. Í upp­haf­legum fjár­lögum árs­ins 2020 voru tekjur af fjár­magnstekju­skatti áætl­aðar 32,5 millj­arðar króna. Eftir kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á hríð­lækk­aði þessi tekju­stofn niður í 25,7 millj­örðum króna í ár.

Gert er ráð fyrir að hann vaxi aftur upp í 31,5 millj­arða króna á næsta ári.

Dauðinn

Gert er ráð fyrir að erfða­fjár­skattur skili rík­is­sjóði 7,5 millj­örðum króna í tekjur árið 2022. Það er aðeins minna en greitt var í skatt­inn vegna arfs sem þeir fengu í fyrra, en Morg­un­blaðið greindi frá því í morgun að erf­ingjar hafi þá alls greitt rúm­lega 8,8 millj­arða króna í erfða­fjár­skatt. Það er rúm­lega tvö­falt hærri upp­hæð en greidd var í slíka skatta árið áður.

Hækkandi húsnæðisverð hefur stóraukið tekjuöflun ríkisins vegna erfðafjárskatts.
Hækkandi hús­næð­is­verð hefur stór­aukið tekju­öflun rík­is­ins vegna erfða­fjár­skatts.

Í fjár­laga­frum­varp­inu segir að hækkun hús­næð­is­verðs sé einn orsaka­þáttur í hækk­andi erfða­fjár­skatts.

Bif­reið­ar­eig­end­ur, drykkju­fólk og þeir sem enn reykja

Alls eru áætl­aðar tekjur rík­is­sjóðs vegna elds­neyt­is­gjalda 39,8 millj­arðar króna á næsta ári.

Þar munar mestu um olíu­gjaldið sem á að skila 11,8 millj­örðum króna, og hækkar um 2,5 pró­sent í byrjun næsta árs.

Reyk­ing­ar­fólk og áfeng­is­neyt­endur fá áfram sem áður að borga sinn skerf til sam­neysl­unn­ar. Álögur á það fólk hækka enn og aft­ur. Bæði áfeng­is- og tóbaks­gjöld munu hækka um 2,5 pró­sent um kom­andi ára­mót.

Allir sem flytja inn eða fram­­leiða áfengi hér á landi til sölu eða vinnslu ber að greiða áfeng­is­­gjald. Einnig þeir sem flytja áfengi með sér eða fá það sent erlendis frá, til eigin nota. Áfeng­is­­gjald er greitt af neyslu­hæfu áfengi sem í er meira en 2.25 pró­­sent af vín­­anda að rúm­­máli. Þessu gjaldi er velt út í verð­lag og því hækkar það útsölu­verð til neyt­enda. Tekjur rík­­is­­sjóðs vegna áfeng­is­gjalds voru 18,6 millj­­arðar króna árið 2018. Þær juk­ust gríð­ar­lega í fyrra þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á, aðal­lega vegna þess að lands­menn fluttu nán­ast alla áfeng­is­neyslu heim til Íslands, en áður hafði hluti hennar farið fram erlendis. Tekjur vegna áfeng­is­gjalds­ins á næsta ári eru áætl­aðar um 23,8 millj­arðar króna sem er ögn hærra en áætlað er fyrir 2021. Tekjur rík­is­sjóðs af áfeng­is­gjaldi hafa því hækkað 28 pró­sent frá 2018, eða um 5,2 millj­arða króna.

Hratt hefur dregið úr reykingum landsmanna. Sömu sögu er að segja um notkun á íslensku neftóbaki í vör. Þess vegna lækka tekjur ríkissjóðs vegna áfengis- og tóbaksgjalda þótt gjöldin hækki.
Hratt hefur dregið úr reyk­ingum lands­manna. Sömu sögu er að segja um notkun á íslensku nef­tó­baki í vör. Þess vegna lækka tekjur rík­is­sjóðs vegna áfengis- og tóbaks­gjalda þótt gjöldin hækki.

Tóbaks­gjaldið átti að skila rúm­lega sex millj­örðum króna í rík­is­kass­ann í ár en skil­aði á end­anum um 200 millj­ónum krónum minna. Þar skiptir hrun í notkun íslensks nef­tó­baks lyk­il­máli. Á næsta ári munu tekj­urnar áfram drag­ast saman, nú um 100 millj­ónir króna á milli ára þrátt fyrir 2,5 pró­sent hækkun á gjald­inu.

Óreglu­legu tekj­urnar

Ríkið hefur alls­konar aðrar tekjur en skatta. Þar ber auð­vitað hæst arð­greiðslur frá fyr­ir­tækjum sem ríkið á, sér­stak­lega bönk­unum og Lands­virkj­un. Slíkar arð­greiðslur hríð­féllu vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins, og fóru niður í 18,7 millj­arða króna í ár, en taka aftur við sér á næsta ári. Þá eru arð­greiðslur rík­is­ins áætl­aðar 231,8 millj­arðar króna en hafa verður í huga að ríkið seldi 35 pró­sent hlut í Íslands­banka á rúma 55 millj­arða króna í sumar og fær ekki arð af þeim eign­ar­hluta lengur.

Ríkið mun líka inn­heimta 10,5 millj­arða króna í vaxta­tekjur og 35,1 millj­arða króna vegna sölu á vöru og þjón­ustu. Inni í þeirri sölu eru til að mynda inn­rit­un­ar­gjöld í háskóla og fram­halds­skóla, sala á vega­bréfum og öku­skír­teinum og greidd gjöld vegna þing­lýs­inga, svo dæmi séu tek­in. Þá fær ríkið um 4,4 millj­arða króna vegna sekta og skaða­bóta.

Rík­is­stjórnin ætlar að selja eft­ir­stand­andi 65 pró­sent eign­ar­hlut sinn í Íslands­banka að fullu á næstu tveimur árum. Til stendur að selja um helm­ing úti­stand­andi hlutar rík­is­ins sum­arið 2022 og ríkið reiknar með að fá um 75 millj­arða króna fyrir hann.

Hvað er nýtt?

Á meðal þess sem sem má telja til nýj­unga í fjár­laga­frum­varp­inu er að setja á 540 millj­ónir króna í að tvö­falda frí­tekju­mark atvinnu­tekna hjá elli­líf­eyr­is­þegum úr 100 þús­und í 200 þús­und krónur.

Þá hækka skerð­ing­ar­mörk barna­bóta hækka þótt heild­ar­fram­lagið til mála­flokks­ins lækki milli ára.

Festa á tvö­földum á end­ur­greiðslu vegna rann­sókn­ar- og þró­un­ar­kostn­aðar í sessi og búist er við að upp­hæðin sem renni úr rík­is­sjóði vegna þessa verði sama og í ár, eða um 10,4 millj­arðar króna. Það er rúm­lega tvö­föld sú upp­hæð sem greidd var út árið 2020 vegna þessa.

Þá má nefna að fram­lög til lofts­lags­mála verða aukin um einn millj­arð króna og 800 millj­óna króna við­bót­ar­hækkun á bætur örorku- og end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyr­is­þega til við­bótar við almennar pró­sentu­hækk­an­ir.

Áframhaldandi vandræði ferðaþjónustunnar vegna kórónuveirufaraldursins leiða til þess að gistináttagjald verður ekki rukkað inn fyrr en á árinu 2024.
Áfram­hald­andi vand­ræði ferða­þjón­ust­unnar vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins leiða til þess að gistin­átta­gjald verður ekki rukkað inn fyrr en á árinu 2024.

Bráða­birgða­á­kvæði um að fella niður gistin­átta­skatt verður fram­lengt út árið 2023 til að mæta áfram­hald­andi sam­drætti í ferða­þjón­ustu.

Áætlað er að tekju­skattur lækki um 2,3 millj­arða á næsta ári vegna upp­töku fram­leiðni­við­miðs við upp­færslu skatt­leysis- og þrepa­marka. Þannig er gert ráð fyrir að skatt­leysis- og þrepa­mörkin miði við þróun vísi­tölu neyslu­verðs, að við­bættum eitt pró­senta fram­leiðni­vexti á ári. Þetta er síð­asta skrefið í vaxta­lækk­unar­á­formum rík­is­stjórn­ar­innar sem hafa verið inn­leidd í tíð rík­is­stjórna Katrínar Jak­obs­dóttur og munu lækka skatt­greiðslur um alls 23 millj­arða króna árlega.

Hvernig stendur rekstur rík­is­sjóðs?

Hann er betri en á horfð­ist þótt hall­inn sé mik­ill, og verði yfir 600 millj­arðar króna á þriggja ára tíma­bili (2020 til 2022).

Til sam­an­burðar má nefna að hall­inn á rekstri rík­is­sjóðs árið 2008, þegar banka­hrunið varð, nam 194 millj­örðum króna. Mesti tekju­af­gangur sög­unnar varð árið 2016, þegar að tekjur voru 302 millj­örðum króna meiri en útgjöld í kjöl­far þess að slitabú fall­inna fjár­mála­fyr­ir­tækja greiddu stöð­ug­leika­fram­lög í rík­is­sjóð.

Sú kreppa sem við erum að takast á við vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins er því sögu­leg og dýpri en nútíma íslenskt sam­fé­lag hefur tekið á við áður, þrátt fyrir að bjart­ari sviðs­myndir hafi raun­gerst.

Góðu frétt­irnar eru þær að hröð nið­ur­greiðsla skulda á síð­ustu árum, sér­stak­lega vegna greiðslna frá slita­búum föllnu bank­anna vegna stöð­ug­­leika­­samn­ing­anna sem und­ir­­rit­aðir voru árið 2015, gera ríkið vel í stakk búið til takast á við þessa stöðu. Þegar skuld­­irnar voru sem mest­­ar, árið 2011, voru þær 86 pró­­sent af lands­fram­­leiðslu en voru 28 pró­sent í lok árs 2019. Til við­bótar við almenna skulda­nið­ur­greiðslu hefur rík­is­sjóður á und­an­förnum árum greitt háar fjár­hæðir inn á ófjár­magn­aðar líf­eyr­is­skuld­bind­ing­ar.

Nýjar horfur fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins búast við að skulda­þróun hins opin­bera verði mun hag­stæð­ari en gild­andi fjár­mála­á­ætl­unin gerði ráð fyr­ir, til að mynda er nú talið að skuldir muni nema um 34 pró­sentum af lands­fram­leiðslu á næsta ári, í stað 42 pró­senta.

Það þýðir að „afkomu­bæt­andi ráð­staf­anir“, sem fela annað hvort í sér skatta­hækkun eða nið­ur­skurð í útgjöld­um, muni nema 34 millj­örðum á ári, en geti numið allt að 50 millj­örðum króna á ári ef efna­hags­horfur versna. Það er helm­ingi minna en áður var reiknað með.

Ástæðan er þrí­þætt: bætt afkoma rík­is­sjóðs, áætl­anir um að selja Íslands­banka og minnka nið­ur­greiðslur til raf­bíla­eig­end­ur, leiða til þess að umfang fyr­ir­hug­aðra aðhalds­að­gerða verði innan við helm­ingur af því sem fjár­mála­á­ætl­unin gerði ráð fyr­ir. Nýút­gefin fjár­mála­stefna sýni ekki nákvæma sund­ur­liðun á því hvernig þessum ráð­stöf­unum yrði hátt­að, en fram­reikn­ingur ráðu­neyt­is­ins á afkomu hins opin­bera sýnir að mun minna lifi eftir af þörf­inni fyrir slíkum aðgerð­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár