Boða komu nettengdra snjallúra sem geta móttekið símtöl

Fjar­skipta­fyr­ir­tækið Nova hefur unnið með Apple að því í meira en ár að bjóða upp á þjón­ustu fyrir nettengd Apple snjallúr.

Nova opnar innan skamms þjón­ustu fyrir nettengd Apple snjallúr fyrst íslenskra fjar­skipta­fyr­ir­tækja, að því er fram kemur í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu. „Þjón­ustan er í boði í gegnum fjar­skipta­kerfi Nova en stendur öllum eig­endum eSIM nettengdra Apple úra til boða, óháð því hvaðan þau eru keypt,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Þá segir enn fremur að með því að fá sér netteng­ingu fyrir snjallúr sem Nova kallar „Úrlausn“ sé hægt að skilja sím­ann eftir heima en hringja með úrinu og streyma tón­list án stuðn­ings frá snjall­síma.

Úrlausn-þjón­ustan verður í boði innan skamms en hægt er að skrá sig á lista hjá Nova á nova.is og fá til­kynn­ingu um leið og Apple opnar fyrir þjón­ust­una. Samtímis hefst sala á eSIM nettengdum Apple úrum í fyrsta skipti hér á landi.

Margrét Tryggva­dóttir, for­stjóri Nova, segir það vera „virki­lega gaman að vera fyrst á Íslandi til að bjóða eSIM netteng­ingu í snjallúr á Íslandi eða Úrlausn eins og við kjósum að kalla það. Það er í takti við okkar stefnu að ein­falda fólki lífið í leik og starfi. Við höfum lagt áherlu á að snjall­væða til­ver­una og gera hana örlítið skemmti­legri í leið­inni. Apple Watch úrið í sjöttu útgáfu (Series 6) er ein mest spenn­andi tækninýj­ungin í dag, sér­stak­lega á sviði fyr­ir­byggj­andi heilsu­úr­ræða fyrir almenn­ing.“

Magnús Árnason, fram­kvæmda­stjóri staf­rænnar þró­unar hjá Nova, segir að þau hafi verið að vinna að „þessu gríð­ar­lega stóra verk­efni“ með Apple í meira en ár.

„Apple er stærsti fram­leið­andi á úrum í heim­inum og eru en á ný að umbylta iðn­aði og venjum mark­að­ar­ins. Að vera með nettengt snjallúr mun breyta notkun okkar á snjall­tækjum ekki ósvipað því hvernig til­koma Apple Pay breytti hegðun okkar með greiðslu­kort. Þessi vara stækkar okkar not­enda­hóp þar sem tengdum tækjum er að fjölga veru­lega. Fjölgun nettengdra tækja er fram­tíðin í sífellt snjall­ari ver­öld,“ segir Magnús.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár