Stjórn Skeljungs segir enga ákvörðun hafa verið tekna um að breyta því í fjárfestingafélag

Á forsíðu Frétta­blaðsins í dag var því haldið fram að ráðandi hluthafar í Skeljungi ynnu að því að breyta félaginu í fjár­festinga­félag. Stjórn félagsins áréttar í tilkynningu að engin ákvörðun hafi verið tekin um þetta.

Jón Ásgeir Jóhannesson er stjórnarformaður Skeljungs.
Jón Ásgeir Jóhann­es­son er stjórn­ar­for­maður Skelj­ungs. Mynd: Skjáskot/Kveikur

Stjórn Skeljungs hefur sent frá sér tilkynningu til Kaup­hallar Íslands þar sem hún áréttar að engin ákvörðun hafi verið tekin um að boða til hluthafa­fundar í félaginu með það fyrir augum að breyta því í fjár­festinga­félag.

Tilefnið er að á forsíðu Frétta­blaðsinsí dag birtist frétt um að ráðandi hluthafar í Skeljungi, undir forystu stjórnar­formannsins Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, séu að skoða þann möguleika að gera breytingar á samþykktum félagsins þannig að tilgangur þess verði fjárfestingastarfemi.

Í fréttinni sagði að Jón Ásgeir, sem fer fyrir Streng, stærsta hluthafa Skeljungs með rúmlega 50 prósent eignar­hlut, hafi fundað með lífeyris­sjóðum sem eigi stóran hlut í félaginu í síðustu viku og kynnt þessar hugmyndir fyrir þeim. Í áformunum fólst einnig að Skeljungur yrði áfram skráður á markað eftir breytinguna, og yrði þar með fyrsta fjár­festinga­félagið á markaði frá því fyrir hrun. Þeir sem standa að Streng voru á meðal þeirra sem stóðu á þeim tíma á bakvið hið umsvifa­mikla fjár­festinga­félag FL Group, sem byggði á grunni Icelandair og átti meðal annars stóran hluta í Glitni banka.

Til að breyta samþykktum þarf að boða hluthafa­fund og fá samþykkt eigenda að minnsta kosti 66,7 prósent af útgefnu hlutafé.

Hlutabréf í Skeljungi hafa hækkað um 4,38 prósent í Kaup­höllinni í dag.

Ætluðu að fjármagna skuldsetta yfirtöku

Hópur fjárfesta, undir forystu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Ingibjargar Pálma­dóttur og undir merkjum Strengs, reyndi að taka yfir Skeljung í fyrra. Hópurinn gerði yfirtöku­tilboð sem í fólst að hann var tilbúinn að greiða um tíu milljarða króna fyrir hlutafé annarra í félaginu. Hópurinn ætlaði að greiða eitthvað eigin fé en megin­þorri upphæðarinnar myndi koma að láni frá tveimur kerfis­lega mikil­vægum bönkum, Íslands­banka og Arion banka.

Ef yfirtakan gengi eftir ætlaði hópurinn að afskrá Skeljung af markaði, selja burt fjölda eigna og nota ágóðann til að endur­greiða bönkunum tveimur. Það sem eftir myndi standa gæti hann svo nýtt í frekari fjár­festinga­verkefni í fram­tíðinni.

Strengur tryggði sér meirihluta

Á meðal þeirra eigna sem hópurinn hafði hug á að selja ef yfirtöku­tilboðinu yrði tekið var P/F Magn, sem rekur ellefu smásölu- og bensín­stöðvar og tvær birgða­stöðvar í Færeyjum auk þess sem fyrir­tækið dreifir eldsneyti til fyrir­tækja, verktaka og sjávar­útvegs.

Yfirtöku­tilboðinu var hafnað af þorra annarra hluthafa, sem eru að uppistöðu íslenskir lífeyris­sjóðir.

Það skipti þó ekki miklu máli. Næstu daga eftir að yfirtöku­tilboðinu var hafnað með afgerandi hætti þá bætti Strengur við eignar­hlut sinn í Skeljungi með kaupum á markaði og á nú rétt yfir helming hlutafjár.

Skeljungur vinnur nú að því að selja P/F Magn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár