Launamunur kynjanna dregst saman

Konur voru að jafnaði með 6,6 prósent lægri laun en karlar árið 2008 en leið­réttur munur minnkaði í 4,5 prósent árið 2016. Þetta kemur fram í rannsókn Hagstofunnar í samvinnu við aðgerðarhóp stjórn­valda og aðila vinnu­markaðarins.

Launa­munur kynjanna minnkaði á tíma­bilinu 2008 til 2016. Þetta kemur fram í rannsókn Hagstofunnar í samvinnu við aðgerðarhóp stjórn­valda og aðila vinnu­markaðarins.

Konur voru að jafnaði með 6,6 prósent lægri laun en karlar árið 2008 en leið­réttur munur minnkaði í 4,5 prósent árið 2016.

Óskýrður launa­munur var 4,8 prósent en skýrður launa­munur 7,4 prósent á öllu tíma­bilinu 2008-2016. Skýrður launa­munur segir til um hversu stór hluti launa­munar skýrist af þeim skýringar­þáttum sem lagðir eru til grund­vallar í greiningunni en óskýrður stendur fyrir þann launamun sem ekki tókst að skýra.

Skipting tíma­bilsins 2008-2016 í þriggja ára tímabil leiðir í ljós stöðugt minnkandi launamun og fór óskýrði launa­munurinn úr 4,8 prósent á árunum 2008-2010 í 3,6 prósent á árunum 2014-2016.

Í frétt Hagstofunnar segir að beita megi ýmsum tölfræði­aðferðum við mat á launamun karla og kvenna. Hins vegar er erfið­leikum bundið að finna hinn eiginlega launamun sem hægt er að rekja eingöngu til kyns enda eru óvissu­þættir margir. Helst má þar nefna takmarkanir gagna, skýribreytur og forsendur sem lagðar eru til grund­vallar tölfræði­aðferðum. Þeir fyrir­varar eiga við niður­stöður þessarar rann­sóknar eins og um aðrar rann­sóknir á þessu sviði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár