Þörf á ótvíræðri lagaheimild til að loka ferðamannastöðum

Hefjast þarf handa við að áhættu­meta tíu ferðamanna­staði á Íslandi. Meðal þeirra eru Þing­vellir og Reynis­fjara. Engin miðlæg skrá er til um slys og dauðsföll ferða­manna eftir svæðum.

Banaslys varð í Reynisfjöru í sumar sem vakti enn og aftur umræðuna um öryggismál á þessum vinsæla ferðamannstað.
Banaslys varð í Reyn­is­fjöru í sumar sem vakti enn og aftur umræð­una um örygg­is­mál á þessum vin­sæla ferða­mann­stað. Mynd: Pexels

Hefja þarf vinnu við að kanna kosti og möguleika þess að innleiða sambærileg lög um öryggi á fjöl­förnum ferðamanna­stöðum og nú þegar gilda um varnir gegn snjó­flóðum og skriðu­föllum. „Verður að telja að sterk rök hnígi til þess að efla varnir og öryggi á þessu sviði með hliðsjón af núverandi öryggis­þörf og tíðni slysa,“ segir í nýút­kominni skýrslu verk­efna­stjórnar um öryggismál stjórn­valda og ferða­þjónustu­aðila sem Lilja Alfreðs­dóttir, ráðherra ferðamála, skipaði í janúar.

Verk­efna­stjórnin leggur einnig til að hafist verði handa við að áhættu­meta tíu ferðamanna­staði á Íslandi: Fimm­vörðuháls, Laugaveg, Þingvelli, Stuðlagil, Reynis­fjöru, Sólheima­sand, Sólheima­jökul, Hvanna­dalshnjúk, Reykjadal og Djúpa­lónssand.

Hér á landi er ekki til staðar stök stjórnsýslu­stofnun sem ber ábyrgð á öryggi ferða­manna. Eðli málsins samkvæmt sinna ýmsar undir­stofnarnir þó lögbundnu hlutverki og sjá á einn veg eða annan um verkefni sem með beinum eða óbeinum hætti geta haft áhrif á öryggi almennings og ferða­manna.

Með tilliti til mikil­vægis íslenskrar ferða­þjónustu fyrir efnahag landsins, vernd mannslífa og hugsanlega orðspors­áhættu ferða­þjónustunnar hljóta öryggismál í íslenskri ferða­þjónustu að njóta nokkurs forgangs, segir í skýrslunni. „Í því samhengi verður einnig að telja að öryggi ferða­manna sé málefni sem varði mikla hagsmuni ferða­þjónustu­aðila sem og annarra hagsmuna­aðila innan íslenskrar ferða­þjónustu.“

Erfitt að greina hættu á tilteknum ferðamannastöðum

Verk­efna­stjórninni var falið að skilgreina eftir því sem kostur er hvaða fjölsóttu ferðamanna­staðir geta ógnað öryggi fólks umfram aðra við vissar kringum­stæður. Fljótlega eftir að vinnan hófst kom í ljós að ekki er til miðlæg skrá sem heldur utan um tölulegar upplýsingar vegna slysa eða dauðsfalla ferða­fólks á tilteknum svæðum. Að mati verk­efna­stjórnarinnar er því erfitt án frekari greiningar að skilgreina með tæmandi hætti hvaða ferðamanna­staðir eru til þess fallnir að ógna öryggi almennings umfram aðra.

Samkvæmt upplýsingum sem verk­efna­stjórnin aflaði hjá Landsbjörgu og lögreglu­stjóranum á Suður­landi virðist fjöldi slysa á ferða­fólki einfald­lega haldast í hendur við þann fjölda sem leggur leið sína um tiltekinn ferðamanna­stað. Þannig eru slys með tilliti til útkalla t.d. algengari á Þing­völlum en í Reynis­fjöru. Árið 2018 nam 1,7 milljón ferða­fólks staðar á Suður­landi af þeim 2,3 milljónum sem heimsóttu landið.

Telja megi að sérstök aðgæslu­skylda gildi um fjöl­sóttustu ferðamanna­staðina, s.s. Fimm­vörðuháls, Laugaveg, Þingvelli, Stuðlagil, Reynis­fjöru, Sólheima­sand, Sólheima­jökul, Hvanna­dalshnjúk, Reykjadal og Djúpa­lónssand – svo dæmi séu tekin.

Inngrip í líf borgara

Verk­efna­stjórninni var m.a. falið að athuga hvaða gildandi laga- og/eða reglugerðar­heimildum sé hægt að beita við lokanir á fjöl­sóttum ferðamanna­stöðum þegar öryggi og lífi almennings er fyrir­sjáanlega stefnt í hættu.

Svokölluð lögmætis­regla felur í sér þá kröfu að ákveðinn rammi sé settur um vald­heimildir/ákvarðanir stjórn­valda sem fela í sér inngrip í líf borgara. Því telur verk­efna­stjórnin að ramminn um heimild hins opinbera að loka fjöl­förnum ferðamanna­stað þegar hættu­ástand skapast þurfi að eiga sér skýra og ótvíræða lagastoð.

Hvergi sé hins vegar að finna laga- eða reglugerðar­ákvæði þar sem skilgreind eru sérstæk öryggis­viðmið vegna áhættu á fjöl­sóttum ferðamanna­stöðum sem veita opinberum aðilum heimild til að grípa til tíma­bundinna lokana að vissum skilyrðum uppfylltum.

Í sérlögum og reglugerðar­ákvæðum er engu að síður að finna ýmsar heimildir til að hindra umferð eða rýma svæði. Í vegalögum er t.d. heimild veghaldara að banna umferð ökutækja um vegi sem eru hættu­legir. Í lögum um náttúru­vernd er einnig kveðið á um heimild Umhverfis­stofnunar til að takmarka umferð í óbyggðum eða vegna ágangs á ákveðnum svæðum.

Í lögum um almanna­varnir er svo að finna heimild fyrir lögreglu að banna dvöl eða umferð á ákveðnum svæðum eða vísa fólki á brott á hættu­stund.

Bráð og yfirvofandi hætta

Þessar og fleiri sambærilegar laga­heimildir geta að mati verk­efna­stjórnarinnar sjálf­krafa leitt til lokunar á fjöl­sóttum ferðamanna­stöðum en hún telur þó að þörf sé á ótvíræðri og almennri laga­heimild sem veitir opinberum aðila heimild til að loka fjöl­sóttum ferðamanna­stað tíma­bundið þegar bráð og yfir­vofandi hætta, sem ekki verður komið í veg fyrir með öðrum vægari leiðum, s.s. upplýsinga­gjöf eða hand­virkri stýringu, steðjar að.

„Að mati verk­efna­stjórnar er mikilvægt að slík laga­heimild veiti viðbragðs­aðila tækifæri til að bregðast við með skjótum og einföldum hætti, m.a. vegna þeirrar hættu sem getur skapast á fjöl­sóttum ferðamanna­stöðum vegna skjótra veðrabrigða.“

Ákveðin heimild í lögreglulögum

Stjórnin telur hins vegar að lögreglan hafi nú þegar heimild til slíks samkvæmt lögreglu­lögum. Um sé að ræða vald­beitingar­heimild sem m.a. heimilar lögreglu að hafa afskipti af borgurum og rýma tiltekin svæði eða takmarka umferð um þau í því skyni að gæta að öryggi einstaklinga. „Að mati verk­efna­stjórnar er því ekki, samkvæmt gildandi löggjöf, að finna sérstakar takmarkanir á því að unnt sé að framkvæma slíkar ráðstafanir á sambærilegan máta og staðið er að vega­lokunum á grund­velli [vegalaga].“

En þrátt fyrir þessa heimild í lögreglu­lögum verður að því er segir í skýrslunni, að telja æskilegt að skoða þörf á sértækum laga­heimildum sem eftir atvikum kveða á um aðrar og sértækari aðferðir til að stýra áhættu. Þessi vald­heimild lögreglunnar sé í raun eina gildandi laga­heimildin sem viðbragðs­aðilar geta gripið til samkvæmt gildandi löggjöf, skapist það ástand að grípa þurfi til tíma­bundinna lokunar ferðamanna­staða þegar bráð og yfir­vofandi hætta steðjar að.

„Sú hætta sem lögregla hefur heimild til að bregðast við með aðgerðum á grund­velli 15. gr. lögreglu­laga þarf hins vegar að vera svo bráð eða yfir­vofandi að önnur úrræði lögreglu og/eða annarra hlut­aðeigandi stjórn­valda dugi ekki til að tryggja þá verndar­hagsmuni sem falla undir ákvæðið,“ segir í skýrslu verk­efna­stjórnarinnar.

Kæmi upp ágrein­ingur um hvort lögreglu­stjóri hafi gripið til heimildar­ákvæðisins að nauðsynja­lausu og valdið einstaklingum eða fyrir­tækjum innan ferða­þjónustu tjóni, verða dómstólar að skera endanlega úr um það og hvort sú ákvörðun hafi bakað íslenska ríkinu bóta­skyldu.

„Þrátt fyrir framan­greinda heimild í lögreglu­lögum verður að telja að æskilegt kunni að reynast að kveða á um sértækari ráðstafanir í laga- og reglugerðar­ákvæðum, sem kunna eftir atvikum að gera minni kröfur til hættu­stigs og leggja jafnframt jákvæðar skyldur til tiltekinna ráðstafana sem geta eftir atvikum falið í sér önnur viðbrögð en leiða beinlínis af lokunum eða rýmingum.“

Verklag það sem stuðst er við í tengslum við vega­lokanir, bæði hvað varðar miðlun vísindalegra gagna frá Veður­stofu til viðbragðs­aðila sem og það heildarmat á aðstæðum í aðdrag­anda vega­lokana, yrði að öllum líkindum með svipuðu sniði og ákvarðana­taka lögreglu við tíma­bundna lokun á fjöl­sóttum ferðamanna­stað.

Lokanir og takmarkanir á aðgengi fólks að tilteknum svæðum ætti að mati verk­efna­stjórnarinnar ávallt að skoða sem neyðar­úrræði þar sem öðrum ráðstöfunum væri ekki við komið.

„Þegar um er að ræða þekkt áhættu­svæði, svo sem Reynis­fjöru, þar sem líkur á endur­teknum ráðstöfunum eru miklar, kann að vera tilefni til, að skilgreina nánar tiltekin áhættu­viðmið og viðbrögð við þeim,“ segir í skýrslu verkefnis­stjórnarinnar. Eðlilegt væri að fjalla um slíkar heimildir í sérlögum sem fælu jafnframt í sér reglugerðar­heimild til nánari útfærslu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár