Benedikt útilokar ekki áframhaldandi samstarf Viðreisnar við Sjálfstæðisflokkinn

Benedikt Jóhannesson vék sér undan spurningum um framhald Sjálfstæðis­flokksins í ríkis­stjórn. Óttarr Proppé vissi ekki að Benedikt Sveinsson hefði undir­ritað meðmæli fyrir Hjalta Hauksson og spurði ekki fyrir hvern meðmælin voru. Bjarni Benediktsson hafi ekki „boðið“ slíkar upplýsingar.

Benedikt Jóhannesson, fjármála­ráðherra og formaður Viðreisnar, útilokar ekki áfram­haldandi stjórnar­samstarf Viðreisnar við Sjálfstæðis­flokkinn eftir að Björt framtíð sagði sig úr ríkis­stjórn. Benedikt vék sér undan spurningum um hvort hann gæti hugsað sér að sitja áfram í ríkis­stjórn undir forystu Sjálfstæðis­flokksins í viðtali í auka­fréttatíma RÚV sem lauk rétt í þessu. Þing­flokkur Viðreisnar sendi þó út yfir­lýsingu í nótt þar sem kallað var eftir kosningum sem allra fyrst.

Óttarr Proppé heilbrigðis­ráðherra sagði þá Benedikt Jóhannesson ekki hafa vitað fyrir hvern Benedikt Sveinsson, faðir forsætis­ráðherra, undir­ritaði meðmæli þegar þeim var greint frá aðkomu hans að uppreist æru brota­manns á mánudag. Bjarni Benediktsson hafi eingöngu tjáð þeim að Benedikt Sveinsson væri umsagnar­aðili eins þeirra sem fengið hefði uppreist æru. Óttarr segir að þeim hafi ekki verið boðið upp á frekari upplýsingar og þeir ekki spurt.

„Það var ekki boðið aðrar upplýsingar“

„Við vissum að það væru mjög mörg mál undir og vissum að málinu hafði verið skotið til úrskurðar­nefndar,“ sagði Óttarr í auka­frétta­tímanum. Aðspurður hvort hann hafi ekki óskað frekari upplýsinga og spurt hverjum Benedikt Sveinsson hefði mælt með, sagði Óttarr: „Það má vera, eftir á að hyggja, að maður hefði átt að vera stífari en það var ekki boðið aðrar upplýsingar [sic] og ekki gefið í skyn að það hefðu liðið heilir tveir mánuðir frá því forsætis­ráðherra fékk þessar upplýsingar.“ 

En vissi Óttarr að Bjarni Benediktsson fékk upplýsingar um undir­ritun föður síns frá dómsmála­ráðherra, sama aðila og hafði ítrekað haldið því fram að um viðkvæmar persónu­upplýsingar væri að ræða sem ættu leynt að fara lögum samkvæmt? „Ekki upplifði ég okkar spjall á þessum fundi þannig. Ég stóð í þeirri trú að þetta væri eitthvað sem hefði verið rétt að koma í ljós,“ svaraði Óttarr. Hann telur óumflýjanlegt að þær ákvarðanir sem teknar voru um leynd yfir málum þeirra sem fengið hafa uppreist æru verði skoðaðar í nýju ljósi. „Auðvitað er þetta ömurlegt mál.“

„Ekki upplifði ég okkar spjall á
þessum fundi þannig“

Í viðtalinu við Benedikt Jóhannesson fjármála­ráðherra sagði hann málið erfitt. „Eðli málsins samkvæmt kemur þarna mikil tortryggni upp. (...) Í þessu máli þá er þetta þannig að ég tel að þarna hefði það verið mjög óeðlilegt ef Bjarni hefði farið að upplýsa okkur Óttar alveg sérstak­lega um þetta.“

Hann viðurkenndi að eftir á að hyggja væri augljóst að þeir Óttarr hefðu átt að spyrja Bjarna Benediktsson fyrir hvern faðir hans hefði undir­ritað meðmæli.

„Í þessu máli er komin upp geysilega mikil tortryggni milli þjóðarinnar annars vegar og stjórn­málanna hins vegar. Samúð allra er með fórnar­lömbunum og fjöl­skyldum þeirra,“ sagði Benedikt. „Það verður ekki gert nema þjóðin verði sannfærð um að þetta mál hafi verið upplýst alveg frá upphafi til enda. Við megum ekki stinga neinu undir stól. Þarna verður þjóðin að ná sátt um þetta mál. Þetta mál er þess eðlis að við verðum að vera öll sátt við það að þarna hafi verið eðlileg vinnu­brögð.“

Aðspurður um framhald Sjálfstæðis­flokksins í ríkis­stjórn sagði hann: „Ég get auðvitað ekki fullyrt um það á þessari stundu. En ég get fullyrt að það verður að nást niður­staða í þessu máli.“ 

Framsókn útilokar að leysa Bjarta framtíð af hólmi

Formenn stjórnar­andstöðunnar hafa bent á að mögulegt sé að boða til kosninga með þriggja vikna fyrirvara. Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, segir að það hafi verið ábyrgðar­laust af Bjartri framtíð og Viðreisn að ganga til ríkis­stjórnar­samstarfs við Sjálfstæðis­flokkinn í janúar.

Katrín Jakobs­dóttir, formaður Vinstri grænna, sagði ríkis­stjórnina hafa „staðið á brauð­fótum frá stofnun“. Þá vekur athygli að Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknar­flokksins, útilokar að Framsóknar­flokkurinn gangi inn í núverandi ríkis­stjórn í stað Bjartrar framtíðar.

„Nema Sjálfstæðis­flokknum,
hann er óstjórn­tækur.“

Birgitta Jóns­dóttir, kapteinn Pírata, segist ekki útiloka myndun ríkis­stjórn með öllum flokkum, „Nema Sjálfstæðis­flokknum, hann er óstjórn­tækur.“ Hún lagði til að fyrir þingrof myndi Alþingi samþykkja nýja stjórn­málaskrá.

Bjarni Benediktsson neitaði að tjá sig um málið fyrir þing­flokksfund Sjálfstæðis­manna sem nú stendur yfir í Valhöll. Guðlaugur Þór Þórðarson utan­ríkis­ráðherra kom í viðtal hjá RÚV og Stöð 2 og sagði Bjarna Benediktsson njóta trausts flokks­manna. „Bjarni hefur verið kosinn formaður, og hefur stuðning sjálfstæðis­manna,“ sagði hann. Þá bætti hann því við að málið væri flókið, og að mikilvægt væri að fara rólega í gegnum það, en augljóst væri að það þyrfti sem allra fyrst „að herða refsingar gegn kynferðis­ofbeldis­mönnum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár