Ríkið reiknar með að fá 75 milljarða fyrir helming af eigninni í Íslandsbanka á næsta ári

Sá hlutur sem ríkið seldi í Íslands­banka í sumar hefur hækkað um rúmlega 31 milljarð króna í virði á nokkrum mánuðum. Reiknað er með að ríkis­sjóður fái 75 milljarða fyrir helming útistandandi hlutar síns í bankanum næsta sumar. Restin verður seld 2023.

Ríkis­stjórnin ætlar að selja 65 prósent eignar­hlut sinn í Íslands­banka að fullu á næstu tveimur árum. Til stendur að selja um helming útistandandi hlutar ríkisins sumarið 2022 og ríkið reiknar með að fá um 75 milljarða króna fyrir hann, samkvæmt því sem fram kemur í fjár­laga­frumvarpi næsta árs. Það sem eftir stæði yrði svo selt 2023 ef markaðs­aðstæður yrðu ákjósanlegar.

Ríkis­sjóður seldi 35 prósent hlut í bankanum í sumar fyrir 55,3 milljarða króna. Markaðs­virði þess hlutar er í dag 86,5 milljarðar króna. Hann hefur því hækkað um 31,2 milljarða króna á nokkrum mánuðum. Sú hækkun lendir hjá nýjum eigendum hlutarins.

Á móti fékk ríkið markaðs­virði á eign sína í bankanum, sem var skráður á markað samhliða sölunni í sumar. Nú er 65 prósent hlutur ríkis­sjóðs metinn á um 161 milljarð króna.

Í fjár­laga­frumvarpinu segir að fyrir­huguð frekari sala á árinu 2022 sé mikil­vægur þáttur í virkri stýringu á efnahag ríkisins. „Með sölunni er hægt að auka sjóð­streymi til ríkisins, minnka láns­fjárþörf og auka rými til fjár­festinga í samfélags­lega arðbærum verkefnum þrátt fyrir halla­rekstur.“

Í stjórnar­sáttmála ríkis­stjórnarinnar, sem kynntur var á sunnudag, segir að á kjör­tímabilinu verði eignar­hlutir í bönkum seldir. Þar er ekki tilgreint í hvaða bönkum.

Í fjár­laga­frumvarpinu er einnig til staðar heimild til að selja allt að 30 prósent hlut í Lands­bankanum, sem ríkið á að nær öllu leyti í dag. Hann er stærsti banki landsins.

Hækkað meira en aðrir bankar á Norðurlöndum

Mark­aðsvirði Íslands­banka við lokun mark­aða í gær var 247,2 millj­arðar króna. Frá því að 35 pró­sent hlutur í bank­anum var seldur í júní síð­ast­liðnum hefur hluta­bréfa­verðið hækkað um 56 pró­sent, farið úr 79 krónum á hlut í 123 krónur á hlut. Það er mesta hækkun á virði bréfa í banka á Norð­ur­lönd­unum á því tíma­bili sem liðið er frá því að hluta­fjár­út­boðið í Íslands­banka fór fram.

Bank­inn hagn­að­ist um 7,6 millj­arða króna á þriðja ársfjórð­ungi 2021, sem er sá fyrsti sem líður eftir skrán­ingu hans á mark­að, og arð­semi eigin fjár hans var 15,7 pró­sent. Á fyrstu níu mán­uðum árs­ins var hagn­aður Íslands­banka 16,6 millj­arðar króna og arð­semi eigin fjár hans á árs­grund­velli var 11,7 pró­sent.

Hreinar þókn­ana­tekjur bank­ans á fyrstu níu mán­uðum árs­ins juk­ust um 20,1 pró­sent frá sama tíma­bili í fyrra og vaxta­tekjur hans hækk­uðu um 1,1 pró­sent, en þær voru 25,4 millj­arðar króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins.

Kostn­að­ar­hlut­fall bank­ans lækk­aði úr 55,3 í 46,6 pró­sent milli ára en stjórn­ar­kostn­aður hækk­aði, aðal­lega í tengslum við skrán­ingu Íslands­banka á mark­að, auk­ins launa­kostn­aðar vegna kjara­samn­ings­hækk­ana og kostn­aðar vegna upp­sagna.

Um sjö þús­und hafa þegar selt

Í fjár­festa­kynn­ing­u vegna síðasta birta uppgjörs Íslands­banka kom fram að hlut­hafar í Íslands­banka hefðu verið yfir 17 þús­und tals­ins í lok september. Eftir útboðið í sumar voru hlut­haf­arnir um 24 þús­und tals­ins. Það þýðir að um sjö þús­und hafa þegar selt hlut sinn í Íslands­banka á þeim tíma sem liðin er frá hluta­fjár­út­boð­in­u.

Sá háttur var hafður á í útboð­inu að allir sem skráðu sig fyrir einni milljón króna eða minna myndu ekki skerð­ast ef eft­ir­spurn yrði umfram fram­boð. Þetta var gert til að draga sem flesta að þátt­töku. Eft­ir­spurnin reynd­ist níföld.

Hluta­bréf í bank­anum hækk­uðu um 20 pró­sent strax á fyrsta degi eftir skrán­ingu á markað og hafa síðan hækkað jafnt og þétt.

Sá sem keypti hlut í Íslands­­­banka af íslenska rík­­inu á eina milljón króna í júní gæti selt þann hlut í dag á tæplega 1,6 millj­ónir króna, og þar með hagn­ast um 560 þús­und krónur á nokkrum mán­uð­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár