„Í dag erum við öll Vestfirðingar“

Forsætis­ráðherrann segir að blessunar­lega hafi ekkert manntjón orðið í nótt í snjó­flóðunum fyrir vestan.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður VG.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður VG. Mynd: Bára Huld Beck

Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra segir að snjó­flóðin á Flateyri og í Súganda­firði í nótt séu miklar hamfarir og að það líti út fyrir að mikið eignatjón hafi orðið en blessunar­lega ekkert manntjón. Þetta segir hún í stöðu­uppfærslu á Facebook í dag.

„Það var gott að varð­skipið Þór hafði verið sent vestur vegna slæmrar veðurspár og er núna á leið frá Ísafirði inn á Flateyri með mannskap og vistir. Allir viðbragðs­aðilar hafa verið á fullu frá miðnætti og aðgerðir standa enn en fjölda­hjálpar­miðstöð verður opnuð á eftir á Flateyri. Veður er enn vont og mikilvægt að standa vaktina áfram. Stjórn­völd munu fylgjast grannt með,“ skrifar hún.

Katrín segir að hún hafi heyrt í nokkrum Vestfirðingum í morgun sem allir hafi verið slegnir. Flóðin 1995 hafi rifjast upp og það skelfi­lega manntjón sem hafi orðið þá. „Heyrði líka í nokkrum kærum vinum að vestan og fann hversu þungt þessir atburðir lögðust á þá. Í dag erum við öll Vestfirðingar.“

Þrjú snjóflóð féllu á skömmum tíma

Neyð­ar­stigi var lýst af almanna­varn­ar­deild Rík­is­lög­reglu­stjóra í nótt eftir að þrjú snjó­flóð féllu á skömmum tíma á tólfta tím­anum á norð­an­verðum Vest­fjörð­um. Snjó­flóðin féllu á Flat­eyri og í Súg­anda­firð­i.

Um var að ræða stjór snjó­flóð. Tvö þeirra féllu á Flat­eyri, annað úr Bæj­ar­gili sem fór að hluta yfir snjó­flóð­ar­varn­ar­garð og á hús þar sem stúlka á ung­lings­aldri grófst í flóð­inu. Henni var bjargað og varð ekki fyrir telj­andi meiðsl­um. Aðrir heim­il­is­menn komust undan af sjálfs­dáð­um. Hitt snjó­flóðið féll úr Skolla­hvilft, likt og hið mann­skæða snjó­flóð sem féll á Flat­eyri fyrir ald­ar­fjórð­ungi síð­an. Nú beindu snjó­flóða­garðar flóð­inu frá bæj­ar­stæð­in­u.

Á vef RÚV seg­ir að ung­lings­stúlkan hafi verið föst í snjó­flóð­inu í rúman hálf­tíma. Systk­ini henn­ar, fimm ára gömul stelpa og níu ára gam­all dreng­ur, komust út úr hús­inu sem flóðið féll á ásamt móður sinni með því að klifra út um glugga. Stúlkan var flutt til Ísa­fjarðar með varð­skip­inu Þór ásamt aðstand­endum sín­um en samkvæmt móður stúlkunnar er hún í lagi og hefur hún sagt að um krafta­verk sé að ræða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár