Þrjú snjóflóð féllu á norðanverðum Vestfjörðum – neyðarstigi lýst yfir

Ung­lings­stúlku var bjargað úr snjó­flóði sem féll á hús á Flateyri á tólfta tím­anum. Engra ann­arra er saknað en umtals­vert tjón hefur orðið. „Hjörtu okkar slá eins og í einum manni þessa stund­ina,“ segir bæj­ar­stjóri Ísa­fjarð­ar­bæjar.

Neyð­ar­stigi var lýst af almanna­varn­ar­deild Rík­is­lög­reglu­stjóra í nótt eftir að þrjú snjó­flóð féllu á skömmum tíma á tólfta tím­anum á norð­an­verðum Vest­fjörðum. Snjó­flóðin féllu á Flateyri og í Súg­anda­firði.

Um var að ræða stjór snjó­flóð. Tvö þeirra féllu á Flateyri, annað úr Bæj­ar­gili sem fór að hluta yfir snjó­flóð­ar­varn­ar­garð og á hús þar sem stúlka á ung­lings­aldri grófst í flóð­inu. Henni var bjargað og varð ekki fyrir telj­andi meiðslum. Aðrir heim­il­is­menn komust undan af sjálfs­dáðum. Hitt snjó­flóðið féll úr Skolla­hvilft, likt og hið mann­skæða snjó­flóð sem féll á Flateyri fyrir ald­ar­fjórð­ungi síðan. Nú beindu snjó­flóða­garðar flóð­inu frá bæj­ar­stæð­inu.

Á vef RÚV segir að ung­lings­stúlkan hafi verið föst í snjó­flóð­inu í rúman hálf­tíma. Systkini hennar, fimm ára gömul stelpa og níu ára gam­all drengur, komust út úr hús­inu sem flóðið féll á ásamt móður sinni með því að klifra út um glugga.

[adspot]Stúlkan var flutt til Ísa­fjarðar með varð­skip­inu Þór ásamt aðstand­endum sínum.

Í stöðu­skýrslu almanna­varn­ar­deildar kemur fram að síð­ar­nefnda flóðið hafi fallið „alla leið ofan í höfn­ina þar sem bátar slitn­uðu frá og nokkrir sukku. Þá féll enn eitt flóðið úr norð­an­verðum Súg­anda­firði niður á Norð­ur­eyri og fram í sjó. Við það mynd­að­ist flóð­bylgja sem skall á höfn­inni og fjör­unni á Suð­ur­eyri þar sem bátar slitn­uðu frá og sjór flaut um næstu götur. Tjón liggur ekki fyrir.“

Engrar mann­eskju er saknað af svæð­unum þar sem flóðin féllu. Því stendur ekki yfir leit af fólki á Flateyri. Björg­un­ar­sveita­fólk kann­aði aðstæður á Suð­ur­eyri eftir að flóð­bylgjan skall þar á og fór í það að rýma hús sam­kvæmt til­mælum frá Veð­ur­stofu.

Varðskipið Þór sent á staðinn

Á mbl.is kemur fram að sam­hæf­ing­ar­stöðin í Skóg­ar­hlíð hafi verið virkjuð klukk­an 23:56 í gær­kvöldi, skömmu eftir að flóðin féllu, en sam­hæf­ing aðgerða fer fram í þar. Aðgerða­stjórn á Ísaf­irði var virkjuð klukkan 23.44.

Í fyrstu voru björg­un­ar­sveitir á Suð­ur­eyri og Flateyri kall­aðar út og stuttu síðar voru allar sveitir við Ísa­fjarð­ar­djúp kall­aðar út. Um 30 björg­un­ar­menn voru svo sendir með varð­skip­inu Þór frá Ísafirði til Flat­eyrar ásamt lækni og sjúkra­flutn­inga­manni. Einnig mann­aði björg­un­ar­sveita­fólk lok­un­ar­pósta víða, þar sem lokað var vegna snjó­flóða­hættu. Þá var áhöfn þyrlu Land­helg­is­gæsl­unnar verið kölluð út og fór sömu­leiðis vestur. Ger var ráð fyrir að tveir sjúkra­flutn­inga­menn frá Slökkvi­liði höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins farið með þyrl­unni.

Í stöðu­skýrslu sam­hæf­ing­ar­mið­stöðvar Almanna­varna er einnig greint frá því að fjögur hús hafi verið rýmd á Suð­ur­eyri og íbúar í efstu húsum á Flateyri yfir­gáfu sín heim­ili.

Aldarfjórðungur frá mannskæðum flóðum

Þann 26. októ­ber 1995 féll gríð­ar­legt snjó­fljóð á Flateyri með þeim afleið­ingum að 20 manns lét­ust. Í kjöl­far þeirra ham­fara voru reistir umfangs­miklir snjó­flóða­varn­ar­garðar fyrir ofan bæj­ar­stæðið og stóðu þeir að mestu fyrir sínu í nótt. Það hefur einnig áður gerst, síðan að garð­arnir voru reistir, að þeir hafi forðað stór­slysi.

Skömmu áður saman ár, nánar til­tekið 16. jan­úar 1995, hafði annað snjó­flóð fallið á Súðavík við vest­an­vert Ísa­fjarð­ar­djúp. 14 manns lét­ust í því flóði.

Guð­mundur Gunn­ars­son, bæj­ar­stjóri Ísa­fjarð­ar­bæjar, segir í stöðu­upp­færslu að hjörtu lands­manna slái eins og í einum manni þessa stund­ina. „Þau slá með Flat­eyr­ingum og öllum þeim sem stóðu í ströngu í nótt. Bæði á Flateyri og Suð­ur­eyri.

Ég vil koma á fram­færi ólýs­an­legu þakk­læti til allra þeirra sem komu að aðgerðum í nótt og sáu til þess að ekki fór verr. Á Flateyri búa hetjur og þar eigum við björg­un­ar­sveit sem engin lýs­ing­ar­orð ná yfir. Þeirra afrek fæst seint full­þakkað.

Veður er enn vont og skil­yrði erfið. Ég hef þó, í alla nótt, fengið að fylgj­ast með okkar frá­bæra fólk sem stendur vakt­ina og sér til þess að fyllsta öryggis sé gætt. Við erum í góðum höndum.

Þessir atburðir vekja upp sterkar til­finn­ingar. Það er skilj­an­legt. Nú reynir á sam­taka­mátt­inn og sam­heldn­ina sem gerir okkur Vest­firð­inga að því sem við erum. Sendum hlýja strauma. Það skiptir máli.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár