Plastagnirnar úr þvottavélinni

Ógrynni míkró­plastagna fer í hafið í gegnum úrgangs­vatnið okkar. Hluti af plastinu sem við skolum út kemur úr snyrti­vörum, svo sem tann­kremum og hreinsi­kremum. En stór hluti skolast líka úr fötunum okkar þegar við setjum þau í þvottavél.

Ein stærsta umhverfisvá sem við þurfum að takast á við í dag er plast­mengun. Plast er því miður of mikið notað í heiminum og of lítið endur­unnið. Mjög stór hluti af plastinu sem er notað endar því í umhverfinu okkar og þar á meðal hafinu. Þar stafar lífríkinu mikil hætta af plastinu þar sem sjávardýr geta t.d. flækt sig í plastinu og dáið eða étið það og kafnað (eins og á reyndar við um landdýr líka).

Fyrir utan stóra plastið sem við missum í hafið fer þangað líka ógrynni af míkró­plastögnum í gegnum úrgangs­vatnið okkar. Hluti af plastinu sem við skolum út kemur úr snyrti­vörum, svo sem tann­kremum og hreinsi­kremum. En stór hluti skolast líka úr fötunum okkar, sem eru gerð úr ákveðnum efnum, þegar við setjum þau í þvotta­vélina.

Í rannsókn sem var birt í Environmental Science and Technology í síðasta mánuði, skoðar vísinda­hópur frá Sviss hvernig plast­agnir losna úr flíkum og enda í hafinu. Vísinda­hópurinn skoðaði m.a. hitastig og lengd þvottarins, sem bæði virðast líklegir áhrifa­þættir við losun plastagna úr flíkum.

Það kom vísinda­hópnum þess vegna á óvart þegar í ljós kom að sama magn plastagna losnaði úr flíkunum við mismun­andi hitastig og magnið jókst ekki heldur þegar þvotta­hringurinn var lengdur. Þrátt fyrir að rann­sóknin hafi sýnt þveröfuga niður­stöðu við það sem vísinda­hópurinn lagði af stað með í upphafi eru þessar niður­stöður fyrsta skrefið í að komast að því hvernig plast­agnirnar losna og fara út í umhverfið.

Ef hægt er að skilgreina hvaða ferli valda losun plastagna er mögulega hægt að breyta þvotta­vélum eða þvotta­efnum til að takmarka þessa losun. Á meðan getur hinn almenni neytandi lagt sitt af mörkum með því að takmarka notkun á fatnaði sem gefur frá sér plast­agnir eins og t.d. pólýester-efnum.

Að lokum er rétt að minna á átakið plastlaus júlí sem allir geta tekið þátt í með lítilli fyrirhöfn. Markmið átaksins er að nota eins lítið plast og við komumst upp með (helst ekkert) í heilan mánuð. Átök eins og plastlaus júlí geta hjálpað okkur að uppgötva hversu auðveldlega við getum minnkað plast­notkun inn á heimilinu, svo endilega takið þátt!

Fréttin birtist einnig á Hvatanum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár