Myrkur í ágúst 1 — Sólin verður til

Sól­myrkvi er boð­aður þann 12. ágúst. Í þess­ari grein og öðrum næstu daga fram að sól­myrkva verður fjallað um sól­ina, jörð­ina, tunglið, sól­myrkva og annað sem þar að lýtur, sem og fyrstu til­raunir manna til að skilja fyr­ir­bærið þegar sólin myrkv­ast um miðjan dag

Sólin, rétt áður en hún byrjar að skína!
Sólin, rétt áður en hún byrjar að skína! Myndin er auð­vitað vél­strokkuð. Mynd: 93320021-f3dc-48cd-a8a3-bf5eb7b9fe0d

Til að sólin myrkvist, þarf hún nátt­úr­lega fyrst að verða til.

Fyrir fjórum millj­örðum ára var alheim­ur­inn orð­inn kunn­ug­legur. Hann varð til með mikla­hvelli fyrir 13,8 millj­örðum ára og allra fyrstu hund­rað milljón árin eða svo hafði gengið mikið á, efni þeytt­ist í allar áttir, til orðið úr engu, eða ein­hverju (við vitum ekki hvort er), gríð­ar­stórar stjörnur mynd­uð­ust loks en lifðu ekki lengi, þær sprungu og efnið úr þeim tætt­ist um allt, en nú í millj­arða ára hafði ríkt sæmi­lega kunn­ug­leg kyrrð, efnið hafði safn­ast saman í stjörnu­þokur, þar sem millj­arðar lang­lífra sól­stjarna skinu glatt og reiki­stjörnur kringum þær margar, en hingað og þangað sveim­uðu gríð­ar­mikil ský úr afgangs­efni ýmiss konar og sner­ust í hæga hringi um óþekkta miðju.

Og þá gerð­ist það.

Eitt þess­ara ryk­skýja í stjörnu­þokunni okkar byrj­aði að snú­ast hraðar en áður.

Súpernóva!

Við vitum ekki hvað olli því. Vin­sælasta kenn­ingin í bili er sú að sól­stjarna ein­hvers staðar í nágrenn­inu hafi sprungið. Það heitir á alþjóða­máli súpernóva.

Og högg­bylgjan hafi ýtt við ský­inu svo það fór að snú­ast um sjálft sig og með því fór æ stærri og þyngri hluti skýs­ins að safn­ast saman í miðj­unni, þyngd­ar­afl miðj­unnar jókst við það og þá jókst hrað­inn enn, og brátt var eins og væri kom­inn kökkur í mitt skýið, kökkur sem hringsner­ist og í honum æ hækk­andi hiti.

Loks var hit­inn orð­inn gíf­ur­legur – 15 milljón gráður á Celsius! – og efn­is­magnið svo mikið og þétt að miðjan þoldi ekki meira. Hún lét undan eigin þunga og kjarna­sam­runi hófst. 

Ný sól kviknar

Vetniskjarnar runnu saman í sífellu og úr sam­run­anum kom annað frum­efni, hel­íum.

Hel­íum­kjarn­arnir eru örlítið létt­ari en vetniskjarn­arnir og afgang­ur­inn losn­aði úr læð­ingi sem orka.

Og braut sér leið út úr kúl­unni stóru, rudd­ist upp á yfir­borð hennar og þeytt­ist út í tómið, út í geim­inn.

Ný sól var kviknuð. Sólin okkar.

Þetta er ein­földuð mynd, já, en nokkurn veg­inn svona gerð­ist það.

Í rúm­lega fjóra millj­arða ára hefur kjarna­sam­run­inn í iðrum sól­ar­innar staðið án afláts og svo stór var kúlan orðin að það munu enn líða fimm millj­arðar ára þangað til vetnið verður uppurið.

Eitt lítið tungl dugar

En þótt skýið í geimnum væri efn­is­mikið náði kúlan sem þétt­ist í miðju þess ekki að draga það til sín alveg allt. Marg­vís­legt efni varð eftir á braut um kúl­una og bara skömmu eftir að sólin okkar kvikn­aði fór það að þétt­ast í reiki­stjörnur og tungl sem sveim­uðu svo um hina nýju stjörnu. Í sam­an­burði við sól­ina voru þessir hnettir (og eru) eins og hvert annað fis. En stærðir og fjar­lægðir röð­uð­ust þannig upp að hér á Jörðinni dugar eitt svo­lítið tungl til að skyggja alveg á hina gríð­ar­stóru sól, ef horft er upp til him­ins á réttu augna­bliki.

Það eru sól­myrkvar eins og sá sem við munum verða vitni að nú 12. ágúst.

Hér á Jörðu dugar eitt lítið tungl til að skyggja á hina gríð­ar­stóru sól
Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár