Í þá tíð… Nasistar uppræta Hvítu rósina

Gestapo handtók Scholl-systkinin og voru þau háls­höggvin fyrir andóf gegn stjórn nasista árið 1943.

Hans og Sophie Scholl ásamt Christopher Probst. Þau voru meðlimir andófshópsins Hvítu rósarinnar á tímum nasistastjórnarinnar í Þýskalandi. Þau handtekin á þessum degi fyrir 74 árum og tekin af lífi fjórum dögum síðar.
Hans og Sophie Scholl ásamt Christopher Probst. Þau voru með­limir and­ófs­hóps­ins Hvítu rós­ar­innar á tímum nas­ista­stjórn­ar­innar í Þýska­landi. Þau hand­tekin á þessum degi fyrir 74 árum og tekin af lífi fjórum dögum síðar.

Á þessum degi fyrir réttum 74 árum, hinn 18. febrúar árið 1943, handtóku fulltrúar frá Gestapo systkinin Hans og Sophie Scholl fyrir andóf gegn Nasista­stjórn Þriðja ríkisins. Þau og félagar þeirra í æskulýðs­hreyfingunni Hvítu rósinni höfðu þá um nokkurra mánaða skeið stundað andóf gegn Nasista­stjórninni í Þýska­landi.

Hans var á æskuárum meðlimur í Hitlersæskunni, en varð síðar afhuga nasisma eftir að hann áttaði sig á raun­verulegum markmiðum Hitlers. Þegar hann var við læknanám við Ludwig-Maximilians-Universität í München komst hann í kynni við aðra stúdenta sem voru álíka þenkjandi. Margir þeirra höfðu farið á Austur­vígstöðvarnar og séð hrylling stríðsins og grimmdar­verk Nasista með eigin augum.

Hans skipti úr læknis­fræði yfir í hugvísindi og Sophie, litla systir hans, sem hafði einnig verið í æskulýðs­hreyfingu Nasista, gekk til liðs við Hvítu rósina.

Friðsamleg andspyrna gegn kúgunarvaldinu

Sumarið 1942, eftir að hópflutningar á gyðingum í fanga­búðir hófust, gátu félagar í Hvítu rósinni ekki setið aðgerðar­lausir lengur. Hans og félagi hans prentuðu því fjögur dreifi­bréf, þar sem meðal annars var varpað ljósi á gerðir Hitlers, stjórnar hans og ofsóknir gegn gyðingum auk þess sem hvatt var til friðsamlegra mótmæla og andspyrnu. Í fyrstu útgáfunni var meðal annars talað um að þegar glæpir nasista myndu koma fram í dags­ljósið myndi því fylgja þjóðar­skömm, jafnvel fyrir næstu kynslóðir.

Þau einskorðuðu sig fyrst við München en brátt var hægt að nálgast efnið frá þeim í fleiri borgum í Suður-Þýska­landi og allt norður til Berlínar. Auk bæklinga­útgáfunnar fóru þau um borgina og skrifuðu slagorð á veggi; t.d. „Frelsi“ og „Niður með Hitler“.

Það var svo örlaga­daginn 18. september sem systkinin voru að dreifa nýjustu útgáfu Hvítu rósarinnar. Þau Hans og Sophie skildu eftir tösku fulla af bæklingum í aðal­byggingu háskólans þar sem þess var krafist, í nafni þýsku þjóðarinnar, að almenningur fengi á ný að njóta almennra mann­réttinda.

Þar sá húsvörður til þeirra og tilkynnti til Gestapo og þau voru handtekin sama dag ásamt öðrum meðlimi Hvítu rósarinnar, Christopher Probst að nafni.

Hugrökk allt fram á síðustu stundu

Þau voru dregin fyrir dómstóla, sökuð um landráð. Réttar­höldin voru aðeins til málamynda þar sem sakborningar fengu ekki einu inni að bera vitni, en viðstaddir báru að Sophie hafi sagt: „Einhver þurfti að taka af skarið. Það sem við skrifuðum og sögðum er það sem býr í hugum margra annarra, þau hafa bara ekki dirfst að tjá sig líkt og við.“

Þau voru sakfelld hinn 22. febrúar og háls­höggvin með fallöxi samdægurs. Hans var 25 ára, Christopher var 24 ára og Sophie 21 árs. Síðustu orð Hans Scholls voru „Es lebe die Freiheit!“, eða „Lifi frelsið!“. Félagar þeirra í Hvítu rósinni og aðrir sem tengdust félags­skapnum voru hand­teknir og teknir af lífi áður en langt um leið.

Andinn lifir enn

Hvíta rósin varð aldrei fjölda­hreyfing og náði augljós­lega ekki markmiðum sínum áður en yfir lauk, þar sem stjórn nasista leið ekki undir lok fyrr en rúmum tveimur árum seinna. Þessi litli hópur háskóla­stúdenta skildi hins vegar eftir sig skrif sem urðu mörgum innblástur en ekki var það síður hugrekki þeirra sem eftir var tekið, en þau vissu mæta vel hvaða afleiðingar gætu beðið þeirra.

„Ég vissi hvað ég var að fara út í,“ sagði Hans við yfirheyrslur. „En ég var reiðu­búinn að fórna lífi mínu.“

Jafnvel enn í dag eimir eftir af anda Hvítu rósarinnar og er oft vísað til hennar sem dæmi um staðfestu og hugrekki jafnvel þótt staðið sé frammi fyrir ofurefli.

Annað markvert sem gerðist 18. febrúar

1861

Jefferson Davis útnefndur forseti Suðurríkja Bandaríkjanna sem höfðu sagt sig úr lögum við Norðrið vegna deilna um þrælahald.

1885

Mark Twain gefur út skáldsöguna um ævintýri Stykkilsberja-Finns.

1929

Fyrstu óskarsverðlaunin tilkynnt, Stríðsmyndin Wings var valin besta myndin.

1930

Plútó sést fyrst. Hún var talin með reikistjörnum sólkerfisins fram til 2006 þegar kveðinn var upp sá dómur að hún uppfyllti ekki skilgreiningu á reikistjörnu, mörgum til hugarvíls.

1954

Fyrsta Vísindakirkjan tekur til starfa í Los Angeles. Síðan hefur staðið styr um starfsemi hennar.

1991

Írski lýðveldisherinn gerir sprengjuárás á Paddington- og Viktoríu-lestarstöðvarnar í London. Einn lést og 38 slösuðust.

2014

Að minnsta losti 76 láta lífið og hundruð særast í átökum milli mótmælenda og lögreglu í Kíev í Úkraínu. Þremur dögum síðar flýr Janúkovits Úkraínuforseti land.

Afmælisbörn:

Yoko Ono (84), John Travolta (63) og Hallgrímur Helgason (58).

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár