Til skoðunar að auka kröfur til „afreksfólks atvinnulífsins“

Framkvæmda­stjóri CreditInfo, Hrefna Ösp Sigfinns­dóttir, segir ljóst að mæli­kvarðar á árangur fyrir­tækja séu að taka breytingum og að gerðar séu enn ríkari kröfur til fyrir­tækja varðandi sjálf­bærnimál en áður. Erfiðlega hefur gengið að fá fyrirtæki til að svara spurningum um siða­reglur og hvort þau sæti opinberum rann­sóknum.

Vill breyta
Vill breyta Hrefna Ósk Sig­finns­dóttir, fram­kvæmda­stjóri CreditInfo, segir að unnið sé að því að bæta við­miðum tengdum sjálf­bærni og sam­fé­lags­á­byrgð við lista CreditInfo yfir Fram­úr­skar­andi fyr­ir­tæki. Mynd: CreditInfo

Til stendur að endur­skoða hvernig valið er á lista CreditInfo yfir svokölluð Fram­úrskarandi fyrirtæki og taka tillit til þess þegar fyrirtæki eru til rann­sóknar yfirvalda. Vera Samherja, sem er til rann­sóknar opinberra aðila fyrir að greiða mútur í Namibíu, á síðasta birta lista fyrir­tækisins sem og hugbúnaðar­fyrir­tækisins Init hefur sætt gagnrýni. Systur­fyrirtæki Init, Init-Rekstur, hefur einnig verið að listanum. 

Listinn hefur verið notaður fyrst og fremst í markaðs­starf þeirra fyrir­tækja sem komast á hann. CreditInfo kallar þá sem komast á listann „afreks­fólk atvinnu­lífsins“ og hafa fyrir­tækin uppfyllt nokkur skilyrði um rekstur til að fá sæti á honum. Fyrirtæki greiða um eitt hundrað þúsund krónur fyrir að mega nýta þá niður­stöðu í auglýsingar með merki verk­efnisins.

Breytingar framundan

Hrefna Ösp Sigfinns­dóttir, framkvæmda­stjóri CreditInfo, segir ljóst að mæli­kvarðar á árangur fyrir­tækja séu að taka breytingum og að gerðar séu enn ríkari kröfur til fyrir­tækja varðandi sjálfbærnimál en áður. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Karl Sanders skrifaði
    Það bað ykkur enginn um að vera samviska þjóðarinnar.Skítapakk eigendur og starfsmenn og viðskiftavinir þessa skíta fyritækis.Megi það illa sem þið gerið öðrum koma milljónsinnum verra fyrir ykkur.
    0
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Það á að banna svona afætustarfsemi sem Creditinfo stundar - að safna upplýsingum um einstaklinga og fyrirtæki til að endurselja þær.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár