Borgirnar munu berjast gegn hlýnun óháð því hvað Trump segir

Stærstu borgir Banda­ríkjanna munu ekki breyta áætlunum sínum neitt sem snúa að því að berjast gegn mengun af manna­völdum í heiminum og hlýnun jarðar. Ef Donald Trump, nýkjörinn forseti Banda­ríkjanna, mun setja ný markmið - þar sem hlýnun jarðar er afneitað - þá munu borgirnar einfald­lega ekki hlusta á það og halda áfram á sömu braut.

Þetta kom fram í máli Michael Bloomberg, fyrr­verandi borarstjóra í New York, á fundi í Washington í gær með Kínverskum embættis­mönnum og fyrir­tækjum.

Bloomberg hrósaði Kínverjum fyrir að gefa sterklega til kynna, að alveg sama hvað Trump segði, þá myndi það ekki breyta neinu um þau áform Kínverja, um að standa við skuld­bindingar Parísar­samkomu­lagsins.

Bloomberg sagði enn fremur að sá árangur sem náðst hefði á síðustu árum hefði að nánast engu leyti komið í gegnum Banda­ríkjaþing og stjórn­völd, þrátt fyrir góðan vilja, heldur hefðu það verið borgir, fyrirtæki og borg­ararnir sjálfir sem hefur gert mest til þess að vinna gegn alvarlegum áhrifum hlýnunar jarðar.

Sjálfur hefur Trump sagt - eftir að hann var að kjörinn - að hann muni nálgast umhverfis­mála­flokkinn með „opnum huga“ og segist jafnvel tilbúinn til að þess að skipta um skoðun ef hann telur það vera hið rétta, eftir að hafa fengið upplýsingar frá sérfræðingum um mála­flokkinn.

Borgar­stjórar New York, Philadelphiu, Seattle, Los Angeles, Washington og Chicago hafa nú formlega tilkynnt um að borgar­yfirvöld muni ekki fara eftir fyrir­mælum um að vísa innflytjendum úr landi sem ekki eru rétt skráðir inn í landið, eða óskráðir, komi til þess að stjórn Trumps tilkynni um slíkt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár