„Tímamót“: Breið sáttastjórn mynduð

Katrín Jakobs­dóttir vill ná sátt í helstu deilu­málum íslensks samfélags. „Tímamót,“ segir Bjarni Benediktsson. „Mikilvægt að við reynum að breyta vinnu­brögðum,“ sagði Katrín.

Ný ríkisstjórn
Ný rík­is­stjórn Þetta er í fyrsta sinn sem stjórn­mála­maður úr vinstri flokki leiðir rík­is­stjórn sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er aðili að. Mynd: Heiða Helgadóttir

Katrín Jakobs­dóttir verður forsætis­ráðherra í breiðri stjórn íhalds­sömustu stjórn­mála­flokkanna á Alþingi, Vinstri grænna, Sjálfstæðis­flokksins og Framsóknar­flokksins. Þá verður Bjarni Benediktsson fjármála­ráðherra.

Með ríkis­stjórninni vonast flokkarnir til þess að skapa aukna sátt og breyta vinnu­brögðum í stjórn­málum. Leiðin til þess verður að auka áhersluna á vægi löggjafar­valdsins, Alþingis, umfram framkvæmda­valdið, ríkis­stjórnina.

„Það verður aldrei þver­pólitísk samstaða um öll mál,“ sagði Katrín. „En við getum gert betur í því.“

Utanþingsráðherra í umhverfismálin

Vinstri grænir fá heilbrigðis­ráðuneytið og vill Katrín „móta skýra heilbrigðis­stefnu“ um hvernig fjármunum verði forgangs­raðað. Svandís Svavars­dóttir þingmaður verður heilbrigðis­ráðherra.

Þá fær VG umhverfis­ráðuneytið og verður lögð áhersla á lofts­lagsmál og gengið lengra en í markmiðum Íslands hingað til, með kolefnis­hlutleysi.  

Athygli vekur að Katrín valdi fyrr­verandi framkvæmda­stjóra Land­verndar sem umhverfis­ráðherra, Guðmund Inga Guðbrandsson, en hann er líffræðingur og umhverfis­fræðingur sem starfað hefur að umhverfis­málum á fjöl­breytilegan hátt.

Stofnun miðhálendis­þjóðgarðs er eitt af því sem Katrín tiltekur sem jákvætt skref, sem og aðgerðir í kynferðis­brotamálum.

Hún sagðist vilja „skapa sem breiðasta samstöðu um ýmis mál sem hafa verið deilumál í íslensku samfélagi“. Þannig verði Alþingi eflt og hlutverk þess aukið með því að „styðja við Alþingi fjárhags­lega og taka sér rými sem því ber í ýmsum verkefnum“.

Bjarni og KatrínSjálf­stæð­is­flokkur og Vinstri græn fylgja í grund­vall­ar­at­riðum sitt hvorri stefn­unni í efna­hags­málum - annar flokk­ur­inn leggur áherslu á skatta­lækk­anir, en hinn aukna þjón­ustu.

Bjarni biðlar til aðila vinnumarkaðarins

Bjarni Benediktsson leggur áherslu á samstarf við aðila á vinnu­markaðnum. Náist það ekki sé erfitt að ná fram markmiðum. „Leysum úr læðingi mikinn kraft fyrir landsmenn alla.“

„Tímamót varðandi það hvernig horft er til Alþingis,“ sagði Bjarni, og kvaðst hafa talað fyrir því í gegnum árin að Alþingi þyrfti að efla. „Mikilvægt að við reynum að breyta vinnu­brögðum,“ sagði Katrín.

Sjálfstæðis­flokkurinn verður með fjármála­ráðuneytið, utan­ríkis­ráðuneytið, sjávar­útvegs­ráðuneytið og dómsmála­ráðuneytið, ásamt ráðuneyti iðnaðar-, nýsköpunar- og ferðamála.

Fram hefur komið að Jón Gunnarsson, fráfar­andi samgöngu­ráðherra, vék af þing­flokksfundi Sjálfstæðis­flokksins áður en honum lauk. Hann verður ekki áfram ráðherra.

Sigríður Andersen verður áfram dómsmála­ráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson utan­ríkis­ráðherra, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa­dóttir iðnaðar- og ferðamála­ráðherra, en Kristján Þór Júlíusson kemur í sjávar­útvegs­ráðuneytið.

Menntamál, samgöngumál og félagsmála­ráðuneytið fara til Framsóknar­flokksins.

Sigurður Ingi Jóhannsson verður samgöngu­ráðherra, Lilja Dögg Alfreðs­dóttir mennta- og menningar­mála­ráðherra og Ásmundur Einar Daðason félagsmála­ráðherra.

Willum Þór Þórsson verður formaður fjár­laganefndar Alþingis.

Tveir í VG andvígir

Tveir þingmenn Vinstri grænna, Andrés Ingi Jónsson, og Rósa Björk Brynjólfs­dóttir, greiddu atkvæði gegn stjórnar­myndun á flokks­ráðsfundi Vinstri grænna. Andrés Ingi gagnrýndi að Vinstri grænir hefðu ekki náð að hafa næg áhrif á stjórnar­sáttmálann. 

Hann taldi upp að nokkur atriði, sem talin væru Vinstri grænum til tekna í stjórnar­sáttmálanum, sem væru hins vegar úr stjórnar­sáttmála síðustu ríkis­stjórnar: „Örugg og góð heilbrigðis­þjónusta, óháð efnahag og þjóð­félagsstöðu - með minni greiðslu­þátttöku. Vernd miðhálendisins. Öflugri viðbrögð við kynferðis­brotamálum.  Skilgreina stafrænt kynferðis­ofbeldi í lögum. Taka á móti fleiri flótta­mönnum.“

Andrés Ingi kvað erfitt að treysta því að slíkri stefnu yrði fylgt nú. „Af hverju eiga þau að vera trúverðugari í dag en þau voru fyrir tæpu ári?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár