Eigandi álversins reynir að fá nýja fjárfesta í dag: Hamrað á kostnaðarlækkun

Í tilkynningu frá Rio Tinto Group í dag er sérstak­lega talað um kostnaðar­lækkun í starfseminni. Fjárfesta­kynning haldin í London í dag. Ólafur Teitur Guðnason segir að 300 þúsund evrur skipti máli í rekstri fyrir­tækisins sem vilji sitja við sama borð og aðrir.

„Lausafjár­staðan er áfram aðal­atriði og viðleitnin í að lækka rekstrar­kostnað heldur áfram í gegnum víðtækar aðgerðir sem munu lækka lausafjár­kostnað um allt að 300 milljónir dollara,“ segir í frétta­tilkynningu frá Rio Tinto Group, móður­félagi álsversins í Straumsvík í dag. Í dag fer fram í London fjárfesta­dagur Rio Tinto Group þar sem fyrir­tækið er kynnt sem fjár­festingar­kostur og er tilkynningin send út til ýmissa aðila á markaði í tilefni af því. 

Hamrað á kostnaðarlækkun 

Rio Tinto á Íslandi hefur átt í hörðum samninga­deilum við starfs­menn álversins og aðila atvinnumarkaðarsins í kjara­viðræðum þar sem mikið hefur borið á milli og var viðræðunum hætt í bili í síðustu viku. Til stóð að starfs­menn álversins færu í verkfall þar sem Rio  Tinto hefur ekki viljað endur­semja við þá um laun og vilja forsvars­menn álversins þess í stað fá heimildir til að bjóða út störf í verktöku sem hingað til hafa verið unnin af fastráðnum starfs­mönnum. Fyrir­tækið á Íslandi hefur mjög skýrar línur frá móður­félaginu í London um þetta en í markaðs­greinum frá Goldman Sachs og Deutsche Bank sem Stundin greindi frá í síðustu viku kom fram að höfundar þeirra teldu mjög mikilvægt að Rio Tinto næði að sýna fram á eins mikinn niður­skurð og mögulegt væri á þessu fjárfesta­degi „Fókusinn á fjárfesta­deginum verður álframleiðslu­hlutinn þar sem fjár­festar munu geta hitt Alf Barrios, forstjóra álframleiðslu­hlutans í London. Við búumst við að fókus stjórn­endanna verði á lækkun kostnaðar og lægri fjár­festingu í varanlegum rekstrar­fjármunum,“ sagði í greiningu Goldman.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár