Andri Snær: „Ofgnótt af rafmagni" á Íslandi

Rithöf­und­urinn Andri Snær Magnason segir „harm­leikinn" í kringum Hval­árvirkjun ekki verða til vegna skorts, heldur ofgnóttar á rafmagni.

Andri Snær Magnason
Andri Snær Magnason Mynd: Birgir Þór Harðarson

Andri Snær Magnason rithöfundur og fyrr­verandi forseta­fram­bjóðandi gagnrýnir umræðu um Hval­árvirkjun og segir harm­leikinn í kringum hana ekki hafa orðið til við skort á rafmagni, heldur ofgnótt.

Í stöðu­uppfærslu á Facebook-síðu sinni segir Andri Snær sérkennilegt hversu auðvelt sé að rugla saman grunnþörf almennings og braski auðmanna sem selji orku frá virkjunum. Þar að auki bendir hann á að orku­framleiðsla á höfðatölu sé langmest allra landa á Íslandi, en samkvæmt honum getur orkan í landinu þjónað fimm milljón manna samfélagi. Því sé meint orku­óöryggi á Vestfjörðum ekki vegna vannýttra virkjunar­kosta heldur vanrækslu manna í orku­geiranum.

Við því bætir Andri að það sé fullkomlega hægt að búa til þjóðgarð kringum Dranga­jökul og fegurðina ekki vera nýlega uppgötvaða. Hann kallaði stöðuna sem upp hafi komið stefna í einhverskonar harmleik þar sem allir myndu tapa nema erlendur aðili sem muni eiga virkjunina og mala gull úr henni. Þannig harm­leikur verði til af ofgnótt, ekki skorti á rafmagni.

Færslu Andra má lesa í heild sinni hér að neðan:

Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem Andri tjáir sig um virkjunina, en Kjarninn greindi frá því fyrir mánuði síðan þegar Andri sagði orku­fyrirtækin beita almenningi fyrir sig í viðleitni þeirra til að afla orku fyrir stóriðju.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár