Guðmundur Ingi: Hagsmunir stangast á

Umhverfis- og auðlinda­ráðherra telur að fara verði varlega í fiskeldi og að greinin þurfi að þróast á næstu 10 til 15 árum í þá átt að ekki verði um neina erfða­blöndum að ræða. Þarna rekist ákveðnir hagsmunir á.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra.
Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra. Mynd: Samsett mynd

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlinda­ráðherra, telur að hagsmunir fiskeldis­fyrirtækja – sem og hagsmunir land­eigenda – stangist á við náttúru­vernd. Hann spyr jafnframt hvernig Íslendingar ætli að láta þetta hvort tveggja ganga upp en hann segir þetta vera mikið hagsmunamál – og gríðarlegt náttúruverndarmál. Þetta kom fram í máli ráðherrans í viðtali við Kjarnann um páska­helgina.

Að hans mati er jafnframt mikilvægt að fara varlega í þessum efnum. „Ég sé þetta þannig fyrir mér að fiskeldið þurfi að þróast á næstu 10 til 15 árum í þá átt að ekki verði um neina erfða­blöndum að ræða. Það kallar á breyttar aðferðir við laxeldið,“ segir hann.

„Og ég myndi vilja sjá þetta þannig að atvinnu­veginum væri gefinn ákveðinn tímarammi til að aðlaga sig að þessum breytingum. Og á sama tíma væru hvatar fyrir fyrir­tækin að þróast í þessa átt. Þetta er stóra myndin í þessu,“ segir Guðmundur Ingi.

Fiskeldis­löggjöfin er ekki á borði ráðherrans en að hans mati þarf að nálgast þau mál með þessum hætti. „Mér finnst það líka samræmast við stjórnar­sáttmálann sem kveður á um að þróa eigi fiskeldi með tilliti til sem minnstrar áhættu fyrir líffræði­legan fjöl­breytileika villtra stofna.“

Fiskeldið ógn við laxastofna

Guðmundur Ingi segir enn fremur að villtir laxa­stofnar séu gríðar­lega verðmæt auðlind hér á landi. „Reyndar eru ferskvatns­fiskar á Íslandi mjög merkileg auðlind vegna þess að mjög fáar tegundir eru hér en aftur á móti eru búsvæðin fjöl­breytt. Sem þýðir það að sumar af þessum tegundum hafa þróast með ótrúlegum hætti á einungis þessum 10.000 árum frá því að ísöld lauk og þær námu hér land,“ segir hann en sem dæmi um þetta nefnir hann fisk í Þingvalla­vatni þar sem fjögur afbrigði eru til af bleikju vegna þess að fiskurinn hefur þróast genatískt að mismun­andi aðstæðum, fæðu og búsvæðum.

„Laxinn okkar er líka merki­legur en mismun­andi stofnar eru eftir landsvæðum. Þannig að erfða- og líffræði­lega er laxinn okkar mikil­vægur, bæði út frá nátt­úrunni og náttúru­vernd. Og laxa­stofnum – eða Atlantshafs­laxinum – þessari tegund sem finnst hér, hefur víða hnignað. Bæði í Evrópu og á austur­strönd Ameríku. Ekki alls staðar, en víða. Á Íslandi hefur tekist ágætlega að varðveita og viðhalda þeim vegna þess að við erum með ágætis­kerfi til þess. En þá kemur inn þessi ógn sem fiskeldið er,“ segir hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár