Ásmundur hefur fengið tæpar 23,5 milljónir í aksturskostnað á eigin bíl

Frá árinu 2013 hefur þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins fengið tæpar 23,5 millj­ónir end­ur­greiddar vegna akst­urs­kostn­aðar á eigin bif­reið. Hæstu end­ur­greiðsl­urnar fékk hann árið 2014.

Ásmundur Friðriksson.
Ásmundur Frið­riks­son. Mynd: Bára Huld Beck

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefur fengið 23.447.944 krónur end­ur­greiddar vegna akst­urs­kostnað frá árinu 2013. Þetta kemur fram á vef Alþingis en laun og kostn­að­ar­greiðslur þing­manna voru birtar í gær.

Mest keyrði Ásmundur árið 2014 en þá fékk hann tæpar 5,4 millj­ónir end­ur­greiddar vegna akst­urs­kostn­aðar á eigin bif­reið. Árið 2015 fór hann einnig yfir 5 millj­óna króna markið en þá fékk hann rétt rúm­lega 5 millj­ónir end­ur­greiddar. Árið 2016 fékk hann tæpar 4,9 millj­ónir fyrir akst­urs­kostnað á eigin bif­reið. Lægstu greiðsl­urnar vegna ferða­kostn­aðar á eigin bif­reið fékk hann árið 2013 fyrir tíma­bilið 2013 til 2017 en þá fékk hann tæpar 3,2 millj­ónir end­ur­greiddar.

Á þessu ári hafa end­ur­greiðslur Ásmundar minnkað til muna en það sem af er ári eru þær rúmar 680 þús­und krónur fyrir ferðir á eigin bif­reið og rúmar 820 þús­und fyrir ferðir með bíla­leigu­bíl, eða sam­tals 1,5 millj­ónir.

Mikið var fjallað um akstur Ásmundar í byrjun árs en þann 9. febr­úar síð­ast­lið­inn var upp­lýst um að hann væri sá þing­maður sem fékk 4,6 millj­ónir króna end­ur­greiddar vegna akst­­ur­s­­kostn­aðar í fyrra. Það þýðir að hann fékk um 385 þús­und krónur á mán­uði í end­­ur­greiðslu úr rík­­is­­sjóði vegna keyrslu sinn­­ar á síð­asta ári. Alls keyrði Ásmundur 47.644 kíló­metra í fyrra og fékk end­ur­greitt frá rík­inu vegna kostn­aðar fyrir þann akst­ur.

Ásmundur sagði í Morg­un­út­varpi Rásar 2 þegar fjallað var um málið á sínum tíma að hann keyrði 20 til 25 þús­und kíló­metra á ári til að fara í vinnu. Hann sinni auk þess kjör­dæmi sínu, sem sé 700 kíló­metra langt, afar vel. „Það líða ekki margar helgar sem ég hef frí frá því að sinna erindum í kjör­dæm­in­u, fara út á meðal fólks, mæta á alls­konar upp­á­komur og svo eru sumrin upp­tekin af alls­konar bæj­ar­há­tíð­u­m,“ sagði hann.

Hann sagð­ist í sama við­tali fara eitt hund­rað pró­sent eftir öllum reglum og að hann hefði aldrei fengið athuga­semd frá þing­inu. Hann hefði haldið nákvæma dag­bók þar sem finna megi yfir­lit yfir það sem hann hefur gert í hverri ferð fyrir sig og hvern hann hefði hitt. Tíðar kosn­ingar á und­an­förnum árum hefði auk þess kallað á aukin ferða­lög. „Regl­urnar eru bara þannig að þau erindi sem ég á við kjós­endur sem þing­maður það er greitt.“

Í lok nóv­em­ber síð­ast­lið­ins end­ur­greiddi Ásmundur skrif­stofu Alþingis 178 þús­und krónur vegna ferða sem honum hafði verið end­ur­greiddar á síð­asta ári. Þetta gerði hann vegna þess að honum hafi orðið það ljóst „að það gæti orkað tví­mælis að blanda saman ferðum mínum um kjör­dæmið og ferðum á sama tíma með töku­fólki ÍNN.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár