Í áfalli eftir að hafa verið sagt upp hjá Vinnumálastofnun

Vinnumála­stofnun sagði upp fimm konum í lok mars síðastliðins og segja þær að uppsagnirnar hafi verið óvæntar og framkoma stjórn­enda ofbeldis­kennd, ógnandi og niður­lægjandi í þeirra garð. Forstjóri stofn­un­ar­innar segist ekki geta tjáð sig um einstök mál.

Fimm konur hafa leitað til Sameykis stéttar­félags eftir að þeim var sagt upp hjá Vinnumála­stofnun í lok síðasta mánaðar. Þórarinn Eyfjörð formaður Sameykis segir í samtali við Kjarnann að uppsagnirnar hafi verið þeim verulegt áfall. Uppsagnirnar hafi verið óvæntar og án nokkurs aðdrag­anda og ekki verði annað séð en framkvæmdin sé stjórnunarlegt fúsk.

Ekki hafi verið farið eftir leið­beiningum til stjórn­enda um uppsagnir ríkis­starfsmanna vegna rekstrarlegra ástæðna heldur „vaðið í starfs­mennina“ án nokkurs aðdrag­anda með órökstuddum full­yrðingum um að ástæða uppsagn­anna væri hagræðing í rekstri og uppsagnir nauðsynlegar til að mæta aðhalds­kröfu.

Unnur Sverris­dóttir forstjóri Vinnumála­stofnunar segir í skriflegu svari við fyrir­spurn Kjarnans, þar sem hún er spurð hvort rétt hafi verið staðið að þessum uppsögnum og öllum ferlum fylgt, að hún sem forstjóri sé bundin þagnar­skyldu um allt sem lýtur að málum einstakra starfs­manna hjá stofnuninni og sé henni því ómögulegt að svara þeim spurningum sem blaða­maður setur fram í fyrir­spurninni.

Hún var einnig spurð hvort farið hefði verið eftir starfs­reglum stjórn­enda stofnana sem fjármála­ráðuneytið gefur út og hvort uppsagnirnar færu á mis við jafnréttislög, eins og konurnar halda fram.

„Almennt vil ég þó taka fram að hjá Vinnumála­stofnun er þess gætt í hvívetna að farið sé að þeim lögum og reglum sem gilda þegar kemur að starfs­lokum starfs­manna stofnunarinnar auk þess sem reynt er að sýna eins mikla nærgætni og unnt er við erfiðar aðstæður,“ segir hún jafnframt.

Komið fram við þær „eins og sakamenn“

Flestar kvennanna mættu á fund Sameykis í fyrradag og greindu frá upplifun sinni af uppsögnunum og framgöngu stjórn­enda við að „bókstaf­lega henda þeim út“. Þórarinn segir að ekki verði annað séð en að allur mála­tilbúningurinn um einhverja óútskýrða aðhalds­kröfu sé hreinn uppspuni. Á sama tíma og gengið sé fram af fullkomnu virðingar­leysi við umræddar konur, hafi aðrir starfs­menn verið fastráðnir – jafnvel starfs­menn sem hafi verið laus­ráðnir áður.

Því sé ekkert sem bendir til þess að um hagræðingar- og aðhalds­kröfu sé að ræða vegna uppsagn­anna sem er sögð ástæðan í uppsagnar­bréfi. Enda sé ekki einu orði minnst á það í uppsagnar­bréfi hvaðan sú krafa sé komin eða hvernig stofnuninni var gert að fylgja henni.

Þórarinn segir að konunum hafi verið gert skylt að yfirgefa vinnu­staðinn samstundis og reynt að sjá til þess að þær yfirgæfu vinnustað sinn til margra ára til þess að koma í veg fyrir að þær hittu starfs­félaga sína. Óskum um að ljúka vinnu­deginum hafi verið hafnað og öllum aðgangi þeirra að tölvu­kerfum, póst­forritum og innra samskipta­neti sem starfi þeirra tengdist hafi verið lokað um leið og þeim var vísað út.

Konurnar lýsa þessari framkomu þannig að komið hafi verið fram við þær eins og sakamenn. Yfirmenn hafi lokað sig af áður en til uppsagn­anna kom, viðmót þeirra hafi verið kuldalegt og þeim sýnd vanvirðing. Tvær kvennanna segja jafnframt frá því að þær hafi verið í nokkurra daga veikindum vegna flensu­faraldursins, þegar tveir yfirmenn þeirra hafi komið saman á sitthvort heimili þeirra til að afhenda þeim uppsagnar­bréfið þegar þær voru heima vegna veikinda.

Upplifði einelti frá yfirmanni um langt skeið

Þórarinn segir að konurnar hafi lýst afar sérstakri framkomu yfirmanna sem í einhverjum tilfellum verði ekki betur séð en að einkennst hafi af hroka og geðþótta­ákvörðunum. Þá segir ein kvennanna að hún hafi upplifað einelti frá yfirmanni sínum um langt skeið og orðið kvíðin fyrir því að mæta honum. Nokkrar kvennanna íhugi að kæra stjórn­andann vegna eineltis á vinnustað.

Fram kemur hjá Þórarni að konunum sem sagt var upp störfum hafi langan starfs­aldur hjá Vinnumála­stofnun. Hann segir að stofnunin hafi ekki virt leið­beiningar fjármála­ráðuneytisins um hvernig standa beri að uppsögnum ríkis­starfsmanna en þar segir meðal annars að slík ákvörðun verði að byggjast á lögum og málefna­legum sjónar­miðum.

Framkvæmd uppsagna hefur mikil áhrif á viðhorf starfsmanna og almennings til stofnunar

Í leið­beiningum fjármála­ráðuneytisins segir að uppsagnir starfs­manna séu alltaf erfiðar, sérstak­lega fyrir starfs­menn en einnig fyrir stjórn­endur. Þegar nauðsynlegt er að segja upp starfs­mönnum reyni fyrir alvöru á hæfni stjórn­enda og starfsmanna­stefnu stofnunar. „Framkvæmd uppsagna hefur mikil áhrif á viðhorf starfs­manna og almennings til stofnunar, einnig löngu eftir að uppsagnir eru um garð gengnar. Því er mikilvægt að framkvæmdin sé vandlega undirbúin, hún sé fagleg, að farið sér eftir lögum og reglum og að virðing sé borin fyrir hlut­aðeigandi aðilum.“

Þórarinn segir að Vinnumála­stofnun hafi gert fastráðningar­samning við þrjá lausráðna starfs­menn stofnunarinnar áður en til uppsagna starfs­mannanna tveggja kom. Þórarinn telur í því ljósi að uppsagnirnar séu því ekki vegna kröfu fjármála­ráðuneytisins um hagræðingu hjá stofnuninni.

Í uppsagnar­bréfi stendur aftur á móti að ástæður uppsagn­anna séu vegna hagræðingar í starfsemi og séu nauðsynlegar til að mæta aðhalds­kröfum. Samkvæmt Þórarni tilgreindi Vinnumála­stofnun konunum ekki hvaða hagræðinga­kröfur fjármála­ráðuneytisins væri um að ræða eða hvernig mæta ætti hagræðingar­verkefninu með aðhaldi og endur­skipulagningu í rekstrar­legum útgjöldum.

Framkoma stjórnenda ofbeldiskennd, ógnandi og niðurlægjandi

Þórarinn telur að stofnunin þurfi jafnframt að svara því hvort uppsagnirnar fari á mis við jafnréttislög því um er að ræða uppsagnir kvenna. Hann segir að stjórn­endur Vinnumála­stofnunar hafi heldur ekki virt leið­beiningar fjármála­ráðuneytisins um uppsagnar­viðtöl þar sem kemur skýrt fram að boða þurfi starfs­mann í viðtal vegna uppsagnarinnar en stjórnendurnir hafi forðast að eiga samtal vegna þeirra. Í leið­beiningunum segir:

„Hugsanlegt er að einhverjir stjórn­endur bregðist við ástandinu með því að fela sig inni á skrif­stofum sínum á bak við luktar dyr undir því yfirskini að hafa mikið að gera. Slík hegðun sýnir takmarkaða virðingu þeirra fyrir starfs­fólki sínu sem hefur þörf fyrir sýnilegan stjórn­anda sem kemur fram af myndug­leika og skilningi á viðbrögðum starfs­fólks.“

Þórarinn greinir frá því að stjórn­endur Vinnumála­stofnunar hafi forðast að eiga samtal vegna uppsagna kvennanna, kallað viðkomandi inn á skrif­stofu, afhent uppsagnar­bréf og óskað eftir því að starfs­mennirnir yfirgæfu vinnu­staðinn án tafar án þess að koma við á starfs­stöðvum sínum eða kveðja samstarfs­félaga sína og sagt að starfs­krafta þeirri væri ekki óskað á uppsagnar­tíma. Að ekki sé minnst á að sækja að starfs­fólki sínu veiku í flensu, „þrammandi inn á gafl á þeirra eigin heimili til að henda uppsögnum í viðkomandi“. Uppsagnirnar hafi verið óvæntar og framkoma stjórn­endanna hafi verið ofbeldis­kennd, ógnandi og niður­lægjandi í garð þeirra.

„Þessi framkoma er algjör­lega forkastanleg,“ segir Þórarinn að lokum og segir að Sameyki muni beita sér af mikilli ákveðni í að sækja rétt kvennanna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár