Sex mikilvægir hlutir sem eru að gerast í heiminum í dag

Kjarninn hefur tekið saman nokkur af stærstu frétta­málum dagsins í dag úti í hinum stóra heimi.


  1. Fjármála­ráðherrar evru­ríkjanna hittast á fundi í dag til þess að reyna að leysa úr skulda­vanda og lána­endur­greiðslum Grikk­lands. Í gær lögðu Grikkir fram beiðni um sex mánaða fram­lengingu á fjár­veitingu til landsins. Framkvæmda­stjórn Evrópu­sambandsins tók vel í tillögur Grikkja en Þjóð­verjar skutu þær í kaf.

  2. Bretland og Evrópu­sambandið mislásu Rússland herfilega í aðdrag­anda stríðsins í Úkraínu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem utan­ríkismála­nefnd lávarða­deildar breska þingsins hefur gert, þar sem stjórn­völd eru gagnrýnd harðlega.

  3. Banda­ríkin og Íran munu halda áfram viðræðum um kjarnorku­áætlanir Írana í Genf um helgina, að sögn íranskra stjórn­valda.

  4. Stríðandi fylkingar í Jemen hafa komist að samkomu­lagi um að setja saman bráðabirgða­stjórn til að leiða ríkið út úr erfið­leikunum.

  5. Eigendur breska blaðsins Daily Telegraph fengu 250 milljóna punda lán frá HSBC bankanum rétt áður en blaðamenn blaðsins eru sagðir hafa verið hvattir til þess að birta ekki neikvæðar fréttir um bankann. Blaðamenn hafa greint frá því að viðhorfið gagnvart bankanum hafi breyst í byrjun 2013, en lánið fékkst í lok desember 2012.

  6. 59 ára gömul kona í Svíþjóð, sem hefur verið handtekin fyrir að halda dætrum sínum föngnum í meira en áratug, neitar ásökunum. Fjöl­miðlar í Svíþjóð grafa nú upp ýmislegt um málið, og velta upp spurningum eins og því hvernig á því stóð að börnin mættu ekki í skóla svo árum skiptir og enginn virðist hafa gert neitt í málinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár