Grikkir fá líflínu en dómsdagur nálgast

Grikkir hafa form­lega sent Evr­ópu­sam­band­inu og Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðnum til­lögu að sex mán­aða fram­leng­ingu sem á að koma í stað núgild­andi sam­komu­lags, sem rennur út um mán­aða­mótin. Jeroen Dijs­sel­bloem, for­seti evru­hóps­ins, stað­festi þetta í morgun. Hann boð­aði einnig til fundar í hópnum á morgun vegna máls­ins.

Received Greek request for six months extension.

— Jeroen Dijs­sel­bloem (@J_Dijsselbloem) February 19, 2015

#Eurogroup Friday in Brussels as of 15.00. — Jeroen Dijs­sel­bloem (@J_Dijsselbloem) February 19, 2015

Forseti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins, Jean-Claude Juncker, segir til­lög­una vera jákvætt skref, sem gæti orðið grund­völlur fyrir sann­gjarnri mála­miðlun. Þetta sagði tals­maður fram­kvæmda­stjórn­ar­innar um hádegið. Nú væri fram­haldið í höndum evru­hóps­ins.

Tillaga Grikkja felur í sér fram­leng­ingu á lána­samn­ingnum við ESB og AGS, en ekki fram­leng­ingu á þeim skil­málum sem þeir þurftu að gang­ast undir til þess að fá lánin. Grikkir telja þessa skil­mála, nið­ur­skurð, skatta­hækk­anir og ýmsar umbætur, hafa gert illt verra í Grikk­landi und­an­farin ár. Sam­komu­lagið hefur þó komið í veg fyrir að Grikk­land verði gjald­þrota frá árinu 2010, en það rennur út eftir níu daga.

Fjár­mála­ráð­herrar evru­ríkj­anna, evru­hóp­ur­inn svo­kall­aði, höfðu gefið stjórn­völdum í Grikk­landi frest þangað til á morgun til að sam­þykkja fram­leng­ingu á núver­andi lána­samn­ingi og þeim aðhalds­að­gerðum sem krafa hefur verið gerð um. Evru­hóp­ur­inn fundar sem fyrr segir í Brussel á morgun, en það verður þriðji fund­ur­inn á tíu dögum um málið.

[caption id="attachment_20685" align="alignnone" width="567"] Yanis Varoufakis fjár­mála­ráð­herra og Alexis Tsipras for­sæt­is­ráð­herra.[/caption]

„Ég trúi því að til­lagan sé full­nægj­andi fyrir Grikki og fyrir for­seta evru­hóps­ins,“ sagði Yanis Varoufakis fjár­mála­ráð­herra Grikk­lands í gær­kvöldi.

Seðla­banki Evrópu sam­þykkti í gær­kvöldi við­bót­ar­neyð­ar­lán til Grikkja upp á 3,3 millj­arða evra, til við­bótar við þá 65 millj­arða sem þegar hafa verið veittir. Sú fjár­hæð er nærri upp­urin. Nú er rætt hvort stjórn­endur bank­ans ættu að stöðva fjár­magnið til Grikk­lands til að neyða Grikki til að sam­þykkja kröfur evru­hóps­ins. Stjórn bank­ans var ekki ein­huga um að veita við­bót­ar­lánið, en nið­ur­staðan var sú á end­anum að það væri ekki hlut­verk bank­ans að kenna Grikkjum ein­hvers konar lexíu, heldur við­halda stöð­ug­leika í Evrópu.

Sá hluti sam­komu­lags­ins sem rennur út um mán­aða­mótin eru lánin við Evr­ópu­sam­bandið og Seðla­banka Evrópu. Ef ekki semst á þessum níu dögum verður mik­ill þrýst­ingur á Seðla­banka Evrópu að stöðva neyð­ar­lánin til grískra banka. Það gæti valdið svo miklu álagi á fjár­mála­kerfið að í versta falli þyrftu Grikkir að yfir­gefa evr­una og fara að prenta eigin pen­inga. Ef það ger­ist gætu ESB-ríkin setið uppi með tapið af lánum sínum til Grikk­lands. Grískur gjald­mið­ill myndi strax falla í verði með þeim afleið­ingum að flestar inn­fluttar vörur myndu hækka. Það gæti haft hræði­leg áhrif á sam­fé­lag þar sem fátækt hefur auk­ist mikið, með­alinn­koma hefur minnkað um þriðj­ung og einn af hverjum fimm er án vinnu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár