Grikkir reyna til þrautar að semja - vilja sex mánaða framlengingu

Grísk stjórn­völd, með Syriza flokkinn í broddi fylkingar, hafa lagt fram tilboð á borðið í samninga­viðræðum við Evrópu­sambandið sem felur í sér sex mánaða fram­lengingu á 240 milljarða evra efnahags­áætlun landsins, sem unnið er samkvæmt í samvinnu við Evrópu­sambandið, Seðla­banka Evrópu og Alþjóða­gjaldeyris­sjóðinn.

Syriza flokkurinn vann mikinn kosninga­sigur 25. janúar síðastliðnn og tók við stjórn landsins, en stærsta mál flokksins í kosninga­baráttunni, var að taka upp efnahags­áætlun landsins, í reynd að hætta að vinna eftir henni og semja við lána­drottna landsins á nýjan leik. Helsta skilyrðið var að tengja greiðslu­byrði lána við hagvaxtar­þróun í landinu, og stöðvar niður­skurðar­áform hjá hinu opinbera, sem og eignasölu þess.

Samninga­viðræður Grikkja og fjármála­ráðherra Evrópu­sambandsins hafa ekki gengið eins og stjórn­völd í Grikk­landi ætluðu, miðað við það sem lagt var upp með í kosninga­baráttunni og eftir kosningar. Alexis Tsipras, forsætis­ráðherra Grikk­lands, lét hafa eftir sér í gær, að Grikkir myndu ráða sínum örlögum sínum sjálfir en þá þegar hafði verið boðað til atkvæða­greiðslu í gríska þinginu um áframhald efnahags­áætlunarinnar.

Heildar­skuldir Grikk­lands nema 323 milljörðum evra, um 48 þúsund milljörðum króna, samkvæmt upplýsingum sem breska ríkis­útvarpið BBC tók saman. Íbúar landsins eru ríflega ellefu milljónir en atvinnu­leysi mælist þar nú 25,8 prósent, samkvæmt nýlega uppfærðum tölum hagstofu Evrópu, Eurostat. Þar af eru 60 prósent þeirra gagnvart Evrópu­sambandinu, tíu prósent gagnvart Alþjóða­gjaldeyris­sjóðnum, sex prósent gagnvart Seðla­banka Evrópu og afgangurinn, 23 prósent gagnvart erlendum bönkum, grískum bönkum og sjóðum, þar á meðal bandarískum vogunar­sjóðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár