Borgin skoðar að selja Malbikunarstöðina Höfða sem er að flytja í Hafnarfjörð

Á fundi borgar­ráðs í dag var samþykkt að láta skoða sölu á malbik­un­ar­stöð sem borgin hefur átt í meira en 80 ár og hefur lengi verið þyrnir í augum margra. Stöðin var með 91 prósent markaðs­hlutdeild í malbikun í höfuð­borginni um tíma.

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir er formaður borgarráðs Reykjavíkurborgar.
Þórdís Lóa Þór­halls­dóttir er for­maður borg­ar­ráðs Reykja­vík­ur­borgar. Mynd: Bára Huld Beck

Borgarráð samþykkti á fundi sínum í dag að láta fjármála- og áhættu­svið Reykja­víkurborgar meta kosti og galla þess að selja Malbikunar­stöðina Höfða, sem er að öllu leyti í eigu borgarinnar og með pólitískt skipaða stjórn yfir sér. Leitað verður til óháðra ráðgjafa vegna verk­efnisins. Reykja­vík­ur­borg hefur átt mal­bik­un­ar­stöð­ina í meira en 80 ár.

Samkvæmt málefna­samningi núverandi meirihluta borgar­stjórnar Reykja­víkur, sem samanstendur af Samfylkingu, Pírötum, Viðreisn og Vinstri grænum átti að leggja Malbikunar­stöðinni Höfða til nýja lóð á kjör­tímabilinu og kanna í kjölfarið sölu á fyrir­tækinu.

Malbikunar­stöðin hefur haft afnot af stórri lóð við Sævar­höfða í Reykjavík á grund­velli óskráðs ótíma­bundins afnota­samnings við Reykja­víkurborg. Í tilkynningu frá Reykja­víkurborg sem send var út í dag segir að borgin og malbikunar­stöðin hafi nú gert með sér „Samkomulag um brott­flutning malbikunar­stöðvarinnar vegna fyrir­hugaðrar uppbyggingar á nýju 20 þúsund manna hverfi á Ártúns­höfða og við Elliða­árvog, þar sem gert er ráð fyrir blandaðri byggð með íbúðum og léttri þjónustu­starfsemi.“ Höfði þarf að víkja af lóðinni fyrir lok þessa árs.

Fyrir­tækið keypti þess í stað lóð við Álfhellu í Hafnar­firði og er flutningur hennar þangað þegar hafinn.

Með 91 pró­sent hlut­deild

Borg­ar­full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks hafa lengi verið mjög áfram um að mal­bik­un­ar­stöðin verði seld. Snemma árs 2017 lögðu full­trúar flokks­ins í umhverf­is- og skipu­lags­ráði Reykja­víkur til að ráðið sam­­þykki áskorun til borg­­ar­ráðs um að selja hana. Sá vilji hefur verið ítrekaður nokkrum sinnum síðan, síðast í fyrra­haust.

Í til­­lög­unni frá 2017 sagði að ástæður þessa væru tvær, ann­­ars vegar væri eign­­ar­hald borg­­ar­innar á Höfða ósam­­rým­an­­legt sjón­­­ar­miðum um heil­brigða sam­keppni og hag­­kvæma opin­bera þjón­­ustu og hins vegar mætti færa lagarök fyrir því að eign­­ar­hald borg­­ar­innar á mal­bik­un­­ar­­stöð­inni væri ólög­mætt. Meg­in­regla sam­­kvæmt íslenskum sveit­­ar­­stjórn­­­ar­lögum væri að atvinn­u­­rekstur sveit­­ar­­fé­laga á frjálsum mark­aði væri óheim­ill nema sér­­­stök laga­heim­ild kæmi til. Höfði var á þeim tíma með 73 pró­sent mark­aðs­hlut­deild í mal­bik­un­ar­verk­efnum á vegum borg­ar­inn­ar.

Athugun Við­skipta­ráðs Íslands á útboðum áranna 2017 til 2020, sem gerð var opin­ber fyrr á þessu ári, sýndi svo að hlut­deild Höfða í mal­bik­unar­út­boðum innan Reykja­víkur hafði auk­ist í 91 pró­sent. Aðeins einu sinni af ell­efu vann annað fyr­ir­tækið þess háttar útboð á vegum borg­ar­inn­ar.

Á meðal raka sem sett hafa verið fram fyrir eign­ar­haldi Reykja­vík­ur­borgar á Höfða eru þau að það tryggi sam­keppni, en lengi vel var aðeins eitt annað fyr­ir­tæki fram­leiddi mal­bik á suð­vest­ur­horni lands­ins. Fyr­ir­tækin eru nú orðin þrjú, fyrir utan Mal­bik­un­ar­stöð­ina Höfða.

Ýmsir hag­að­ilar hafa líka skorað á borg­ina að selja fyr­ir­tækið í gegnum tíð­ina. Í lok apríl síð­ast­lið­inn skrif­uðu til að mynda fram­kvæmda­stjórar Sam­taka iðn­að­ar­ins og Við­skipta­ráðs Íslands saman grein í Morg­un­blaðið þar sem þeir hvöttu til þess.

Gera ráð fyrir arð­greiðslum 2025 og 2026

Mal­bik­un­ar­stöðin Höfði velti 1.429 millj­ónum króna á árinu 2020 sem er 450 millj­ónum krónum minna en fyr­ir­tækið velti á árinu 2019. Í árs­reikn­ingi fyr­ir­tæk­is­ins er til­tekið að áhrif af COVID-19 hafi þó ekki verið veru­lega mik­il.

Alls tap­aði Höfði 16,7 millj­ónum króna á árinu 2020 en hafði hagn­ast um 115,7 millj­ónir króna á árinu 2019. Inni í fyr­ir­tæk­inu var umtals­vert óráð­stafað eigið fé um síð­ustu ára­mót, eða alls 1.247 millj­ónir króna. Heildar eigið fé í lok árs 2020 var 1.490 millj­ónir króna en ljóst er að eitthvað hefur gengiuð á það í fyrra og í ár. Sam­kvæmt fjár­hags­á­ætlun Reykja­vík­ur­borgar vegna árs­ins 2022 mun eigin fé Höfða verða 1.079 millj­ónir króna í lok þess árs.

Í inn­gangi Dags B. Egg­erts­son­ar, borg­ar­stjóra Reykja­vík­ur, í grein­ar­gerð sem fylgdi með frum­varpi um fjár­hags­á­ætlun borg­ar­innar fyrir árið 2022 og fimm ára áætlun hennar sem á að gilda til árs­ins 2026, var fjallað um mál­efni Mal­bik­un­ar­stöðv­ar­innar Höfða og greint frá flutningnum í Hafn­ar­fjörð.

Þrátt fyrir að borg­ar­stjóri hafi sagt þar að kostir og gallar þess að selja Mal­bik­un­ar­stöð­ina Höfða yrði skoð­aðir var gert ráð fyrir því í áætl­un­inni að fyr­ir­tæki greiði borg­inni arð árin 2025 og 2026, sam­tals 70 millj­ónir króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár