Púertó Ríkó í algjöru myrkri eftir fellibylinn Maríu

Mikil felli­byla­hrina hefur gengið yfir Karíbahafið undan­farið og valdið miklum usla. Felli­bylurinn María fór þar yfir fyrr í vikunni og heldur áfram að valda miklu tjóni og mannfalli.

Drengur á ferð í Catano í Púertó Ríkó eftir að fellibylurinn María fór fyrir landið.
Drengur á ferð í Catano í Púertó Ríkó eftir að felli­byl­ur­inn María fór fyrir landið. Mynd: EPA

Rafmagns­leysi var algjört í Púertó Ríkó eftir að felli­bylurinn María fór þar yfir í gærmorgun. Afleiðingarnar eru miklar en hvassvirði og úrkoma hefur valdið gríðar­legu tjóni. Óljósar fréttir eru af mannfalli en talið er að í það minnsta 19 hafi látist af völdum felli­bylsins á eyjum Karíbahafsins og margra er enn saknað.

Ríkis­stjóri Púertó Ríkó, Ricardo Rossello, gaf út útivistar­bann sem mun gilda í kvöld og fram á laugar­daginn. Hann segir felli­bylinn vera versta óveður sem skolið hefur á í heila öld á svæðinu en talið er að uppbygging muni taka marga mánuði. Ekki liggur enn fyrir nákvæmlega hver eyði­leggingin er en ljóst er að hún er mikil. Felli­bylurinn nálgast nú Turks- og Caicos-eyjarnarnar.

Kalla eftir hjálp frá alþjóðasamfélaginu

Felli­bylurinn fór yfir karabíska ríkið Dóminíku og olli miklu tjóni og stór­skemmdum seint á mánudaginn síðastliðinn. Minnst 15 manns létust og 20 er saknað. Forsætis­ráðherrann, Roosevelt Skerrit, greindi frá því í sjónvarps­viðtali að krafta­verk væri að ekki hafi farið verr og að fleiri hefðu ekki dáið. Frá þessu er greint á BBC.

Skerrit segir að hann hafi aldrei fyrr séð slíka eyði­leggingu en fjöldi húsa, heimila og skóla hefur verið lagður í rúst. Fjar­skipti eru í ólagi og samkvæmt nýjustu fréttum er stærsti spítali eyjunnar enn án rafmagns. Hann segir jafnframt að nú þurfi eyja­skeggjar á hjálp frá alþjóða­samfélaginu að halda.

Þriðji fellibylurinn á jafnmörgum vikum

Fólk hefur verið duglegt að deila myndum og frásögnum á samfélags­miðlum undir myllu­merkinu #hurricaneMaria.

Þetta er þriðji karabíski felli­bylurinn sem skellur á eftir jafnmargar vikur og er María næst­stærstur af þeim. Í byrjun september fór felli­bylurinn Irma yfir svæðið en hægt er að lesa nánar um hann á Kjarnanum.

María fór á fjórða stig yfir skala frá einum og upp í fimm þegar stóð sem hæst. Mikil flóð hafa orðið, tré rifnað upp með rótum og meira en 10.000 manns leitað skjóls Púertó Ríkó í sérstökum skýlum á miðvikudags­kvöldið. Þetta er stærsti felli­bylurinn til að fara yfir bandaríska jörð í um 90 ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár