Minnst átta hafa farist í kraftmesta Atlantshafsstormi allra tíma

Kraft­mesti Atl­ants­hafs­byl­ur­inn gekk á land í Karí­ba­hafi í gær og í nótt. Hann hefur sótt í sig veðrið und­an­farna sól­ar­hringa. Bylurinn verður eflaust í lægri styrk­leika­flokki þegar hann lendir á Flórída.

Irma er orðinn að kraftmesta fellibyl sem orðið hefur til á Atlantshafi síðan mælingar hófust.
Irma er orð­inn að kraft­mesta felli­byl sem orðið hefur til á Atl­ants­hafi síðan mæl­ingar hófust. Mynd: EPA

Aðeins nokkrum dögum eftir að felli­byl­ur­inn Harvey gekk á land yfir Houston í Texas hefur nýr felli­bylur orðið til og gengið á land. Það er felli­byl­ur­inn Irma sem ógnar byggð í og við Karí­ba­haf.

Irma er þegar orðin að fimmta stigs felli­byl og er kraft­mesti felli­bylur sem orðið hefur til á Atl­ants­hafi síðan mæl­ingar hófust. Vind­hraði byls­ins hefur náð meira en 70 metrum á sek­úndu, en þær mæl­ingar náð­ust áður en storm­ur­inn eyði­lagði mæli­tæki veð­ur­fræð­inga.

[adspot]

Til þess að setja slíkan vind­hraða í sam­hengi við íslenskan raun­veru­leika þá er efsta stig vind­hraða­flokk­unar Veð­ur­stofu Íslands 30 metrar á sek­úndu. Slíkur vind­hraði er kallað stór­viðri og mælst er til þess að fólk sé ekki á ferli. Í gamla vind­stiga­kerf­inu hrað­ari vindur en 32,7 metrar á sek­úndu kall­aður fár­viðri.

Storm­ur­inn gekk á land á kar­ab­ískum eyjum í gær og heldur áfram í átt að Flórída, þar sem Irma mun ná landi um helg­ina. Leið storms­ins er eftir Barbados-eyjum, yfir Dóminíska lýð­veldið, við norð­ur­strönd Kúbu áður en hann tekur stefn­una norður frá Kúbu yfir að Flórída í Banda­ríkj­unum.

Storm­ur­inn hefur þegar ollið miklu tjóni í byggðu bóli. Frétta­stofa Reuters greinir frá því að átta hafi farist í storm­inum á Saint Martin í nótt. Storm­inum fylgdi einnig mikil eyði­legg­ing og flóð. Fulltrúi bæj­ar­ráðs­ins á Saint Martin segir 95 pró­sent af öllu hafa eyði­lagst.

Fylgstu með ferðum Irmu

Á eftir Irmu kemur annar stormur sem hefur fengið nafnið Jose. Ekki er búist við að leið hans liggi um byggð ból eins og leið Irmu. Jose er þegar orð­inn að fyrsta stigs felli­byl undan ströndum Suður-Ameríku. Jose má sjá á kort­inu hér að ofan, merktur styrk­leika sínum.

Sést vel úr geimnum

Stór bylur á borð við Irmu sést vel út um glugga Alþjóð­legu geim­stöðv­ar­innar sem sveimar umhverfis jörð­ina. Þessar myndir birt­ust á vef banda­rísku geim­vís­inda­stofn­un­ar­innar í vik­unni.

Hvernig verða fellibyljir til?

Felli­bylur verður aðeins til við sér­stakar aðstæður í nátt­úr­unni. Felli­bylur verður aðeins til yfir haffleti þar sem hafið er meira en 26 gráðu heitt og þar sem and­rúms­loftið verður hratt kalt eftir því sem ofar dregur.

Kraftur felli­byls­ins verður til við upp­streymi lofts. Upp­streymið verður til vegna þess að hlýja loftið yfir hafflet­inum stígur og kólnar hratt, með þeim afleið­ingum að það fellur aftur, en hlýnar þegar það kemst aftur nærri hafflet­inum.

Kraftur felli­bylja fer yfir­leitt minnk­andi þegar þeir nálg­ast land eða ganga á land. Þá er orku­búið í haf­inu ekki lengur til staðar til að knýja hringrás­ina. Felli­byljir eru flokk­aðir eftir styrk í fimm flokka.

Flokkun fellibylja

Stig Þrýst­ingur í auga Vind­hraði Flóð­bylgja Tjón
1 yfir 980 mb 38-49 m/s undir 1,5 m lítið
2 965-979 mb 49-57 m/s 1,5 til 2,5 all­mikið
3 945-964 mb 57-69 m/s 2,5 til 3,5 mikið
4 920-944mb 67-80 m/s 3,5 til 5,5 mjög mikið
5 undir 920 mb yfir 80 m/s yfir 5,5 fádæma mikið

Búast má við tíðari fellibyljum

Miðað við spár vís­inda­manna og þá þróun sem þegar hefur orðið á lofts­lagi jarðar, þá má gera ráð fyrir að felli­byljir verði tíð­ari í fram­tíð­inni. Ekki nóg með að þeir verði tíð­ari heldur má einnig gera ráð fyrir að þeir verði kraft­meiri.

Ástæðan er að höfin eru að hitna og eins og útskýrt var hér að ofan þá eru þau orku­búr fyrir ofsa­veður af þessu tægi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár