SA kallar eftir aðhaldi í ríkisrekstri

Samtök atvinnu­lífsins segja að bæta þurfi afkomu hins opinbera á næstunni, meðal annars með niður­fellingu sértækra efnahags­aðgerða. Stærsta aðildar­félag samtak­anna vill hins vegar að aðgerðir til umbjóðenda þeirra verði fram­lengdar.

Hús atvinnulífsins í Borgartúni.
Hús atvinnu­lífs­ins í Borg­ar­túni. Mynd: Bára Huld Beck

Mikilvægt er að hið opinbera leggist á eitt og auki aðhald í ríkis­rekstri á næstu árum, segja Samtök atvinnu­lífsins í umsögn sinni um fjármála­stefnu ríkis­stjórnar.

Aðhaldsleysið vandinn

Í umsögninni, sem birtist á vef Alþingis í dag, sögðu samtökin að aðhalds­leysi væri vandinn í ríkis­rekstri. Ekki væri að sjá með skýrum hætti í fjármála­stefnu að ráðist verði í neina hagræðingu eða aðhalds­aðgerðir á næstu árum, þrátt fyrir að gert sé ráð fyrir framleiðslu­spennu í hagkerfinu á næsta ári.

Samkvæmt samtökunum leiðir niður­felling sértækra aðgerða ríkis­stjórnarinnar til minni framleiðslu­spennu, sem styður við peninga­stefnuna. Auk þess væri það mikilvægt að bæta undir­liggjandi afkomu hins opinbera með því að hamla útgjalda­aukningu.

Einnig vilja samtökin að fjár­veitingar ríkisins verði reglulega endur­metnar til að skoða hvort þær nái tilætluðum árangri. Með því væri hægt að stuðla að auknu samhengi á milli markmiða­setningar annars vegar og fjár­veitinga og gagna­drifinni ákvarðana­töku hins vegar.

Allir vinna framlengt

Samtök iðnaðarins, sem er lang­stærsta aðildar­félag SA, kölluðu eftir auknum útgjöldum hins opinbera til byggingarfamleiðslu og viðhalds í gegnum fram­lengingu átaksins „allir vinna“ í umsögn sinni í síðustu fjárlögum. Fjármála­ráðuneytið varaði hins vegar við slíkri fram­lengingu, þar sem það fæli í sér innspýtingu á fjármagni í þegar þanið hagkerfi.

Fram­lengingunni var þó bætt við fjár­laga­frumvarpið eftir að efnahags- og viðskipta­nefnd Alþingis mældi með henni. Búist er við að afkoma ríkis­sjóðs verði sjö milljörðum króna verri vegna hennar.

Í umsögn Samtaka atvinnu­lífsins um fjármála­áætlunina var minnst á að hagspár og afkomu­spár hins opinbera hefðu tilhneigingu til að verða of bjartsýnar. Því til stuðnings bentu þau á að hagvöxtur í Evrópu­sambands­löndum frá 1998 til 2019 var að meðaltali prósentu­stigi minni en áætlanir gerðu ráð fyrir, en samkvæmt þeim er tregða til að aðlaga rekstrar­niðurstöðu hins opinbera að breyttum veruleika, sem geti leitt til bjögunar í átt að viðvarandi rekstrar­halla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár