Uppáhaldsbókin mín þessa dagana er Pönnukökutertan. Ég veit ekki hvernig það kemur út fyrir konu sem vill láta taka sig alvarlega. Pönnukökutertan fjallar um Pétur og köttinn hans, Brand, sem á afmæli þrisvar á ári – því það er skemmtilegra þannig. Og ruglið sem þeir lenda í þegar þeir eru að reyna að baka pönnukökutertu á einum af afmælisdögum Brands. Hún uppfyllir allar kröfur sem ég geri til bóka þessa dagana: hún er fallega myndskreytt, hæfilega löng og fjallar hvorki um prinsessur né prinsa. Bara hæfilega ringlaðan karl í sænskri sveit. Um síðustu helgi varð hún síðan eldri dóttur minni innblástur til þess að baka pönnukökutertu handa litlu systur sinni. Ekki að hún hafi átt afmæli eða neitt. Og þó?
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.

















































Athugasemdir