Landsvirkjun hækkar raforkuverð um 2,5 prósent

Heild­söluverð á raforku hjá Lands­virkjun mun hækka um 2,5 prósent um næstu áramót.

Lands­virkjun hefur gefið út heild­söluverð fyrir árið 2020 og mun raforku­verð hækka um 2,5 prósent milli ára. Lands­virkjun hafði áður tilkynnt að raforku­verð myndi taka mið af verðlags­breytingum en hefur nú fallið frá þeirri ákvörðun í því skyni að vera í takti við lífs­kjara­samningana og hefur fyrir­tækið því ákveðið að draga úr verð­hækkunum næsta árs. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lands­virkjun.

Viðskipta­vinir Lands­virkjunar á heild­sölumarkaði eru nú átta talsins en þeir selja raforkuna áfram til heimila og almennra fyrir­tækja. Raforku­verð frá Lands­virkjun er að meðaltali um fjórðungur af endanlegum rafmagns­reikningi heimil­anna. Við það bætist álagning sölu­fyrirtækja, flutningur, dreifing og virðis­aukaskattur.

Samkvæmt Lands­virkjun hefur heild­söluverð frá Lands­virkjun hækkað minna en verðlag undan­farin ár. Heild­söluverð Lands­virkjunar sem hlutfall af rafmagns­reikningi heimil­anna hefur lækkað úr tæpum þriðjungi í fjórðung á síðustu 10 árum, farið úr 30 prósent árið 2008 í 26 prósent árið 2018.

„Í takti við lífs­kjara­samningana hefur Lands­virkjun ákveðið að verð í heild­sölu­samningum fyrir­tækisins hækki ekki umfram 2,5 prósent á árinu 2020. Það er í samræmi við stefnu fyrir­tækisins sem hefur lagt áherslu á hóflegar verð­hækkanir til raforku­fyrirtækja sem selja rafmagn áfram til almennings undan­farin ár, ,“ segir í tilkynningunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár