Lítið um að heimili skipti um söluaðila raforku

Heim­il­is­not­endur hafa lítið nýtt sér frelsi í sölu raf­orku til að lækka hjá sér raf­orku­kostnað sam­kvæmt nýrri skýrslu. Atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið hefur lagt fram breyt­ingar á reglu­gerð sem auð­velda neyt­endum að skipta um sölu­að­ila.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra Mynd: Bára Huld Beck

Íslensk heim­ili hafa lítið nýtt sér frelsi í sölu raf­orku til að lækka hjá sér raf­orku­kostnað en talið er að það sé vegna þess hve lít­ill kostn­að­ur­inn er við raf­orku­kaup. Verk­fræði­stofan EFLA telur hins vegar að mik­il­vægt sé að stjórn­völd hvetji heim­il­is­not­endur til að vera virk á raf­orku­mark­aði til að veita sölu­fyr­ir­tækjum verð­að­hald. 

Í drögum að nýrri reglu­gerð atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­is­ins um raf­orku­við­skipti sem birt hefur verið til umsagnar í sam­ráðs­gátt stjórn­valda er meðal ann­ars nánar kveðið á um rétt neyt­enda til að skipta um raf­orku­sala.

Aukin neytendavernd á raforkumarkaði

Í reglu­gerð­ar­drög­unum segir að mark­mið breyttrar reglu­gerðar sé að efla neyt­enda­vernd á sviði raf­orku­mála en breyt­ing­arnar eru í sam­ræmi við auknar áherslur á neyt­enda­vernd í þriðju raf­orku­til­skipun Evr­ópu­sam­bands­ins.

Meðal þess sem tekið er fyrir í reglu­gerð­inni er tryggður réttur neyt­enda til að velja sér raf­orku­sala á hverjum tíma, ásamt breyt­ingum sem auð­velda not­enda­skipti með raf­rænum hætti og stytta fresti þegar kemur að rétti not­anda til að segja upp sölu­samn­ingi. [adspot]

Reglu­gerðin er í sam­ræmi við nið­ur­stöður nýlegrar skýrslu frá verk­fræði­stof­unni EFLU, um raf­orku­verð og þróun sam­keppni á raf­orku­mark­aði. Þar kemur meðal ann­ars fram að ein leið til að skoða hve virkur mark­aður er með raf­orku sé að horfa á fjölda söluað­ila­skipta en sam­kvæmt skýrsl­unni er tiltölulega lítið um söluað­ila­skipti hér á landi, sérstak­lega hvað varðar heim­il­is­not­endur.

Virkni á raforkumarkaði veitir sölufyrirtækjum verðaðhald

Á árinu 2017 voru söluað­ila­skiptin hjá heim­ilum um 370 en heild­ar­fjöldi íbúða á land­inu er um 140 þúsund. Lítið er því um að heim­ili færi sig á milli sölufyr­ir­tækja raf­orku en sam­kvæmt EFLU er það vegna þess að raf­orku­notkun heim­ila er lítil eða að með­al­tali um 4.500 kWh/ári og árleg orku­kaup því á bil­inu 33 til 36 þúsund krónur.

Þá kemur fram í skýrsl­unni að sparn­aður við sölu­að­ila­skipti í dag eru að hámarki um þrjú þúsund krónur á ári og ávinn­ing­ur­inn af skiptum því fremur lítill. EFLA telur hins vegar að mik­il­vægt sé að hvetja heim­il­is­not­endur raf­orku til að vera virkir á raf­orku­mark­aði þar sem það auki sam­keppni og veiti sölu­fyr­ir­tækjum verð­að­hald.

Reikna með aukinni raforkunotkun á næstu tíu árum

Í reglu­gerð­ar­drög­unum er einnig lagðar auknar skyldur um neyt­enda­vernd á sölu­fyr­ir­tæki og dreifi­veitur. Þeim er skylt að upp­lýsa neyt­endur um rétt sinn, leið­beina þeim með aðgengi­legum og sýni­legum hætti, og gæta jafn­ræðis í hví­vetna þannig að ekki sé til dæmis vakin athygli not­enda á einu sölu­fyr­ir­tæki umfram annað.

Að sama skapi er með breyt­ingum á reglu­gerð­inni liðkað fyrir aðkomu nýrra aðila á smá­sölu­markað raf­orku en sam­kvæmt ráðu­neyt­inu er það mik­il­vægur liður í því að efla sam­keppni á raf­orku­mark­aði með hags­muni neyt­enda að leið­ar­ljósi.

[links] Jafn­framt eru við­skipti með hleðslu­stöðvar raf­orku gerð auð­veld­ari í nýju reglu­gerð­inni en sam­kvæmt nýrri raf­orku­spá Orku­stofn­unar fyrir árin 2019 til 2050 hafa orku­skipti í sam­göngum gengið heldur hraðar fyrir sig að und­an­förnu en gert var ráð fyrir og því reiknar stofn­unin með auk­inn­i raf­orku­notk­un heim­ila vegna raf­magns­bíla á tíma­bil­inu 2020 til 2030.

Í spá Orku­stofn­unar er gert ráð fyrir aukn­ingu í raf­orku­notkun heim­il­anna um 130 GWH við lok spá­tíma­bils­ins og að raf­orku­notkun í sam­göngum verði alls rúm 1 TWh árið 2050.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár