Raforkunotkun minni en spáð var

Raf­orku­notkun stórnot­enda og almennra not­enda var minni í fyrra en raf­orku­spá Orku­stofn­unar gerði ráð fyrir. Ný raf­orku­spá telur að orku­notkun á heim­ilum og í þjón­ustu auk­ist á árunum 2020 til 2030 vegna mun hrað­ari orku­skipta í sam­göngum.

Stórnot­endur og almenn­ingur not­aði minna af raf­orku í fyrra en raf­orku­spá Orku­stofn­unar frá 2015 gerði ráð fyrir. Mest munar þar um verk­smiðju United Silicon sem ekki var í rekstri 2018. Alls var raf­orku­vinnsla á land­inu 19.830 GWh sem er 283 GWH minni en spáin var. Auk þess voru flutn­ings­töp hlut­falls­lega minni en gert var ráð fyrir árið 2015 sem og heild­ar­á­lag á kerfið.

Þetta kemur fram í nýrri raf­orku­spá fyrir árin 2019 til 2050 sem unnin er af orku­spár­nefnd Orku­stofn­unar. Nefndin hefur nú end­ur­reiknað raf­orku­spánna frá 2015 út frá nýjum gögnum og breyttum for­sendum.

Frávik vegna breyttrar raforkunotkunar gagnavers Advania

Stórnot­endur not­uðu minna af raf­orku í fyrra en gert var ráð fyrir í raf­orku­spá 2015. Notkun stórnot­enda var 15.260 GWh sem 129 GWh minna en spáin gerði ráð fyrir. Þar mun­aði mest um verk­smiðju United Silicon sem ekki var í rekstri 2018 en orku­notkun verk­smiðj­unnar og PCC Bakka var 534 GWh minni en gert var ráð fyrir í spánni.

Í skýrslu nefnd­ar­innar segir að auk þess hafi það haft áhrif að gagna­ver Advania fór úr því að vera almennur not­andi orku yfir í stórnot­enda. Ef sú breyt­ing hefði ekki komið til þá hefði frá­vik spár­innar um notkun stórnot­enda verið mun meira eða um 558 GWh.

Afhend­ing frá dreifi­kerf­inu, sem eru almennir not­endur, var um 160 GWh minni en 2015 spáin gerði ráð fyrir. Ef ekki hefði komið til til­flutn­ingur gagna­vers Advania frá dreifi­kerf­inu yfir í flutn­ings­kerfið hefði almenn notk­unin verið rúm­lega 270 GWh meiri en 2015 spáin gerði ráð fyrir.[adspot]

Notkun gagnavera meiri en spáð var

Nokkur upp­bygg­ing gagna­vera hefur átt sér stað hér á landi á und­an­förnum árum og eru fjögur þeirra nú það stór að þau telj­ast sem stórnot­endur. Því hefur notkun gagna­vera á orku auk­ist veru­lega frá 2015 spánni. Sú notkun er að stærstum hluta tekin frá flutn­ings­kerf­inu, sem er aðeins fyrir stórnot­endur, en hún var alls 500 GWh meiri í fyrra en raf­orku­spáin gerði ráð fyrir.

Á árinu 2022 er gert ráð fyrir að þrjú gagna­ver tengd flutn­ings­kerf­inu noti um 1.200 GWh í orku og 140 MW í afli. Síðan eru önnur gagna­ver sem fá orku frá dreifi­kerf­inu. Vitað er um slíka notkun sem er að koma inn á kerfið á Suð­ur­nesjum og var tekið til­lit til þeirrar aukn­ingar í spánni.

Orkuskipti í samgöngum gengið hraðar fyrir sig

Nýja raf­orku­spáin fjallar um raf­orku­notkun hér á landi fram til árs­ins 2050 en spáin byggir meðal ann­ars á for­sendum um mann­fjölda, fjölda heim­ila, lands­fram­leiðslu og fram­leiðslu ein­stakra atvinnu­greina. Nokkrar breyt­ingar eru á nýju raf­orku­spánni en þar hefur ný mann­fjölda­spá frá 2018 veru­leg áhrif.

Á árunum 2019 til 2038 er aukn­ing í fólks­fjölda meiri en í spánni frá 2015. Frá árinu 2029 til 2050 á fólks­fjöld­inn hins vegar að vera minni en spáð var og síðan mestur í lok tíma­bils­ins. Aukinn fólks­fjöldi kallar á aukna raf­orku­notkun sér­stak­lega á heim­ilum og í þjón­ustu en áhrifin eru öfug við minni fólks­fjölda.

Jafn­framt hafa orku­skipti í sam­göngum gengið heldur hraðar fyrir sig að und­an­förnu en gert var ráð fyrir í raf­orku­spánni 2015. Því er reiknað með auk­inni raf­orku­notkun heim­ila vegna raf­magns­bíla á tíma­bil­inu 2020 til 2030. Í nýju spánni er gert ráð fyrir aukn­ingu um 130 GWH við lok spá­tíma­bils­ins en raf­orku­notkun í sam­göngum verður alls rúm 1 TWh árið 2050

Á árunum 2021 til 2030 er spáð aukn­ing í dreifi­kerf­inu (almennir not­endur) á bil­inu 2,0 til 2,8 pró­sent, sem stafar að hluta til að orku­skiptum í sam­göngum. Þegar til lengri tíma er litið er búist við að notk­unin auk­ist minna og verði um 2 pró­sent á ári fram til árs­ins 2040 og aukn­ing minnki síðan og verði 1,1 pró­sent í lok spá­tíma­bils.

Lesa má skýrsl­una í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár