Ræddi auknar reglur um starfsemi lífeyrissjóða

Aukin áhættu­sækni lífeyris­sjóðanna vegna lágra vaxta og misræmi í líftíma eigna þeirra og skulda gæti verið ógn við fjármála­stöðugleika, að mati Seðla­bankans.

Húsnæði Seðlabanka Íslands.
Húsnæði Seðla­banka Íslands. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Fjármála­stöðugleika­nefnd Seðla­bankans ræddi hvort setja þurfi stífari ramma um starfsemi lífeyris­sjóða á ársfjórðungs­lega fundi sínum í desember í fyrra. Nefndin taldi aukna áhættu­sækni vegna lágra vaxta og misræmis í líftíma eigna og skuld­bindinga þeirra geta verið ógn við fjármála­stöðugleika. Þetta kemur fram í fundar­gerð nefndarinnar, sem birt var fyrr í vikunni.

Lágir vextir og misræmi eigna og skulda

Samkvæmt fundar­gerðinni að lágvaxta­umhverfið gæti skapað nýjar áskoranir fyrir lífeyris­sjóðina sem séu kerfis­lega mikil­vægir, sérlega ef ávöxtunar­viðmið þeirra eru fyrir ofan áhættu­lausa vexti í hagkerfinu í lengri tíma.

Þessa stundina eiga lífeyris­sjóðirnir að miða við 3,5 prósenta ávöxtun lífeyris­greiðslna og iðgjalda umfram verðbólgu, samkvæmt reglugerð. Hins vegar eru áhættu­lausir vextir nokkuð lægri, en til viðmiðunar er ávöxtunar­krafa verð­tryggðum ríkis­skulda­bréfum til lengri tíma í kringum 1 prósent.

Á fundinum var einnig minnst á að meðal­líftími skuld­bindinga sjóðanna tvöfaldur líftími eignanna. Slíkt misræmi á milli eigna og skulda, til viðbótar við hátt ávöxtunar­viðmið í lágvaxta­umhverfi, telur nefndin geta aukið áhættu­sækni sjóðanna og minni vilja til að binda fjármagn í öruggari innlendri fjár­festingu.

Þetta gæti verið bæði ógn fyrir gjaldeyris­markaðinn og lausafjár­stöðuna í fjármála­kerfinu, að mati nefndarinnar, þar sem lífeyris­sjóðirnir eiga um og yfir helming af öllum útgefnum verð­bréfum.

Lækkun viðmiðs engin töfralausn

Nefndin bætti þó við að ekki væri einsýnt að lækkun ávöxtunar­viðmiðs myndi leysa þennan vanda, þótt slík aðgerð væri vissulega einföld, þar sem hún hefði ýmis afleidd áhrif.

Verði viðmiðið lækkað myndi reiknuð eigna­staða sjóðanna umfram skuld­bindingar þeirra lækka, þar sem búist yrði við minni ávöxtun á fjár­festingum þeirra í fram­tíðinni. Samkvæmt nefndinni gæti þessi staða sjóðanna lækkað um 7 til 10 prósent ef ávöxtunar­viðmið þeirra verður lækkað úr 3,5 prósentum í 3 prósent.

Skoða hvort þurfi stífari ramma

Samkvæmt fundar­gerðinni þyrftu lífeyris­sjóðirnir að taka mið af stöðu þeirra sem ráðandi fjárfesta hér á landi og að þeir væru kerfis­lega mikil­vægir, en eignir þeirra árið 2019 voru 178 prósent af lands­framleiðslu.

„Rætt var um að skoða hvort þurfi að setja stífari ramma um starfsemi sjóðanna og víkka út stýritæki fjármála­stöðugleika svo að þau nái betur yfir starfsemi,“ stóð svo í fundar­gerðinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár