Hefur áhyggjur af eignabólu en vill ekki grípa inn í strax

Fjár­mála­stöð­ug­leika­nefnd Seðla­bank­ans seg­ist hafa augun opin fyrir eigna­bólu og óhóf­legri skulda­söfnun, en telur ekki rétt að grípa strax inn í á lána­mark­aði.

Fjármálastöðugleikanefnd SÍ
Fjár­mála­stöð­ug­leika­nefnd SÍ Mynd: Seðlabanki Íslands

Nefnd­ar­menn fjár­mála­stöð­ug­leika­nefndar Seðla­bank­ans hafa fylgst með hugs­an­legri eigna­bólu á hús­næð­is­mark­aði og óhóf­legri skulda­söfnun vegna vænts skorts á hús­næð­is­fram­boði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á síð­ustu mán­uðum. Þrátt fyrir áfram­hald­andi sam­drátt í íbúða­bygg­ingu telur nefndin ekki ástæðu til að þrengja að lána­skil­yrðum bank­anna þessa stund­ina.

Reiðubúin að þrengja að á lánamarkaði

Samkvæmt fund­ar­gerð nefnd­ar­innar síð­ast­lið­inn des­em­ber­mánuð vænti hún þess að hús­næð­is­skortur væri yfir­vof­andi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Hún bætti þó við að verð­hækk­anir væru enn hóf­legar og ekki hefðu komið fram vís­bend­ingar um óheil­brigðan skulda­vöxt. Aftur á móti væru nefnd­ar­menn sam­mála um að komi fram merki um annað væri nefndin til­búin að beita þeim tækjum sem hún hefur yfir að ráða á lána­mark­aði til að draga úr líkum á eigna­bólu.

Eitt þess­ara tækja er svo­kall­aður sveiflu­jöfn­un­ar­auki bank­anna, en með hækkun hans hækka eig­in­fjár­kröfur þeirra, sem dregur úr mögu­leikum þeirra til að gefa út ný lán.

Á fundi nefnd­ar­innar í des­em­ber síð­ast­liðnum var ákveðið að halda sveiflu­jöfn­un­ar­auk­anum óbreyttum í 0%, þar sem ekki væru komin fram skýr merki um að sveiflu­tengd kerf­is­á­hætta væri að aukast á nýjan leik, þrátt fyrir skulda­vöxt heim­ila og hækk­andi fast­eigna­verð.

Hækkandi verð en tækjum ekki beitt

Síðan þá hefur vísi­tala íbúða­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu haldið áfram að hækka, en í lok febr­úar var árs­hækk­unin um 3,1 pró­sent umfram verð­bólgu.

[links]Á sama tíma hefur dregið mjög úr fjölda íbúða í bygg­ingu, líkt og Kjarninn hefur greint frá, en ekki hafa verið jafn­fáar íbúðir í bygg­ingu í fjögur ár, sam­kvæmt nýj­ustu taln­ingu Samtaka iðn­að­ar­ins.

Þrátt fyrir hækk­andi íbúða­verð og minnk­andi fram­boð ákvað fjár­mála­stöð­ug­leika­nefndin að halda sveiflu­jöfn­un­ar­auk­anum óbreyttum á fundi sínum á mánu­deg­inum í þess­ari viku. Í minn­is­blaði sem nefndin not­aði til stuðn­ings ákvörðun sinni kom fram að þrátt fyrir að verð­hækk­an­irnar væru háar í sögu­legu sam­hengi væru þær í sam­ræmi við hækkun launa­vísi­tölu á sama tíma. Ekkert var minnst á minnk­andi fram­boð íbúða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Seðlabanki

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár