Mynd: Úr safni

Erlendir fjárfestar pökkuðu saman og fluttu 115 milljarða úr landi

Fjár­magns­flótti hefur verið frá Íslandi síð­asta hálfa árið. Þá hafa erlendir fjár­festar sem áttu hér eignir, meðal ann­ars hluta­bréf í banka, farið út með 92,6 millj­arða króna umfram það sem erlendir fjár­festar hafa fjár­fest hér.

Hrein nýfjár­fest­ing á Íslandi á síð­asta ári var nei­kvæð um 57 millj­arða króna. Á fyrstu þremur mán­uðum yfir­stand­andi árs þá var hún nei­kvæð um 58 millj­arða króna. Sam­an­lagt hafa því erlendir fjár­festar farið með 115 millj­arða króna út úr íslensku hag­kerfi á 15 mán­uðum umfram það sem erlendir fjár­festar hafa komið með inn í það.

Þetta kemur fram í nýju Fjár­mála­stöð­ug­leika­riti Seðla­banka Íslands sem birt var í dag.

Fjár­magns­flótti erlendra fjár­festa frá Íslandi er skoll­inn á. Og þorri fjár­mun­anna leit­uðu út úr hag­kerf­inu á síð­asta hálfa árinu. Frá októ­ber í fyrra og til loka mars voru hreinar nýfjár­fest­ingar nei­kvæðar um 92,6 millj­arða króna.

Höft í rúmlega áratug

Á Íslandi voru sett fjár­magns­höft í nóv­em­ber 2008 til að koma í veg fyrir að umfangs­miklar krónu­eignir, meðal ann­ars í eigu kröfu­hafa fall­inna banka, væri ekki skipt yfir í aðra gjald­miðla með til­heyr­andi áhrifum á íslensku krón­una. Höftin voru svo losuð að mestu í mars 2017, en ekki að öllu leyti. Enn var til staðar svokölluð bindi­skylda. Sam­kvæmt henni var erlendum fjár­festum gert að festa fimmt­ung af fjár­magni sínu hér til lengri tíma, en með því varð Ísland að óálit­legri kosti fyrir fjár­fest­ingar erlendis frá. Bindi­skyldan var svo afnumin í mars 2019.

Bindi­skyldan kom í veg fyrir að þeir erlendu aðilar sem áttu fjár­fest­ingar hér­lendis, til dæmis í rík­is­skulda­bréfum eða hluta­bréfum skráðra félaga, seldu þær eignir og færu. Þar var að uppi­stöðu um að ræða fjár­festa sem áttu eignir með rætur í banka­hrun­inu. Um var að ræða til dæmis aflandskrónu­eig­endur eða erlendu sjóð­ina sem áttu kröfur á Kaupþing og breyttu þeim í hlutafé í Arion banka.

Inn­byggður hvati var til að halda fjár­fest­ing­unum hér­lendis á meðan að bindi­skyldan var við lýði. Fyrstu tvo mán­uð­ina eftir að hún var afnumin virt­ist sem að þessi breytta staða myndi stuðla að jákvæðri þróun fyrir íslenskt hag­kerfi. Hrein nýfjár­fest­ing erlendra aðila hér­lendis var jákvæð um 25 millj­arða króna. Á öllu árinu 2019 var hún jákvæð um 30 millj­arða króna.

Fjármagnsflótti brestur á

Á fyrstu fimm mán­uðum árs­ins 2020 var hrein nýfjár­fest­ing erlendra aðila hér­lendis svo nei­kvæð um fimm millj­arða króna. Í lok þess tíma­bils var kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn búinn að herja á Ísland í þrjá mán­uði. Í Fjár­mála­stöð­ug­leika­riti Seðla­bank­ans sem kom út í byrjun júlí í fyrra segir að þessi tala bendi til þess að „engin merki hafa verið um fjár­magns­flótta frá land­inu en frá því að far­sóttin náði útbreiðslu hér á landi hefur hrein skráð nýfjár­fest­ing verið jákvæð um 2 ma.kr.“

Þessi staða breytt­ist hratt á seinni hluta árs­ins 2020. Og enn hraðar á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins 2021.

Alls flæddu út 52,2 millj­arðar króna í eigu erlendra fjár­festa umfram það sem var nýfjár­fest hér­lendis frá júnílokum og út des­em­ber 2020. Inn­flæðið var 19,3 millj­arðar króna en útflæðið 67,9 millj­arðar króna.

Mest mun­aði um sölu eins skulda­bréfa­sjóðs, Blue Bay Asset Mana­gement, á rík­is­skulda­bréfum sem hann átti, en sjóð­ur­inn átti í upp­hafi árs í fyrra um helm­ing allra rík­is­bréfa í eigu erlendra aðila og los­aði um alla stöð­una á árinu 2020. Sam­an­lagt skil­aði þessi staða því að hrein nýfjár­fest­ing á Íslandi var nei­kvæð um 57 millj­arða króna alls í fyrra.

Aflandskrónur lækkuðu um helming

Þessi þróun hefur haldið áfram í ár. Í Fjár­mála­stöð­ug­leika­riti Seðla­bank­ans sem birt var í dag segir að „hrina fjár­magns­út­flæðis“ hafi hafi haf­ist í fyrra­haust þegar nokkrir erlendir aðilar sem áttu stórar verð­bréfa­stöður hér­lendis, tóku að selja auð­selj­an­legar krónu­eignir sínar og síðar meir inn­lend verð­bréf. „Á tíma­bil­inu sept­em­ber 2020 - mars 2021 los­uðu erlendir aðilar um 29 ma.kr. af rík­is­bréfum, 23 ma.kr. af aflandskrónum (inn­stæðu­bréf CBI 2016 fyrst og fremst) en einnig hluta­bréf fyrir 62 ma.kr. og fluttu and­virðið úr landi. Á sama tíma keyptu líf­eyr­is­sjóðir gjald­eyri fyrir 31 ma.kr., að megn­inu til í sept­em­ber og októ­ber.“

Aflandskrónur lækk­uðu um helm­ing á síð­asta ári, að megn­inu til undir lok árs. Fram að því hafði staða þeirra lítið sem ekk­ert breyst frá því að losað var um bindi­skyld­una vorið 2019.

Alls var hrein nýfjár­fest­ing nei­kvæð um 58 millj­arða króna á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins 2021. Útflæðið þar stafar fyrst og fremst af sölu stærstu erlendu eig­enda Arion banka, aðal­lega vog­un­ar­sjóð­anna Taconic Capital Advisors og Sculptor Capital Mana­gement, á hlut sínum í bank­anum. Þeir seldu um þriðj­ungs­hlut sinn í bank­anum á örfáum vikum fyrir um 60 millj­arða króna.

Lítill áhugi erlendis frá á íslenskum hlutabréfum

Ef bara er horft á áhuga erlendra fjár­festa á skráðum hluta­bréfum þá virð­ist hann ekki vera mik­ill. Frá byrjun árs í fyrra hefur inn­flæði verið 10,3 millj­arðar króna en erlendir fjár­festar á sama tíma selt hluta­bréf fyrir 89 millj­arða króna.

Þetta ger­ist á sama tíma og íslenski hluta­bréfa­mark­að­ur­inn hefur verið afar líf­legur. Frá því að úrvals­vísi­tala Kaup­hall­ar­innar náði lág­gildi í mars í fyrra hefur hún hækkað um 82 pró­sent. Á fyrstu þremur árum yfir­stand­andi árs hækk­aði hún um 13 pró­sent. Það félag sem hefur leitt hækk­un­ina á árinu 2021 er Arion banka, félagið sem erlendu fjár­fest­arnir hafa verið að selja sig hratt niður í. Bankinn hefur hækkað um 32 pró­sent á þremur mán­uðum.

Ef horft er á eign­ar­hald erlendra aðila í öðrum auð­selj­an­legum eignum (aðal­lega rík­is­bréf og inn­stæður) en hluta­bréfum þá áttu útlend­ingar 237 millj­arða króna í slíkum eignum í lok árs 2019. Umfang þeirra í lok febr­úar var 161 millj­arður króna og því hafa 76 millj­arðar króna seytlað út.

Í Fjár­mála­stöð­ug­leika­rit­inu segir að í lok mars hafi erlendir aðilar áttu um fjögur pró­sent af heild­ar­út­gáfu rík­is­bréfa, sem sé lágt í sögu­legu til­liti og í erlendum sam­an­burði.

Til að koma í veg fyrir að krónan falli hratt þegar fjár­magns­út­flæði er mikið á skömmum tíma þá kaupir Seðla­bank­inn krónur á móti. Gjald­eyr­is­vara­forði hans var 857 millj­arðar króna í lok mars síð­ast­lið­ins og í rit­inu segir að hann sé „nægj­an­legur miðað við helstu forða­við­mið þrátt fyrir nokk­urt fjár­magns­út­flæði und­an­farin miss­eri.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Seðlabanki

Mest lesið undanfarið ár