Mynd: Úr safni

Krónan í höftum: Bjargvættur í fangelsi

Íslenska krónan, gagn hennar og lestir, er eitt helstu þrætu­epli íslenskrar þjóðar. Frá ald­ar­mótum hafa farið fram þrjár mis­mun­andi til­raunir í að stýra henni þannig að gagn­semi krón­unnar sé sem mest, en að lestir þessa örgjald­mið­ils sjá­ist sem minnst.

Banka­hrunið haustið 2008 eru mestu ham­farir af manna­völdum sem orðið hafa á Íslandi. Það hafði gríð­ar­leg, og umfangs­mikil, áhrif á mörg svið sam­fé­lags­ins. Það orsak­aði að krónan veikt­ist um tugi pró­senta, að verð­bólga fór í 18,6 pró­sent um tíma, stýri­vextir í 18 pró­sent, atvinnu­leysi í tveggja stafa tölu, rík­is­sjóður fór úr því að vera nær skuld­laus í að verða nær gjald­þrota, skuldir heim­ila marg­föld­uð­ust, skattar voru hækk­að­ir, sparn­aður tap­að­ist, neyð­ar­lög tóku gildi, fjár­magns­höft voru sett, Íslands þurfti að leita til Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins eftir aðstoð og allt traust milli almenn­ings og stofn­ana sam­fé­lags­ins hvarf.

Stærstu ástæð­una fyrir þess­um afleið­ingum, sem íslenskur almenn­ingur þurfti að axla, var að finna í atferli íslenskra banka, og þeirra sem stjórn­uðu þeim. Það sem ýkti afleið­ing­arnar veru­lega var íslenska krónan.

Enginn annar kostur en að reisa múra

Íslenska krónan hríð­féll á árinu 2008. Á örfáum mán­uðum fór staða íslenskra laun­þega frá því að vera með há laun í öllum alþjóð­legum sam­an­burði í nákvæm­lega hina átt­ina. Inn­fluttar vörur og þjón­usta og utan­lands­ferðir urðu miklu dýr­ari en áður. Þau íslensku heim­ili sem höfðu tekið mynt­körfu­lán til að kaupa sér bíla eða jafn­vel hús­næði sáu lánin stökk­breyt­ast. Sömu sögu er að segja um fyr­ir­tæki sem höfðu tekjur í íslenskum krónum en höfðu ákveðið að skuld­setja sig í öðrum gjald­miðlum. Og sveit­ar­fé­lög.

Seðla­banki Íslands hafði lánað nær allan aðgengi­legan gjald­eyr­is­vara­forða sinn, alls 500 millj­ónir evra, til Kaup­þings 6. októ­ber 2008, í þeirri von að hann myndi hjálpa bank­anum að lifa af. Af því varð ekki og Kaupþing for í þrot nokkrum dögum síðar. Árni M. Mathiesen, þáver­andi fjár­mála­ráð­herra, lýsti því þannig í bók sem hann gaf út fyrir nokkrum árum um banka­hrunið og afleið­ingar þess, og kall­að­ist Frá banka­hruni til bylt­ingar, að Seðla­bank­inn hafi „látið Kaup­þing hafa allan gjald­eyr­is­forð­ann sem þeir voru með hér heima þannig að það voru engir pen­ingar eftir í Seðla­bank­an­um“.

Seðla­bank­inn var því ekki í stöðu til að standa við bakið á íslensku krón­unni. Hann átti ekki pen­ing til þess. Umleit­anir um nægj­an­lega digrar lána­línur til að laga þá stöðu skil­uðu ekki við­un­andi árangri.

Eftir banka­hrunið var gengi krónu fest tíma­bundið og í nóv­em­ber 2008 voru sett upp fjár­magns­höft. Fyrir því voru nokkrar ástæður. Sú helsta var að koma í veg fyrir að umfangs­miklar krónu­eignir, meðal ann­ars í eigu kröfu­hafa fall­inna banka, væri ekki skipti yfir í aðra gjald­miðla með til­heyr­andi búsifjum og geng­is­falli fyrir Ísland.

Með upp­setn­ingu haft­ana var líka verið að kaupa tíma og ráð­rúm til að end­ur­skipu­leggja íslenskt efna­hags­líf á for­sendum Íslend­inga. Það var ekki víst að það myndi takast á þeim tíma, né að þær for­dæma­lausu aðgerðir sem Íslend­ingar höfðu gripið til í kringum banka­hrunið myndu halda, en við blasti að það þyrfti að reyna.

Höftin þýddu þó að til­raunin um að láta íslensku krón­una vera óhindr­aðan og fljót­andi þátt­tak­anda á alþjóð­legum gjald­eyr­is­mark­aði var lokið. Þau voru auk þess í and­stöðu við alþjóða­skuld­bind­ingar Íslands, meðal ann­ars þær sem landið hafði und­ir­geng­ist við gild­is­töku EES-samn­ings­ins.

En krónan hafði sokkið og þurfti björg­un­ar­hring til að lifa af.

Höftin, sem má lýsa eins og fang­elsi fyrir fjár­magns­flutn­inga, varð sá bjarg­vættur.

Neyðarrétti beitt í fyrsta sinn

Þann 6. októ­ber 2008 beitti vest­ræn þjóð í fyrsta og eina sinn neyð­ar­rétti til að koma í veg fyrir að fall þriggja banka gæti dregið heilt þjóð­fé­lag niður í eitt alls­herj­ar­gjald­þrot.

Í neyð­ar­lög­unum fólst, í grófum dráttum, að kröfu­hafaröð var breytt með þeim hætti að inn­stæður voru settar framar skulda­bréfum og öðrum kröfum. Ekki ein­ungis voru það inn­stæður ein­stak­linga sem fengu þessa með­ferð. Inn­stæður fjár­mála­fyr­ir­tækja í formi heild­sölu­inn­lána eða pen­inga­mark­aðs­lána fengu hana einnig. Því var um að ræða mjög háar fjár­hæðir.

Geir H. Haarde, þáverandi forsætisráðherra, greindi þjóðinni frá neyðarlögunum í sjónvarpsávarpi 6. október 2008. Og bað í lok þess guð að blessa Ísland.
Geir H. Haarde, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, greindi þjóð­inni frá neyð­ar­lög­unum í sjón­varps­ávarpi 6. októ­ber 2008. Og bað í lok þess guð að blessa Ísland.

Íslenskar inn­stæður voru svo fluttar í nýja inn­lenda banka sem reistir voru á grunni þeirra gömlu. Með þessu færð­ust „íslensk“ lán heim­ila og atvinnu­lífs til þeirra, þó að ýmsar til­færslur ættu eftir að eiga sér stað á milli þrota­búa gömlu bank­anna og þeirra nýju mán­uð­ina eftir. Með þess­ari risa­stóru aðgerð töp­uðu erlendir kröfu­hafar um 7.134 millj­örðum króna sem þeir höfðu lánað íslenskum bönkum og öðrum fyr­ir­tækjum, sam­kvæmt tölum frá Seðla­banka Íslands.

Höftin voru lyk­il­at­riði í því að ná fram mark­miðum neyð­ar­lag­anna. Upp­haf­lega var svo­kallað sól­ar­lags­á­kvæði í lög­unum um þau, em í þeim fólst að höft á þrotabú föllnu bank­anna höfðu fyr­ir­fram ákveð­inn líf­tíma, þ.e. út árið 2013. Kröfu­hafar föllnu bank­anna, sem flestir höfðu keypt kröfur sínar eftir hrun, höfðu því þann val­kost að bíða ein­fald­lega af sér þann tíma, og hverfa svo út í sól­setrið með alla vasa fulla af gróða. Þann 9. mars 2013 var hins vegar ákvæðið að afnema ákvæðið úr lögum og gera höftin ótíma­bundin. Áð­ur, þann 20. des­em­ber 2012, hafði þverpóli­tísk nefnd full­trúa þing­flokka um afnám gjald­eyr­is­hafta ein­róma lagt þessa breyt­ingu til.

Með farseðilinn í bankann

Förum aðeins til baka. Höft á gjald­mið­il­inn þýddu allskyns rót á lífi ein­stak­linga og fyr­ir­tækja á Íslandi. Höftin þýddu að flestir Íslend­ingar gátu ekki skipt krón­unum sínum í annan gjald­eyri nema í und­an­tekn­ing­ar­til­vikum og með heim­ild yfir­valda. Þeir þurftu t.d. að fram­vísa flug­far­seðli í banka til að kaupa ferða­gjald­eyri. Og slík gjald­eyr­is­við­skipti voru auk þess tak­mörkuð við hámarks­fjár­hæðir.

Búið var til mjög umfangs­mikið gjald­eyr­is­eft­ir­lit innan Seðla­banka Íslands, sem hafði eft­ir­lit með gjald­eyr­is­við­skiptum þjóð­ar­innar, og þaðan voru veittar allskyns und­an­þágur, enda blasti við að inn­flutn­ings- og útflutn­ings­fyr­ir­tæki þurftu að skipta krónum í gjald­eyri eða gjald­eyri í krónur til að geta haldið starf­semi sinni áfram.

Til þess að fá að gera slíkt þurftu fyr­ir­tæki meðal ann­ars að sýna fram á að um raun­veru­leg vöru- eða þjón­ustu­við­skipti væri að ræða. Þetta var sér­stak­lega mik­il­vægt til að jafn­ræðis yrði gætt. Þ.e. að fjár­magns­eig­endur gætu ekki nýtt sér hafta­á­standið til að hagn­ast á meðan að launa­fólk, sem fékk borgað í krónum og lifði fjár­hags­lega einn mánuð í einu, axl­aði aðlögun geng­is­falls og efna­hags­hruns í gegnum heim­il­is­bók­haldið sitt.

Hægt að græða vel á höftunum

Grunur var uppi um að margir fjár­magns­eig­endur hefðu haft vaðið fyrir neðan sig áður en að hrunið skall á, og flutt fjár­muni burt frá Íslandi, meðal ann­ars til þekktra skatta­skjóla.

Á árinu 2015 fékkst stað­fest­ing á því þegar íslenskra ríkið keypti skatta­skjóls­gögn um 500 félög í eigu um 400 Íslend­inga af huldu­manni. Gögnin komu frá lög­manns­stofu í Panama, Mossack Fonseca & Co, sem hafði unnið umtals­vert fyrir íslensku bank­anna á árunum fyrir hrun.

Ári síðar, í apríl 2016, greindu fjöl­miðlar víða um heim frá afrakstri vinnu sinnar úr gagna­leka sem þekktur varð sem Panama­skjölin. Um var að ræða skjöl úr sama ranni og þau sem skatt­rann­sókn­ar­stjóri hafði keypt. Þ.e. frá Mossack Fonseca.

Þar kom meðal ann­ars fram að skatta­skjóla­eign Íslend­inga var enn umfangs­meiri en áður hafði verið ýjað að. Alls er þar að finna upp­lýs­ingar um 600 Íslend­inga sem tengj­ast um 800 aflands­fé­lögum.

Fjölmennustu mótmæli Íslandssögunnar áttu sér stað 4. apríl 2016, eftir opinberum Panamaskjalana.
Fjöl­menn­ustu mót­mæli Íslands­sög­unnar áttu sér stað 4. apríl 2016, eftir opin­berum Panama­skjal­ana.

Ljóst var þó að þarna var ein­ungis um brot af umsvifum Íslend­inga í aflands­fé­lögum að ræða. Í byrjun jan­úar 2017 var gerð opin­ber skýrsla starfs­hóps sem skoð­aði umfang aflandseigna Íslend­inga, sem unnin var sem við­bragð við birt­ingu Panama­skjal­ana, og áætl­­aði hversu miklu eig­endur slíkra eigna hefðu stungið undan skatti.

Þar sagði að stökk­breyt­ing hefði orðið á flæði fjár til aflands- og lág­skatta­svæða á fyrsta ára­tug þess­arar aldar, og fjöldi aflands­fé­laga í eigu Íslend­inga hefði fer­tug­fald­ast frá árinu 1999 og fram að hruni. Eignir í stýr­ingu íslensku bank­anna í Lúx­em­borg 46-föld­uð­ust á sama tíma­bili. Upp­safnað umfang eigna Íslend­inga á aflands­svæðum frá árinu 1990 til 2015 nam ein­hvers staðar á bil­inu 350 til 810 millj­örðum króna, og tekju­tap hins opin­bera á árunum 2006 til 2014 vegna þessa nam lík­lega um 56 millj­örðum króna, sam­kvæmt skýrsl­unni. 

Leiðir til að bræða snjóhengju

Seðla­bank­inn var ekki ein­ungis að sinna eft­ir­liti með inn- og útflæði í gegnum höftin, hann var líka að leita leiða til að minnka það mikla magn krónu­eigna sem var í eigu útlend­inga, og vildi út, hina svoköll­uðu snjó­hengju.

Ein slík leið var fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands, sem var opin 2012 til 2015. Hún opn­aði leið inn fyrir höftin fyrir þá sem áttu fjár­muni utan þeirra. Í henni fólst að leiða saman óþol­in­móða eig­endur íslenskra krónu­eigna sem voru fastar innan hafta og þá sem áttu erlendan gjald­eyri sem lang­aði að skipta honum í íslenskar krón­ur. Hug­myndin var að hinir óþol­in­móðu myndu gefa eftir hluta af virði eigna sinna, en hinir fá fleiri krónur en almennt gengi sagði til um, með milli­göngu Seðla­bank­ans.

Sam­tals komu um 1.100 millj­­ónir evra til lands­ins á grund­velli útboða fjár­­­fest­ing­­ar­­leiðar eða 206 millj­­arðar króna. Meg­in­þorri þeirra sem nýttu sér hana, 794 af 1.074 aðil­um, voru Íslend­ing­­ar, sam­­kvæmt skrif­­legu svari til Alþingis frá sum­r­inu 2017. Alls fékk allur þessi hópur 31 millj­­arða króna virð­is­aukn­ingu fyrir það að nýta sér leið­ina. Af þeim fóru um ell­efu millj­­arðar króna af virð­is­aukn­ing­unni til Íslend­inga en um 20 millj­­arðar króna til erlendra aðila.

Í hópi þeirra sem fjöl­miðlar hafa opin­berað að hafi nýtt sér fjár­fest­ing­ar­leið­ina eru ein­stak­lingar sem hafa verið til rann­sóknar fyrir meint skatta­laga­brot, hafa verið ákærðir og dæmdir fyrir efna­hags­glæpi og hafa verið gerðir upp af kröfu­höfum sínum án þess að mikið feng­ist upp í skuld­ir.

Íslend­ing­arnir sem nýttu sér leið­ina höfðu margir hverjir ferjað pen­inga út úr land­inu fyrir hrun og komið þeim í var á aflandseyj­um, þegar gengi krón­unnar var ennþá sterkt. Krónan hrundi hins vegar eftir hrun og því gátu Íslend­ing­arnir líka leyst út feiki­lega mik­inn geng­is­hagn­að.

Til við­bótar fékkst „heil­brigð­is­vott­orð“ á pen­ing­anna, enda færðir inn í landið í gegnum seðla­banka.

Þessa pen­inga var svo hægt að nota til að kaupa eignir á Íslandi á bruna­út­sölu­verði á fyrstu árum eft­ir­hrunsár­anna.

Í skýrslu sem Seðla­bank­inn birti um fjár­fest­ing­ar­leið­ina í fyrra gekkst hann við því að leiðin hefði haft óæski­legt hlið­ar­á­hrif, þótt hann teldi að til­gangur hennar, að minnka snjó­hengj­una, hefði helgað með­alið. Á meðal þeirra óæski­legu áhrifa sem urðu af leið­inni voru þau að áhrif á eigna­skipt­ingu þjóð­ar­innar kynnu að hafa verið nei­kvæð. Seðla­bank­inn við­ur­kenndi einnig að gagn­rýni á heim­ild félaga með aðsetur á lág­skatt­ar­svæðum til þátt­töku í fjár­fest­ing­ar­leið­inni hafi verið eðli­leg í ljósi sög­unnar.

Uppsveifla sköpuð með höftum

Á hafta­ár­unum gerð­ist það hins vegar að feiki­leg efna­hags­leg upp­sveifla varð á Íslandi. Hún hófst á árinu 2012 og stóð vel fram á árið 2018, þegar hægði á ferð hennar með gjald­þroti WOW air.

Í grunnin var þessi upp­sveifla sköpuð með höft­unum. Gjald­eyrir flæddi inn í landið, aðal­lega frá erlendum ferða­mönnum sem hófu að koma hingað til lands í áður óþekktu magni, en lítið sem eng­inn gjald­eyrir fór út úr land­inu á saman tíma.

Gengi krón­unnar styrk­ist mikið, eigna­verð rauk upp, sér­stak­lega virði fast­eigna sem var um tíma mesta hækkun sem mæld­ist í heim­inum og hluta­bréfa, og úr varð for­dæma­laust hag­vaxt­ar­skeið.

Þegar þessi veisla stóð sem hæst, árið 2015, gerðu íslensk stjórn­völd sam­komu­lag við helstu kröfu­hafa föllnu bank­anna um að þeir myndu greiða svo­kallað stöð­ug­leika­fram­lag gegn því að fá að klára gerð nauða­samn­inga og geta í kjöl­farið greitt út þá pen­inga sem þeir áttu fasta í þrota­búum bank­anna.

Í sam­komu­lag­inu fólst, í ein­földu máli, að kröfu­haf­arnir skildu eftir nær allar krónu­eignir sínar gegn því að fá að fara með erlendar eignir þrota­bú­anna. Krónu­eign­irnar, stöð­ug­leika­fram­lögin, runnu til rík­is­ins.

Samkomulagið við kröfuhafa föllnu bankanna var kynnt 2015.
Sam­komu­lagið við kröfu­hafa föllnu bank­anna var kynnt 2015.

Báðir aðilar gátu vel sætt sig við þessa nið­ur­stöðu. Flestir kröfu­haf­anna höfðu keypt kröfur sínar á hrakvirði og voru að leysa út veð­mál sín með miklum hagn­aði. Íslenska ríkið hafði notað neyð­ar­lögin, höftin og þá samn­ings­stöðu sem sá grunnur tryggði til að umbreyta skulda­stöðu þjóð­ar­bús­ins á einni nóttu. Þegar fyrsta yfir­lit yfir stöðu þjóð­ar­bús­ins eftir að nauða­samn­ing­arnir voru kláraðir var birt vorið 2016 kom í ljós að við nauða­samn­ings­gerð­ina hefðu hreinar íslenskar skuldir við útlönd lækkað um 328,6 pró­sent af lands­fram­leiðslu og væri þá 14,4 pró­sent af henni. Sú skulda­staða hafði ekki verið lægri frá síld­ar­ár­unum. Um kúvend­ingu upp á um 500 millj­arða króna var að ræða.

Höftin losuð

Annar skýr kostur sem þessi breyt­ing leiddi af sér var sú að loks­ins var hægt að fara að huga að því að lyfta höft­unum. Þau höfðu sann­ar­lega gert gagn, en líka valdið allskyns vand­ræðum, til dæmis fyrir líf­eyr­is­sjóði sem gátu að uppi­stöðu bara fjár­fest ný iðgjöld á Íslandi árum saman. Á end­anum voru þeir búnir að kaupa nær allt sem hægt var að kaupa og orðnir lang­um­svifa­mestu fjár­festar á land­inu.

Bjarni Benediktsson, þáverandi forsætisráðherra, kynnir áætlun um losun hafta í mars 2017. Már Guðmundsson, þáverandi seðlabankastjóri, fylgist með.
Bjarni Bene­dikts­son, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, kynnir áætlun um losun hafta í mars 2017. Már Guð­munds­son, þáver­andi seðla­banka­stjóri, fylgist með.

Stjórn­andi eins stærsta sjóðs­stýr­inga­fyr­ir­tækis lands­ins sagði á umræðu­fundi sem hald­inn var í maí 2016 að ef líf­eyr­is­sjóð­irnir færu ekki að kom­ast út til að fjár­festa þá myndu þeir fara að kaupa „sjón­vörp og þvotta­vél­ar“ eftir nokkur miss­eri. Allir aðrir fjár­fest­inga­kostir yrðu ­upp­urn­ir.

Þá um sum­arið kynntu íslensk stjórn­völd loks um stór skref í átt að losun hafta. Þann 12. mars 2017 var svo blásið til blaða­manna­fund­ar. For­ingjar nýrrar rík­is­stjórn­ar, sem hafði tekið við völdum tveimur mán­uðum áður, til­kynntu hróð­ugir að þeir ætl­uðu að afnema höft. Að mestu.

Nýtt tíma­bil var að hefj­ast í íslensku krónu­ver­öld­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Seðlabanki

Mest lesið undanfarið ár