Mynd: EPA

Krónan fyrir hrun: Vopn gegn almenningi

Íslenska krónan, gagn hennar og lestir, er eitt helstu þrætu­epli íslenskrar þjóðar. Frá ald­ar­mótum hafa farið fram þrjár mis­mun­andi til­raunir í að stýra henni þannig að gagn­semi krón­unnar sé sem mest, en að lestir þessa örgjald­mið­ils láti sem minnst á sér

Íslensku krón­unni var fleytt í mars­mán­uði 2001. Þegar það er gert þá ræðst virði hennar á því hversu mikið mark­aðs­að­ilar eru til­búnir að borga fyrir hana í erlendri mynt, á hverjum tíma. Það þýddi að fyrri fast­geng­is­stefna, um að halda henni innan ákveð­ina marka, var yfir­gefin. Ráðist var í þessa pen­inga­stefnu­legu til­raun á sama tíma og Ísland var að opn­ast veru­lega hratt, sér­stak­lega fyrir fjár­magns­flutn­ingum. Það gerð­ist meðal ann­ars sam­hliða því að íslensku við­skipta­bank­arnir voru einka­væddir og hófu síðan útrás inn á aðra mark­aði með fulla vasa af ódýra láns­fjár­magni sem há láns­hæf­is­ein­kunn íslenska rík­is­ins gerði þeim kleift að nálg­ast.

Afleið­ingin af þess­ari til­raun varð sú að við­skipta­jöfn­uður var veru­lega nei­kvæður árum saman (verð­mæti útflutn­ings­vara og þjón­ustu var miklu minna en verð­mæti varn­ings sem var fluttur til lands­ins, aðal­lega vegna þess að það streymdi svo mikið erlent láns­fjár­magn inn) og spá­kaup­menn gátu „spilað“ á krón­una í svoköll­uðum vaxta­muna­við­skiptum.

Í ein­földu máli snér­ust þau við­skipti um að er­lendir fjár­festar tóku lán í myntum þar sem vextir voru lágir og keyptu síð­an ­ís­lensk skulda­bréf, vegna þess að vextir á þeim eru háir í öllum alþjóð­leg­um ­sam­an­burði. Því gátu fjár­fest­arnir hagn­ast vel umfram þann kostnað sem þeir báru af lán­töku sinn­ar. Og ef þeir voru að gera við­skipti með eigin fé þá gát­u þeir auð­vitað hagn­ast enn meira.

Þessi vaxta­muna­við­skipti áttu stóran þátt í að blása upp þá ­bólu sem sprakk á Íslandi haustið 2008. Það erlenda fé sem leit­aði í íslenska skulda­bréfa­flokka var end­ur­lánað til við­skipta­vina íslensku bank­anna og við það ­stækk­aði umfang þeirra gríð­ar­lega. Við hrun, þegar setja þurfti fjár­magns­höft á til að hindra útflæði gjald­eyr­is, voru vaxta­muna­fjár­fest­ingar vel á sjö­unda hund­rað millj­arða króna.

Allt ofan­greint olli Íslandi, og íslensku sam­fé­lagi, stór­skaða. Til að takast á við þá stöðu þurfti að setja for­dæma­laus neyð­ar­lög, sem breyttu kröfu­hafaröð eftir á og ekk­ert lá í raun fyrir í upp­hafi að myndu halda, og fylgja þeim svo eftir með upp­setn­ingu fjár­magns­hafta, sem héngu uppi í næstum ára­tug eru enn ekki að öllu leyti afnumin.

Stöðutökur í krónuspilavíti

Það voru ekki ein­ungis vaxta­muna­við­skipti og óvar­leg lán­taka sem skóp áhættu fyrir almenn­ing og fyr­ir­tæki lands­ins fyrir banka­hrun. Svokölluð stöðu­taka inn­lendra aðila gegn krón­unni varð líka fyr­ir­ferða­mikil þegar leið á tíma­bilið.

Á nokkrum árum, snemma á þess­ari öld, styrkt­ist íslenska krónan mikið vegna þess að hingað til lands streymdi áður­nefnt ódýrt erlent láns­fjár­magn. Krónan var aug­ljós­lega ofmetin og ljóst að hún myndi hrynja þegar eng­inn myndi vilja lengur taka við íslenskum krónum fyrir erlendan gjald­eyri.

Íslensku bank­arnir vissu um þennan óum­flýj­an­leika og gátu að ein­hverju leyti stýrt því hvernig hann myndi eiga sér stað. Þeir, og fylgitungl þeirra, tóku sig saman og hönn­uðu risa­stórt veð­mál um það hvernig íslenska krónan myndi þró­ast. Á fjár­mála­mark­að­ar­stofn­ana­máli var þetta kallað stöðu­taka og oftar en ekki var hún rök­studd með því að bank­arnir, og fylgitunglin, væru orðin svo stórir alþjóð­legir leik­endur, með svo stóran hluta af eignum sínum erlendis, að þeir þyrftu að „verja“ þá stöðu með því að eiga gjald­eyri.

Davíð Oddsson var forsætisráðherra og Geir H. Haarde fjármálaráðherra þegar krónan var sett á flot. Davíð varð síðar seðlabankastjóri.
Davíð Oddsson var for­sæt­is­ráð­herra og Geir H. Haarde fjár­mála­ráð­herra þegar krónan var sett á flot. Davíð varð síðar seðla­banka­stjóri.

En raun­veru­leik­inn var sá að bank­arnir, og fylgitunglin, voru að taka miklu stærri stöðu gegn krón­unni en slíkt umfang gaf til­efni til. Þeir voru ein­fald­lega að veðja á að krónan myndi falla, og að það myndi skila þeim miklum hagn­aði. Í kjöl­farið beittu þeir sér mark­visst fyrir því að veð­mál þeirra myndi örugg­lega ganga upp.

Hægt að fella krónuna með handafli

Þegar fór að líða á árið 2007 fóru sífellt fleiri að átta sig á því að kannski væru enda­lok íslenska ban­kaund­urs­ins væri framundan. Þeir sem höfðu vit­neskju og skiln­ing á því hvernig bank­arnir voru raun­veru­lega upp­byggðir, og hversu við­kvæm staðan raun­veru­lega var, fóru að huga að því að bjarga eigin skinni. Það var meðal ann­ars gert með því að safna gjald­eyri sem var síðan fram­seldur til stærstu hlut­hafa og vild­ar­við­skipta­vina í gegnum afleiðu­samn­inga.

Kaupþing, stærsti íslenski bank­inn, var stór­tæk­astur í þessu. Hann keypti gríð­ar­legt magn af gjald­eyri á milli­banka­mark­aði í lok árs 2007 og í upp­hafi árs 2008. Þessi upp­kaup leiddu meðal ann­ars til þess að íslenska krónan féll í mars 2008 og svo aftur í sept­em­ber sama ár, sam­tals um 70 pró­sent. Einn banki gat keypt svo mikið af gjald­eyri á mark­aði að hann felldi íslensku krón­una með handafli.

Hug­myndin var að ef þetta veð­mál gengi upp gætu þessir aðilar bjargað sér þegar krónan myndi hrynja, og þeir gætu leyst út stjarn­fræði­legan hagnað af því. Í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis stendur að „frá því í nóv­em­ber 2007 og fram til jan­úar 2008 keyptu fimm inn­lend fyr­ir­tæki, það er Exista, Kjalar, Baugur og tvö félög tengd Baugi, 1.392 millj­ónir evra í fram­virkum samn­ingum og stund­ar­við­skiptum við íslensku bank­ana. Meiri­hluti þess gjald­eyris var keyptur af Kaup­þingi. Þetta vekur óneit­an­lega athygli sér­stak­lega í ljósi þess að við­skiptin voru mjög umfangs­mikil miðað við fyrri við­skipti flestra þess­ara fyr­ir­tækja“. Ólafur Ólafsson, eig­andi Kjalars, var einn af stærstu eig­endum Kaup­þings. Það var Exista, þar sem Lýður og Ágúst Guð­munds­synir voru stærstu eig­endur, líka. Jón Ásgeir Jóhann­es­son, aðal­eig­andi Baugs, var á meðal stærstu eig­enda Glitnis og stór við­skipta­vinur Kaup­þings og Lands­banka Íslands.

Það var vit­neskja um hvað væri að eiga sér stað í stjórn­kerf­inu, án þess þó að gripið væri inn með ákveðnum hætti. Seðla­bank­inn hafði til að mynda áhyggjur af því að bank­arnir, og sér­stak­lega Kaupþing, væri með­vitað að fella krón­una. Í bréfi sem Davíð Oddsson og Eiríkur Guðnason, sem þá voru tveir af þremur seðla­banka­stjórum lands­ins, sendu 2. apríl 2008 sagði að Kaupþing og Exista kynnu að hafa nýtt stöðu sína á gjald­eyr­is­mark­aði til að „stuðla að og hagn­ast á geng­is­lækkun íslensku krón­unnar“.

Tryggðu sér áfram völd

Þessir aðilar sem tóku þessar stóru stöður gegn íslensku krón­unni fyrir hrun reyndu svo að fá að gera samn­ing­anna upp á mark­aðs­gengi krón­unnar hjá evr­ópska seðla­bank­anum eftir að það var um garð gengið, þegar hún hafði maga­lent. Í byrjun árs 2009, svo dæmi sé tekið, var krónan skráð þar á 290 krónur en á 167 krónur hjá Seðla­banka Íslands.

Svo þetta sé sett upp í ímyndað dæmi þá væri fjár­fest­inga­fé­lag, sem hefði t.d. keypt evrur í gegnum fram­virkan samn­ing þegar gengi þeirra var 100 krónur, að reyna að fá að gera upp þann samn­ing á geng­inu 290 krónur. Þ.e. það ætl­að­ist til þess að fá næstum þrisvar sinnum fleiri krónur út úr veð­mál­inu en það lagði inn. Þessar krónur áttu svo að not­ast, aðal­lega, til að skera við­kom­andi niður úr skulda­snöru í hinu fallna banka­kerfi.

Þótt gjald­miðla­samn­ing­arnir hafi ekki verið greiddir út þá nýtt­ust þeir mörgum þegar þeir sömdu um skuldir sínar, og áfram­hald­andi yfir­ráð yfir stærstu fyr­ir­tækj­unum sem þeir höfðu kom­ist yfir fyrir hrunið. Þeir gátu haldið áfram að vera ríkir og valda­miklir.

Almenningur og lífeyrissjóðir töpuðu

Það er þó þannig að þegar ein­hver græðir þá þarf ein­hver að tapa. Til að byggja upp gjald­miðla­jöfnuð þurftu bank­arnir að finna aðila til að taka hina hlið­ina á veð­mál­inu, að veðja á styrk­ingu krón­unnar. Það var fyrst og fremst gert með fram­virkum samn­ingum við líf­eyr­is­sjóði, útflutn­ings­fyr­ir­tæki og jökla­bréfa­eig­endur.

Íslenskur almenningur sat uppi með afleiðingar af hruni íslensku krónunnar á árinu 2008. Fjöldi manns safnaðist saman hverja helgi um margra mánaða skeið til að mótmæla.
Íslenskur almenn­ingur sat uppi með afleið­ingar af hruni íslensku krón­unnar á árinu 2008. Fjöldi manns safn­að­ist saman hverja helgi um margra mán­aða skeið til að mót­mæla.

Líf­eyr­is­sjóðir lands­ins unnu að því eftir hrun að gera upp gjald­miðla­samn­inga sína við stóru bank­anna þrjá. Lengst tók að semja við Kaupþing, en við­ræðum við þrotabú þess banka lauk ekki fyrr en í jan­úar 2013. Heild­ar­tap sjóð­anna á þessum samn­ingum nam um 70 millj­örðum króna.

Á sama tíma og bankar voru að ryk­suga upp gjald­eyr­is­markað og vinna að því að fella gengi krón­unnar, til að græða á því, þá var verið að lána íslenskum heim­ilum og fyr­ir­tækjum, sem höfðu tekjur í íslenskum krónum, í erlendum myntum.

Fjallað er um þetta í bók Sveins Haralds Øygard, sem um tíma var seðla­banka­stjóri á Íslandi, sem ber nafnið „Í víg­línu íslenskra fjár­mála“ og kom út á íslensku í fyrra.

Að hans mati voru ein afdrifa­rík­ustu mis­tökin sem áttu sér stað hér­lendis fyrir banka­hrun að banna ekki skuld­setn­ingu í öðrum gjald­miðlum en íslensku krón­unni. Við lestur bókar hans kemur nokkuð aug­ljós­lega fram að Øygard ofbýður það hvernig bank­arnir hög­uðu sér í stöðu­tökum gegn krón­unni.

Norðmaðurinn Svein Harald Øygard, sem um tíma var seðlabankastjóri á Íslandi.
Norð­mað­ur­inn Svein Harald Øygard, sem um tíma var seðla­banka­stjóri á Íslandi.

Hann telur að öllum hafi átt að vera það ljóst að íslenska krónan var ofmetin, en samt héldu bank­arnir áfram að dæla út þessum lánum til heim­ila og fyr­ir­tækja allt fram á það síð­asta. Þegar allt hrundi voru 84 pró­sent bíla­lána til að mynda í erlendum gjald­miðlum.

Bank­arnir þrír voru þá, líkt og áður sagði löngu farnir að verja sig fyrir óum­flýj­an­legri lækkun. Øygard segir að Kaupþing hafi byrjað á því árið 2005, Lands­bank­inn um haustið 2007 og Glitnir í árs­lok 2007. „Bank­arnir höfðu allir keypt erlendan gjald­miðil fyr­ir­fram, með öðrum orðum höfðu þeir aðgang að erlendum gjald­miðli á fyrir fram ákveðnu verði ein­hvern tíma í fram­tíð­inni. Nú skyldi grætt ef íslenska krónan veikt­ist.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Seðlabanki

Mest lesið undanfarið ár