Krónan eftir höft: Stöðugleiki og stöðnun

Íslenska krónan, gagn hennar og lestir, er eitt helstu þrætu­epli íslenskrar þjóðar. Frá alda­mótum hafa farið fram þrjár mis­mun­andi til­raunir í að stýra henni þannig að gagn­semi krón­unnar sé sem mest.

Í sept­em­ber 2012 birti Seðla­banki Íslands rit sem bar heitið „Val­kostir Íslands í gjald­mið­ils- og geng­is­málum“. Ritið er 623 blað­síður og mjög ítar­leg grein­ing á þeim val­kostum sem standa Íslandi, þess­ari nú 364 þús­und manna þjóð í miðju Atl­ants­hafi, til boða. 

Nið­ur­staða þess hóps sér­fræð­inga sem vann rann­sókn­ina, og skrif­aði ritið, var að raun­hæfir val­kostir Íslands í gjald­miðla­málum væru tveir; íslensk króna með ákveðnum þjóð­hags­var­úð­ar­tækjum og evra í kjöl­far inn­göngu í Evr­ópu­sam­bandið og evr­ópska mynt­banda­lagið.

Á þeim tíma sem ritið var unnið var Ísland enn í því ferli að ganga í Evr­ópu­sam­bandið. Það ferli rann sitt skeið eftir þing­kosn­ing­arnar 2013, þegar ný rík­is­stjórn Evr­ópu­sam­bandsand­stæð­inga tók við völdum á Íslandi.

Því hefur í raun ein­ungis einn kostur verið í gjald­miðla­málum hér­lendis á und­an­förnum árum: íslensk króna sem fær ekki að lúta lög­málum frjálsra gjald­eyr­is­við­skipta, heldur er studd með hækjum í formi þjóð­ar­var­úð­ar­tækja.

Reynt á varúðartækin

Þegar ritið kom út voru mjög ströng fjár­magns­höft við lýði á Íslandi og því reyndi ekki á þá útgáfu af krónu­hag­kerf­inu sem hún boð­aði á þeim tíma. Höftin voru hins vegar, að mestu, losuð í mars 2017.

Þá var staða íslensks efna­hags­kerfis tölu­vert öðru­vísi en hún hafði verið nokkru sinni áður. Ferða­þjón­usta hafði vaxið, á örfáum árum, frá því að vera nán­ast efna­hags­legt smælki og upp í það að vera burð­ug­asta stoðin undir efna­hags­lífi íslenskrar þjóðar. Með fjölgun ferða­manna úr um hálfri milljón á árinu 2010 og í 2,3 millj­ónir árið 2018 þá gjör­breytt­ist flæði erlends gjald­eyris sem rann úr vasa kaup­enda að íslenskri þjón­ustu og í vasa íslenskra þjón­ustu­veit­enda.

Með öðrum orðum varð hér við­skipta­af­gangur. Þ.e. Íslend­ingar fluttu út meira en þeir fluttu inn, þegar þjón­ustu­við­skipti sem veitt eru útlend­ingum hér­lendis eru talin með útflutn­ingi.

Það varð til þess að krónan styrkt­ist. Og styrkt­ist og styrkt­ist.

Hinn almenni launa­maður fagn­aði. Sum­ar­fríið til Tenerife kost­aði minna en áður og raf­tækin sem hægt var að kaupa Í Elko, eða bara panta af net­inu, hríð­lækk­uðu í verði.

Atvinnu­lífið, sér­stak­lega sá hluti þess sem hafði tekjur í erlendum gjald­miðlum en tölu­verðan kostnað, aðal­lega launa­kostnað, í íslenskum krónum, var ekki jafn ham­ingju­samt. Hin svo­kall­aða „sam­keppn­is­hæfni“ Íslands dróst saman.

Sveigjanleikinn farinn

Ein helstu rökin fyrir íslensku krón­unni hafa verið þau að hún sé svo sveigj­an­leg. Á manna­máli þýðir það að hún gæti veikst hratt og mikið til að auka sam­keppn­is­hæfni okkar þegar efna­hags­á­standið tekur dýfu. Vanalega fylgdi þessu aukin verð­bólga. Það gerð­ist til dæmis eftir hrunið. Í þeirri sam­keppn­is­hæfni felst að laun Íslend­inga verða mun lægri í alþjóð­legum sam­an­burði og þeir sem flytja út vörur eða þjón­ustu fá fleiri krónur fyrir þegar þeir skipta doll­urum eða evrum hjá Seðla­banka Íslands. Helsti kost­ur­inn við þetta er tal­inn vera sá að þá er hægt að taka út aðlög­un­ina eftir gerð hag­stjórn­ar­mis­tök með því að velta kostn­að­inum af henni á launa­fólk án þess að atvinnu­leysi láti á sér kræla.

Nú er þetta hins vegar ekki staðan. Í nið­ur­sveifl­unni sem átti sér stað á árinu 2019, þegar sam­dráttur varð í íslenska efna­hags­kerf­inu meðal ann­ars vegna gjald­þrots WOW air, loðnu­brests og vand­kvæða Icelandair vegna kyrr­setn­ingar á Boeing 737 Max vél­unum, þá var birt­ing­ar­mynd afleið­ing­anna svipuð og ann­ars staðar í Evrópu, þar sem evran er gjald­mið­ill­inn. Þ.e. aukið atvinnu­leysi.

Atvinnu­leysið mælist nú 4,3 pró­sent of hefur ekki mælst hærra frá árinu 2013. Rúmlega átta þús­und manns eru án atvinnu. Mest var atvinnu­leysið á Suð­ur­nesjum, þar sem ferða­þjón­ustu­tengd starf­semi er aðal atvinnu­veg­ur­inn, eða 8,7 pró­sent. Það er meira atvinnu­leysi en mælist á evru­svæð­inu að með­al­tali, þar sem það er 7,4 pró­sent.

Gripið inn í

Seðla­banki Íslands birti í nýverið yfir­lit yfir þróun ýmissa þátta sem snúa að íslensku krón­unni. Þar kom meðal ann­ars fram að gengi krón­unnar hafi lækkað um alls 3,1 pró­sent í fyrra. Flökt á henni hefði verið minna en á árinu 2018 en munur á hæsta og lægsta gildi krón­unnar var 7,2 pró­sent.

Þessi nið­ur­staða gerð­ist þó ekki að sjálfu sér. Seðla­bank­inn greip inn í gjald­eyr­is­mark­að­inn, með því að kaupa eða selja gjald­eyri, á alls tólf dögum á árinu 2019. Í jan­úar í fyrra seldi Seðla­bank­inn gjald­eyri fjóra við­skipta­daga í röð í því skyni að vega á móti snar­pri lækkun gengis krón­unn­ar. Í mars, maí og júní seldi bank­inn gjald­eyri bæði vegna útflæðis aflandskróna og til að koma í veg fyrir óhóf­legt skamm­tíma­flökt af öðrum ástæð­u­m.

Í þessum inn­gripum birt­ist pen­inga­stefna Seðla­bank­ans skýrt og greini­lega. Í henni felst að halda krón­unni stöðugri með því að grípa inn í ef hún er að styrkj­ast of mikið, eða veikj­ast of mikið.

Á fyrri helm­ingi síð­asta árs keypti Seðla­bank­inn gjald­eyri fyrir sam­tals fyrir 11,9 millj­arða króna en á þeim síðar fyrir 2,4 millj­arða króna. Gjald­eyr­is­kaupin áttu sér stað tvo við­skipta­daga í júlí og sept­em­ber.

Heild­ar­velta á gjald­eyr­is­mark­aði var svipuð og á árinu 2018, eða 188,3 millj­arðar króna. Hlut­deild Seðla­bank­ans í velt­unni var 7,6 pró­sent sem var öllu meira en árið 2018, en tals­vert minna en á árinu 2017.

Þetta er hægt að gera vegna þess að Seðla­banki Íslands á stóran gjald­eyr­is­vara­forða. Á meðal að þeir sem gætu látið sér detta í hug að spila á gengi krón­unnar til að græða pen­inga, með því að styrkja hana eða veikja með handafli, trúa því að bank­inn muni nota þann forða til að við­halda stöð­ug­leika þá gengur pen­inga­stefnan upp.

Munum eftir því í hrun­inu að nán­ast allur aðgengi­legur forði Seðla­banka Íslands var lán­aður til Kaup­þings, alls 500 millj­ónir evra. Stór hluti þess forða tap­að­ist. Þar var um að ræða skuld­settan forða sem kost­aði mikla pen­inga í vaxta­greiðslur.

Síðustu ár hefur Seðla­banki Íslands verið að safna sér upp óskuld­settum forða. Hann var undir 50 millj­örðum króna árið 2013. Um síð­ustu ára­mót var hann 822 millj­arðar króna og óx um 86 millj­arða króna á síð­asta ári.

Ásgeir Jónsson tók við sem seðlabankastjóri í ágúst 2019, af Má Guðmundssyni. Hann tók að mörgu leyti við góðu búi en stendur líka frammi fyrir flóknum áskorunum.
Ásgeir Jónsson tók við sem seðla­banka­stjóri í ágúst 2019, af Má Guð­munds­syni. Hann tók að mörgu leyti við góðu búi en stendur líka frammi fyrir flóknum áskor­unum.

Samhliða hefur erlend staða íslenska þjóð­ar­bús­ins snú­ist í að verða jákvæð. Ár eftir ár er íslenska þjóð­ar­búið að fá inn meiri pen­inga fyrir það sem það er að selja, en það er að eyða í það sem það er að kaupa. Sam­an­lagður af­gang­ur af við­skipta­jöfn­uði lands­ins á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2019 var til að mynda tæp­ur 121 millj­arður króna. Hrein staða Íslands við útlönd, þ.e. eignir þegar búið var að draga allar skuldir frá, var 714 millj­arðar króna í lok þess tíma­bils. Hrein eign var 24,5 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu.

Það er vert að muna að í lok árs 2008 var hrein eign Íslands gagn­vart útlöndum nei­kvæð um 187 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu. Algjör við­snún­ingur varð á þess­ari stöðu þegar sam­komu­lag var gert við kröfu­hafa föllnu bank­anna um stöð­ug­leika­fram­lag á árinu 2015. Til við­bótar hefur útflutn­ingur líf­eyr­is­sjóða á fé eftir að höftum var lyft, til fjár­fest­inga erlendis, bætt veru­lega við eigna­stöðu Íslands utan heima­mark­aðar.

Verðbólga helst lág og vextir lækka

Pen­inga­stefnan er enn þannig að Seðla­banki Íslands hefur verð­bólgu­mark­mið að leið­ar­ljósi, en það er 2,5 pró­sent. Helsta stýri­tæki bank­ans er enn vextir, sem hann hækkar eða lækkar til að reyna að hafa áhrif á verð­bólg­una.

Heilt yfir hefur verð­bólga verið afar lág und­an­farin ár. Frá því í febr­úar 2014 og langt fram á haustið 2018 var hún undir verð­bólgu­mark­miði. Þá hækk­aði hún yfir mark­mið og reis hæst í 3,7 pró­sent í des­em­ber 2018. í lok árs 2019 fór hún svo aftur undir mark­mið og í dag mælist hún ein­ungis 1,7 pró­sent.

Vert er að taka fram að sú verð­bólga sem mæld­ist á fyrri hluta árs í fyrra er lág í öllu íslensku efna­hags­sögu­legu sam­hengi, þótt hún hafi verið yfir mark­miði. Skörp lækkun hennar undir lok árs var þó jákvæð tíð­indi fyrir alla þá lands­menn sem eru með verð­tryggð lán, meðal ann­ars flest heim­ili lands­ins. Lægri verð­bólga þýðir að þau lán verða ódýr­ari.

Lægri vextir og lág verðbólga bæta eiginfjárstöðu heimila, enda flest þeirra með verðtryggð lán.
Lægri vextir og lág verð­bólga bæta eig­in­fjár­stöðu heim­ila, enda flest þeirra með verð­tryggð lán.

Seðla­bank­inn lækk­aði líka meg­in­vexti sína, oft kall­aðir stýri­vextir, hratt á síð­asta ári. Þeir fóru úr því að vera 4,5 pró­sent í maí í að vera 3,0 pró­sent í nóv­em­ber. Þar eru þeir enn.

Súrefnið ekki að skila sér

Þessar vaxta­lækk­anir áttu að veita súr­efni inn í efna­hags­kerfið. Þ.e. hvetja til frek­ari lána­starf­semi. Sú þróun hefur staðið veru­lega á sér.

Heimili lands­ins hafa reyndar haldið áfram að taka fast­eigna­lán, enda hafa kjör þeirra snar­batnað á síð­ustu árum þótt þau séu enn tölu­vert frá því sem þekk­ist til dæmis innan Evr­ópu­sam­bands­ins. Sú mikla hækk­un­ar­hrina á íbúð­ar­hús­næði sem fært hefur miklar eigna­aukn­ingu á pappír til þeirra sem eiga slíkt virð­ist þó vera að lokum komin, að minnsta kosti í bili.

Útlán til fyr­ir­tækja lands­ins hafa hins vegar, svo vægt sé til orða tekið, staðið á sér. Banka­kerfið er frekar að draga úr allri þjón­ustu við hefð­bundið atvinnu­líf. Útlán þess til fyr­ir­tækja dróg­ust saman um 60 pró­sent í fyrra. Stóru við­skipta­bank­arnir eru ein­fald­lega ekki að miðla fjár­magni út til fyr­ir­tækj­anna í land­inu. Það er yfir­lýst stefna þeirra að ein­hverju leyti. Arion banki hefur til að mynda greint frá því að hann ætli að minnka umfang fyr­ir­tækja­út­lána um fimmt­ung fyrir næsta haust.

Á sama tíma jókst hins þegar veð­setn­ing hluta­bréfa á íslenskum mark­aði um 50 pró­sent. Það er því enn lánað til slíkra hluta.

Útlendingar vilja lítið fjárfesta á Íslandi

Mögulega spilar þar inn í að erlendir fjár­festar hafa verið að selja íslensk hluta­bréf og það eru ekki margir kaup­endur af þeim hér­lendis. Þ.e. nema að bankar láni til slíkra kaupa.

Þetta er ekki vanda­mál sem var ófyr­ir­séð. Á umræðu­fundi um stöðu sam­keppn­innar í end­ur­reistu hag­kerfi, sem hald­inn var í maí 2016, var Gylfi Magn­ús­son, nú for­seti við­skipta­fræði­deildar Háskóla Íslands og með­limur í banka­ráði Seðla­banka Íslands, á meðal þeirra sem sat í pall­borði. Hann sagði þar að los­un hafta myndi búa til leið fyrir líf­eyr­is­sjóði, sem höfðu keypt gríð­ar­legt magn af íslenskum hluta­bréfum á árunum eftir hrun, til að kom­ast erlend­is. Það myndi hins ­vegar ekki leysa þau vanda­mál sem íslenskt fjár­fest­inga­um­hverfi stæði frammi ­fyr­ir. Á end­anum þyrfti alltaf ein­hver að eiga hluta­bréf­in.

Gylfi Magnússon, forseti viðskiptafræðideildar Háskóla Íslands.
Gylfi Magn­ús­son, for­seti við­skipta­fræði­deildar Háskóla Íslands.

Gylfi sagði að við blasti að er­lendir aðilar virt­ust ekki hafa mik­inn áhuga á íslenskum hluta­bréfum. Ef útlend­ingar kaupi ekki íslensku hluta­bréfin séu það eig­in­lega bara líf­eyr­is­sjóð­irnir sem geti gert það. „Það er annað hvort það eða ­mynstrið sem við höfðum hérna fyrir hrun sem ég held að eng­inn vilji sjá aft­ur. Þegar eig­endur voru skuld­sett eign­ar­halds­fé­lög sem áttu ekk­ert eigið fé held­ur bara lánsfé sem þau not­uðu til að kaupa hluta­fé.“

Krónan hraðahindrun fyrir nýsköpun

For­sæt­is­ráð­herra ræddi það í almennum umræðum um stjórn­mál í síð­asta mán­uði að það þyrfti að auka nýsköpun hér­lendis. Það er auð­vitað orðið þekkt stef, að við séum ekki með nægi­lega fjöl­breytt atvinnu­líf og þurfum að bæta við geirum, meðal ann­ars. til að geta tek­ist betur á við sveiflur í þeim stærstu: ferða­þjón­ustu, sjáv­ar­út­vegi og orku­bú­skap.

Í könnun sem greint var frá nýverið, og var unnin upp úr svörum 735 fyr­ir­tækja sem sótt höfðu um styrk til Tækni­þró­un­ar­sjóðs á síð­ustu þremur árum fyrir sum­arið 2019, kom fram að 73,5 pró­sent aðspurðra töldu að sér­ís­lenskur gjald­mið­ill hefði nei­kvæð áhrif á rekstur nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækja.

Rúm­lega helm­ing­ur aðspurðra, eða 61 pró­sent, töldu að banka­þjón­usta á Íslandi henti illa eða mjög illa fyrir nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki.

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hefur lagt áherslu á að auka nýsköpun.
Rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur hefur lagt áherslu á að auka nýsköpun.

Það eru heldur ekki að verða til mikið af nýjum sér­fræð­inga­störfum á Íslandi. Þvert á móti virð­ist þeim vera að fækka sums staðar. Hjá Marel og Össur, flag­skips­fyr­ir­tæki íslenskrar nýsköp­unar, sem eru nú tæp­lega fer­tug og fimm­tug, hefur störfum á Íslandi verið að fækka á sama tíma og fyr­ir­tækin sjálf eru í örum alþjóð­legum vexti.

Erlend fjárfesting

Það þarf ekki að koma á óvart að erlendir lang­tíma­fjár­festar setja íslensku krón­una fyrir sig þegar þeir ákveða hvort þeir vilji binda pen­inga á Íslandi. Ófyr­ir­sjá­an­leiki hennar er það mik­ill að erfitt getur reynst að gera áætl­anir sem stand­ast. Þeir skamm­tíma­fjár­festar sem ákváðu að veðja á hækkun kröfu­eigna eftir banka­hrunið eru nú, hver á fætur öðrum, að draga saman seglin og hverfa til nýrra ævin­týra. Ísland er ein­fald­lega í vand­ræðum með að laða að erlenda fjár­fest­ingu þrátt fyrir að höft hafi nú verið að mestu afnumin í tæp þrjú ár.

Ýmislegt hefur verið reynt til að bregð­ast við þess­ari stöðu. Í byrjun mars í fyrra gekk í gildi breyt­ing á lögum um með­ferð krónu­eigna sem háðar eru sér­stökum tak­mörk­unum og breyt­ingar voru gerðar á reglum um bind­ingu reiðu­fjár vegna nýs inn­streymis erlends gjald­eyr­is. Von­ast var til að sú breyt­ing, sem kvað á um að lækkun bind­ing­ar­hlut­falls á nýtt fjár­magns­inn­streymi í skulda­bréf og hávaxta­inn­stæður var lækkuð úr 20 pró­sent í 0 pró­sent, myndi örva erlenda fjár­fest­ingu til lands­ins. Af því hefur ekki orðið af neinu marki.

Hreint inn­­flæði nýfjár­­­fest­inga erlendis frá nam þvert á móti 32 millj­­örðum króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2019, sem er þremur millj­­örðum krónum minna en á sama tíma­bili 2018.

Fjár­fest­ing í atvinnu­líf­inu er ein­fald­lega að verða vanda­mál. Íslensku bank­arnir eru ekki að lána og fjár­fest­ingin virð­ist ekki ætla að koma að utan. Áhuginn virð­ist bara ekki vera til staðar. Þar spilar krónan hlut­verk þótt fleira komi til.

Stað­reynd máls­ins virð­ist ein­fald­lega vera sú að okkur vegn­aði betur í höftum en án þeirra. Eftir að þau voru afnumin hefur ríkt, að mestu ákveðin stöðnun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár