Mynd: Úr safni

Þegar hlutabréfaverðið í Arion banka fór að rísa þá seldu erlendu eigendurnir sig niður

Hluta­bréfa­verð í Arion banka hefur hækkað um 58 pró­sent frá því í haust og fyrir liggja áform um að tappa tugi millj­arða króna af eigin fé af bank­anum. Á sama tíma eru nær allir erlendir eig­endur bank­ans að minnka stöðu sína í honum. Hratt.

Erlent eign­ar­hald Arion Banka er nú komið niður í að minnsta kosti 13,18 pró­sent, sam­kvæmt nýjum hlut­haf­alista bank­ans sem sýnir 20 stærstu hlut­hafa hans. Í lok sept­em­ber í fyrra áttu erlendir sjóðir sem birt­ust á list­anum yfir stærstu hlut­hafa hans sam­tals 42,24 pró­sent í Arion banka. Eign­ar­hlutur þeirra í bank­anum, miðað við breyt­ingar á sýndum hlut­haf­alista yfir stærstu eig­endur, hefur því minnkað um alls um rúm­lega 29 pró­sentu­stig á rúmum fimm mán­uðum. Það sem gerir þessa stöðu athygl­is­verða er að á tíma­bil­inu hefur hluta­bréfa­verð í Arion banka hækkað mikið, eða um rúm­lega 58 pró­sent, og mark­aðsvirði bank­ans er nú meira en eigið fé hans, eða tæp­lega 209 millj­arðar króna.

Arion banki til­kynnti auk þess nýverið að bank­inn ætl­aði sér að kaupa eigin bréf af hlut­höfum fyrir 15 millj­arða króna á þessu ári og greiða þeim allt að þrjá millj­arða króna í arð. Til við­bótar kom fram í árs­upp­gjöri Arion banka að hann ætl­aði sér að greiða út á sjötta tug millj­arða króna alls af eigin fé sínu á næstu árum, þar sem ógjörn­ingur væri að ávaxta það og því væri betra að skila því til hlut­hafa. Þannig væri einnig hægt að ná betri arð­semi á eigin fé bank­ans, sem er vin­sæll mæli­kvarði á árangur í fjár­mála­heim­inum, með því að tappa því ein­fald­lega af og í vasa hlut­hafa.

Erlendu sjóð­irnir komu inn í eig­enda­hóp Arion banka í aðdrag­anda þess að bank­inn var skráður á markað 2018. Þeir höfðu áður verið ráð­andi í kröfu­hafa­hópi Kaup­þings, und­an­fara Arion banka sem var stærsti eig­andi hans árum saman. Þeir virð­ast ekki sjá tæki­færi í miklum hækk­unum á hluta­bréfa­verði Arion banka og áformum um að greiða út tugi millj­arða króna til hlut­hafa á næstu árum. Þess í stað hafa þeir selt um tvo þriðju af eign sinni í bank­anum á nokkrum mán­uðum. Salan hefur verið sér­stak­lega hröð síð­ast­lið­inn mánuð.

Stærstu vogunarsjóðirnir selja hratt og fara

Vog­un­ar­sjóð­irnir Taconic Capital Advisors og Sculptor Capital Mana­gement voru lengi vel stærstu ein­stöku eig­endur Arion banka. Í haust átti Taconic 23,22 pró­sent í Arion banka en hefur selt sig niður í 10,71 pró­sent eign­ar­hlut. Sculptor átti 9,92 pró­sent hlut í Arion banka í lok sept­em­ber en er nú ekki lengur á meðal 20 stærstu hlut­hafa bank­ans og á því ein­hver­staðar á bil­inu 0 til eitt pró­sent í bank­anum eins og er.

Fleiri erlendir fjár­festar, sem komu inn í hlut­hafa­hóp Arion banka vegna þess að þeir voru kröfu­hafar í Kaup­þingi, hafa verið að lækka stöður sínar hratt. Þannig átti Goldman Sachs International 2,97 pró­sent hlut í bank­anum í lok sept­em­ber en er ekki lengur á meðal 20 stærstu hlut­hafa hans.

Sömu sögu er að segja af vog­un­ar­sjóð­unum Eaton Vance og Landsdowne partners. Sá fyrr­nefndi átti 2,6 pró­sent í Arion banka fyrir fimm mán­uðum síðan en á nú 1,33 pró­sent. Hlutur hans hefur því nán­ast helm­ing­ast á skömmum tíma. Landsdowne átti 2,39 pró­sent hlut í Arion banka í lok sept­em­ber en er ekki lengur á meðal 20 stærstu hlut­hafa bank­ans, og á því undir eitt pró­sent í bank­anum.

Auk þeirra var breski sjóð­ur­inn Attestor Capital, á meðal ráð­andi hlut­hafa í Arion banka fyrir nokkrum árum, en hann seldi sig hratt niður í bank­anum árið 2019.

Lífeyrissjóðir stærstir á kaupendahliðinni

Íslenskir líf­eyr­is­sjóðir hafa tekið við leið­andi hlut­verki í eig­enda­hópi Arion banka. Í lok sept­em­ber voru sjö slíkir á meðal 20 stærstu hlut­hafa bank­ans og áttu sam­tals 29,17 pró­sent í honum. Nú eru ell­efu líf­eyr­is­sjóðir á meðal 20 stærstu hlut­hafa Arion banka og sam­an­lagt eiga þeir um 41 pró­sent eign­ar­hlut í honum. Þeir hafa því bætt við sig tæpum tólf pró­sentu­stigum á fimm mán­uðum. Mark­aðsvirði þess eign­ar­hluts er nú um 85,5 millj­arðar króna.

Þrír stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins: Gildi (9,61 pró­sent), Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna (8,45 pró­sent) og Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins (7,86 pró­sent) draga þar vagn­inn líkt og í flestum skráðum félögum á Íslandi.

Fleiri líf­eyr­is­sjóðir: Stapi, Birta, Frjálsi líf­eyr­is­sjóð­ur­inn, Líf­eyr­is­sjóður Vest­manna­eyja, Brú, Almenni líf­eyr­is­sjóð­ur­inn, Festa og Lífsverk hafa allir líka bætt við sig í Arion banka á síð­ustu mán­uðum.

Fyrir liggur þó að íslenskir líf­eyr­is­sjóðir hafa ekki keypt öll bréfin sem erlendu vog­un­ar­sjóð­irnir hafa verið að selja að und­an­förnu, að minnsta kosti með beinum hætti.

Þorri þess sem út af stendur hefur verið keypt af sjóð- og eigna­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækjum banka eða ein­fald­lega í nafni ann­arra banka. Auk þess er trygg­inga­fé­lagið Sjóvá komið á lista yfir 20 stærstu hlut­hafa Arion banka.

Góð arð­semi í fyrra

Rekstur Arion banka gekk vel í fyrra. Hagn­aður bank­ans nam 12,5 millj­örðum króna og hann náði því mark­miði sínu á síð­asta árs­fjórð­ungi að vera með arð­semi á eigin fé sitt yfir tíu pró­sent­um, en hún var alls 11,8 pró­sent á síð­ustu þremur mán­uðum síð­asta árs.

Heildar eigið fé nam 198 millj­­örðum króna í árs­­lok 2020, sem er átta millj­­örðum krónum hærra en það var í árs­­lok 2019. Að með­­­töldum arð­greiðslum og þeim fjár­­hæðum sem nýttar verða í kaup á eigin bréfum jókst eig­in­fjár­­grunnur sam­­stæð­unnar því um 28 millj­­arða króna frá árs­lokum 2019.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár