Mynd: Bára Huld Beck

Skýrsla um „ruslakistu Seðlabankans“ sem átti að koma út 2018 hefur enn ekki verið skrifuð

Eftir banka­hrunið var eignum sem féllu Seðla­bank­anum í skaut, og voru mörg hund­ruð millj­arða króna virði, safnað saman í sér­stakt félag, Eigna­safn Seðla­banka Íslands. Þaðan voru þær svo seldar með ógagn­sæjum hætti.

Skýrsla sem Seðla­banki Íslands átti að vinna um Eigna­safn Seðla­banka Íslands (ESÍ), og átti að skila til banka­ráðs hans fyrir árs­lok 2018, er enn ekki komin út. Skýrslan átti að varpa heild­ar­mynd á starf­semi ESÍ og dótt­ur­fé­laga þess og taka átti saman hvert end­an­legt tjón bank­ans verður af veð­lána­starf­semi hans.

Í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans um afdrif skýrsl­unnar, sem barst á þriðju­dag, sagði upp­lýs­inga­full­trúi Seðla­bank­ans ástæð­una fyrir því að skýrslan væri ekki komin út vera „miklar annir við önnur verk­efni“. Hann gat á þess­ari stundu ekki gefið svar um vænt­an­legan útgáfu­dag.

Þegar Við­skipta­blaðið leit­aði eftir upp­lýs­ingum um hvenær skýrslan ætti að koma út fyrir tæpum tveimur árum feng­ust þau svör að við­brögð við heims­far­aldr­inum hefðu valdið því að hlé hafi orðið á skýrslu­gerð­inni. Nokkurra mán­aða vinna væri eftir við gerð hennar.

„Stærsti ókosturinn er hætta á spillingu“

ESÍ, sem oft var kallað „rusla­kista Seðla­bank­ans“ starf­aði frá 2009 og út árið 2017. Inn í félagið var safnað eignum sem féllu Seðla­bank­anum í skaut vegna falls fjár­mála­kerf­is­ins. Um allskyns eignir var að ræða, verð­bréf, mörg hund­ruð fast­eignir og ýmis­legt annað. Á starfs­tíma sínum starf­rækti ESÍ svo tvö dótt­ur­fé­lög, ann­ars vega Sölvhól sem hafði það hlut­verk að selja eign­irnar, og hins vegar Hildu, sem ESÍ fékk í fangið árið 2011.

Umfang eigna og krafna sem ESÍ hélt á eftir hrunið var 490 millj­arðar króna sam­kvæmt svari þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, Bjarna Bene­dikts­sonar, við fyr­ir­spurn á þingi í sept­em­ber 2017.

Slita­ferli félags­ins, og dótt­ur­fé­laga þess, hófst árið 2017 og lauk end­an­lega 2019.

Margir höfðu enda varað við því að ríkið setti upp eigna­sölu­fé­lög. Það gerðu meðal ann­ars hag­fræð­ing­arnir Gauti B. Egg­erts­son og Jón Steins­son í grein sem birt­ist í Morg­un­blað­inu í mars 2009. Þar sagði meðal ann­ars: „Það eru ýmsir ókostir á eigna­sölu­fé­lögum í eigu rík­is­ins. Stærsti ókost­ur­inn er hætta á spill­ingu. Reynslan hefur kennt Íslend­ingum – og raunar öðrum þjóðum – að þegar ríkið selur eignir er mikil hætta á því að umsjón­ar­menn sölu­ferl­is­ins selji vinum, ætt­ingjum eða jafn­vel sjálfum sér verð­mætar eignir á und­ir­verði.“

Undanþága frá því að upplýsa almenning

Fjöl­miðlar hafa árum saman reynt að fá upp­lýs­ingar um hvaða eignir voru settar inn í ESÍ, hvernig þær voru seldar og hverjir fengu að kaupa þær. Þeim hefur öllum verið hafnað á grund­velli þagn­ar­skyldu­á­kvæðis laga um Seðla­banka Íslands og þeirrar und­an­þágu frá upp­lýs­inga­lögum sem ESÍ naut. Sú und­an­þága rann út í des­em­ber 2018.

Í síð­ustu viku lagði Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið sjálf­stætt mat á þær rök­semdir sem settar hafa verið fram fyrir því að listi yfir kaup­endur á 22,5 pró­senta hlut rík­is­ins í Íslands­banka falli undir banka­leynd. Í til­kynn­ingu á vef stjórn­ar­ráðs­ins stóð: „Að mati ráðu­neyt­is­ins falla upp­lýs­ingar um við­skipti á milli rík­is­sjóðs og fjár­festa ekki undir banka­leynd og með hlið­sjón af mik­il­vægi þess að gagn­sæi ríki um ráð­stöfun opin­berra hags­muna hefur ráð­herra ákveðið að birta yfir­litið.“

Í ljósi þess að mik­il­vægt væri að gagn­sæi ríki um ráð­stöfun þeirra opin­beru hags­muna sem fór fram í gegnum ESÍ óskaði Kjarninn etir því að for­sæt­is­ráðu­neytið, sem Seðla­banki Íslands heyrir undir, myndi leggja sjálf­stætt mat á þær rök­semdir sem settar hafa verið fram um þagn­ar­skyldu og banka­leynd hvað varðar starf­semi ESÍ. Yrði nið­ur­staða þess mats sú sama og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra komst að varð­andi list­ann yfir kaup­endur á hlut í Íslands­banka er þess óskað að, fá lista yfir allar eignir sem settar voru inn í ESÍ, fá yfir­lit yfir sölu þeirra eigna; hvenær þær voru seldar, á hvaða verði, hverjir voru milli­liðir og fá yfir­lit yfir kaup­endur allra þeirra eigna sem seldar voru út úr ESÍ.

Sigurður Ingi Jóhannsson, þá í stjórnarandstöðu, spurði Bjarna Benediktsson, þá forsætisráðherra, ítarlega út í starfsemi ESÍ á Alþingi árið 2017.
Sigurður Ingi Jóhanns­son, þá í stjórn­ar­and­stöðu, spurði Bjarna Bene­dikts­son, þá for­sæt­is­ráð­herra, ítar­lega út í starf­semi ESÍ á Alþingi árið 2017.

Fyr­ir­spurn­inni, sem send var á mánu­dag, hefur enn ekki verið svarað.

Sigurður Ingi spyr Bjarna

Skrif­lega fyr­ir­spurnin á Alþingi sem minnst var á hér að ofan, og beint var til Bjarna Bene­dikts­sonar, á for­sæt­is­ráð­herra, í tíð rík­is­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar, var lögð fram af manni sem Bjarni þekkir ágæt­lega og hefur starfað meira og minna með síð­ast­lið­inn tæpa ára­tug, Sigurði Inga Jóhanns­syni. Hann hafði verið ráð­herra í rík­is­stjórn­inni sem sat 2013 til 2016 og end­aði það kjör­tíma­bil sem for­sæt­is­ráð­herra, eftir að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son þurfti að segja af sér.

Hann svo starfað í rík­is­stjórn­ar­sam­starfi með Bjarna síðan 2017. Fyr­ir­spurnin, sem var ítar­leg og bar öll þess merki að fyr­ir­spyrj­and­inn þekkti vel til mála, var lögð fram á þeim nokkrum mán­uðum á árinu 2017 sem Sigurður sat í stjórn­ar­and­stöðu.

  1. Hversu margar eign­ir/­kröfur hefur Seðla­banki Íslands selt, beint eða í gegnum dótt­ur­fé­lög, svo sem ESÍ, frá því að honum var falin umsjón þeirra eftir banka­hrunið árið 2008, hvert var sölu­and­virðið í heild og sund­ur­liðað eftir árum, hverjir keyptu og á hvaða kjörum, sund­ur­liðað ár fyrir ár?
  2. Í hvaða til­vikum var lánað fyrir kaup­un­um, við hversu hátt láns­hlut­fall var mið­að, hvaða skil­yrði voru sett um trygg­ingar fyrir greiðslu kaup­verðs, hver var stefnan um vaxta­kjör, var í ein­hverjum til­vikum vikið frá henni og ef svo er, hvers vegna?
  3. Hefur Seðla­bank­inn, beint eða í gegnum dótt­ur­fé­lög, keypt eign­ir/­kröfur eða fengið fram­seldar með öðrum hætti, svo sem í skiptum fyrir aðrar eign­ir/­kröf­ur, frá banka­hruni, hvaða eign­ir/­kröfur voru það, sund­ur­liðað ár fyrir ár, voru þær skráðar á mark­aði, hvaða ástæður voru fyrir kaup­unum og á hvaða laga­heim­ild byggði Seðla­bank­inn eða dótt­ur­fé­lög kaup­in?
  4. Hafa eign­ir/­kröfur verið seldar aftur og ef svo er, hver er mun­ur­inn á kaup- og sölu­verði, hverjir voru kaup­endur og selj­endur í þeim við­skiptum og hefur Seðla­bank­inn eða dótt­ur­fé­lög fengið fram­seldar til sín eignir sem rýrnað hafa í verði eða jafn­vel tap­ast frá því að þeirra var aflað?
  5. Fyrir hvaða sér­fræði­þjón­ustu, hverjum og hve mik­ið, hefur Seðla­banki Íslands, beint eða í gegnum dótt­ur­fé­lög, greitt vegna sölu á eign­um/­kröfum frá og með árinu 2013 til dags­ins í dag, var þjón­ustan aug­lýst og/eða boðin út, hvernig var staðið að ráðn­ingu á þjón­ustu­að­il­um, hver voru sjón­ar­mið til grund­vallar ráðn­ingum og hvernig skipt­ust greiðslur milli aðila?
  6. Var sala á eign­ar­hlut­u­m/­kröfum Seðla­banka Íslands eða dótt­ur­fé­laga bank­ans ávallt aug­lýst, hvernig var staðið að útboð­i/­sölu í þeim til­vik­um, við hvaða reglur var mið­að, voru við­miðin sam­bæri­leg í öllum til­vikum og ef ekki, hvers vegna?

Bjarni svar­aði fyr­ir­spurn Sig­urðar Inga með ítar­legu svari, en þó var ekki svarað efn­is­lega og sér­tækt, þeim atriðum sem spurt var út í. Í svar­inu var vísað til þagn­ar­skyldu Seðla­bank­ans um verk­efni ESÍ og að bank­inn myndi skila af sér skýrslu um ESÍ og starf­semi þess, þegar vinnu við slit væri lok­ið.

Sú skýrsla er, líkt og áður segir, enn ekki komin fram í dags­ljósið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Seðlabanki

Mest lesið undanfarið ár