Hagstofan býst við að hagvöxtur verði enn kröftugri en spáð var í lok vetrar

Hagstofan býst við því að hagvöxtur verði 5,1 prósent á árinu og 2,9 prósent á næsta ári, samkvæmt nýrri þjóð­hagsspá. Búist er við því að um 1,6 milljónir ferða­manna sæki landið heim í ár, en fyrri spá gerði ráð fyrir 1,4 milljónum ferða­manna.

Hagstofa Íslands segir að horfur séu á því að hagvöxtur verði 5,1 prósent í ár og 2,9 prósent á næsta ári, samkvæmt nýrri þjóð­hagsspá sem birt var í dag.

Þetta er öllu kröftugri hagvöxtur en stofnunin gerði ráð fyrir í síðustu þjóð­hagsspá sinni, sem sett var fram undir lok mars. Þá var búist við 4,6 prósenta hagvexti á þessu ári og 2,7 prósenta hagsvexti árið 2023.

Ferðamenn hafa verið fleiri það sem af er ári en búist hafði verið við og nú er búist við því að um 1,6 milljón ferða­manna sæki landið heim í ár, en fyrri spá frá því í mars gerði ráð fyrir því að fjöldi þeirra yrði um 1,4 milljónir.

Í þjóð­hagsspánni segir að innlend eftir­spurn hafi reynst kröftug það sem af er ári, en óvissa um verðbólgu­horfur innanlands og erlendis hafi aukist. Verðbólgu­horfur eru nú talsvert verri en þær voru í síðustu útgáfu þjóð­hagsspár. Þá var gengið út frá því að verð­bólgan yrði að meðaltali 5,9 prósent á árinu og myndi hjaðna niður í 3,5 prósent á næsta ári.

Nú er gert hins vegar gert ráð fyrir því að verðbólga verði 7,5 prósent að meðaltali í ár, 4,9 prósent árið 2023 og 3,3 prósent árið 2024. Eftir það er gert ráð fyrir því að verð­bólgan nálgist 2,5 prósenta verðbólgu­markmið Seðla­bankans.

Vöru- og þjónustu­jöfnuður var neikvæður um sem nemur 3 prósentum af vergri lands­framleiðslu á fyrsta ársfjórðungi og segir Hagstofan nú horfur á neikvæðum afgangi á árinu sem nemur 1,2 prósentum af vergri lands­framleiðslu.

Í fyrri þjóð­hagsspá var gert ráð fyrir 0,1 prósent afgangi og segir stofnunin muninn að miklu leyti stafa af verri viðskipta­kjörum en áður var gert ráð fyrir.

Hagstofan segir spennu á vinnu­markaði hafa aukist með auknum efnahags­umsvifum, að spurn eftir starfs­fólki sé mikil og býst stofnunin við að atvinnu­leysi verði áfram lágt næstu árin, eða á bilinu 3,7-3,8 prósent að meðaltali út árið 2024.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár