Eldingar í kortunum í kjölfar ofsaveðurs

Vindhraði fór yfir 70 metra á sekúndu í hviðum í morgun. Ofsa­veðrið er nú gengið niður en Veður­stofan varar við eldinga­veðri í fram­haldinu.

Myndin sýnir vindhraða á landinu um klukkan 9 í morgun.
Myndin sýnir vind­hraða á land­inu um klukkan 9 í morgun. Mynd: Skjáskot Veðurstofa Íslands

Rauð viðvörun: Víðtækar lokanir á vegum. Rafmagns- og vatns­leysi og íbúar beðnir að spara rafmagn. Mann­lausar götur, skóla­haldi aflýst og tómar hillur verslana. Ofsa­veðrið sem hóf að ganga yfir landið snemma í morgun, þar sem vindhraði fór í miklar hæðir og úrkoma sömuleiðis, hefur haft marg­víslegar afleiðingar. Engin alvarleg slys hafa þó orðið á fólki en einhverjir vegfarendur þurftu að leita skjóls í fjölda­hjálpar­miðstöð á Vík.

Vindhraði mældist 71 metri á sekúndu í hviðu við Hafnar­fjall um klukkan 10 í morgun. Það er með því mesta sem mælst hefur hér á landi. Mjög hvasst var í Vestmanna­eyjum og fór meðal­vindur upp í 45 m/s og í 58 m/s í hviðum.

En það var ekki aðeins vindurinn sem var óvenju­legur heldur líka úrkoman. Samkvæmt óyfirförnum frum­niðurstöðum mæla Veður­stofunnar var úrkoman mest í Vestmanna­eyjum, 68,7 mm. Mikill munur var á hæsta og lægsta hita á landinu í morgun. 6,6°C voru undir Hafnar­fjalli á sama tíma og tæplega tuttugu stiga frost mældist í Köldukinn.

Veður­stofan, almanna­varnir, Vega­gerðin og lögreglu­embætti höfðu ítrekað varað við veðrinu og svo virðist sem almenningur hafi hlustað á þau varnaarorð. Veður­spáin gekk eftir og rauð viðvörun var í gildi á höfuð­borgar­svæðinu, Suður­landi, Suðaustur­landi og í Faxaflóa. Þetta er í annað sinn frá því að lita­kerfið var tekið upp sem Veður­stofan gefur út rauða viðvörun. Það gerðist í fyrsta sinn í óveðrinu í desember.

Til frekari glöggvunar eru hér nokkrar skilgreiningar Veður­stofunnar:

Rauð viðvörun: Miklar líkur eru á veðri sem hefur mjög mikil samfélagsleg áhrif, eða slíkt veður er yfir­standandi. Einstak­lega áköfum og hættu­legum veður­skilyrðum er spáð. Búast má við miklum skemmdum og líkur á slysum eru miklar, ógn við líf og limi. Viðbúið er að samgöngur leggist með öllu af og aðgengi að innviðum/þjónustu verði skert.

Á Suður­landi var í morgun varað við ofsaveðri og „jafnvel fárviðri“. En hver er munurinn á þessu tvennu?

Ofsaveður: Ofsaveður er skilgreining á vindhraða líkt og fram kemur í grein Trausta Jónssonar veður­fræðings. Ofsaveður er það kallað þegar vind­hraðinn nær 28,5-32,6 m/​​​s. Við svo mikinn vindhraða eru áhrifin þau að miklar skemmdir verða á mann­virkjum og útivera á bersvæðum verður hættuleg. Vindur­inn rýfur hjarn og lyftir möl og grjóti.

Fárviðri: Í fárviðri fer meðal­hraði vindhviða yfir 32,7 metra á sekúndu. Allt lauslegt fýkur, þar á meðal möl og jafnvel stórir steinar, segir á vef Veður­stofu Íslands. „Kyrr­stæðir bílar geta oltið eða fokið. Heil þök tekur af húsum. Skyggni oftast takmarkað, jafnvel í þurru veðri.“

Afleiðingar veðursins hafa í stórum dráttum verið eftir­farandi:

Snjóflóð féll á veginn við Laufás rétt fyrir hádegið og er vegurinn lokaður. Hætta getur verið á fleiri flóðum á Greni­víkurvegi og eru íbúar beðnir að vera ekki á ferðinni. Ekki verður átt við mokstur fyrr en veðri slotar og talið er öruggt, segir í tilkynningu frá lögreglunni á Norður­landi.

Töluvert hefur verið um rafmagns­truflanir. Landsnet er með stöðuga vöktun á flutnings­kerfi sínu og greinir jafnóðum frá bilunum og viðgerðum á samfélags­miðlum. Rarik gefur einnig út samantekt á truflunum í dreifi­kerfi sínu reglulega og klukkan 11 í morgun var staðan eftir­farandi:

Vestur­land: Norður­hluti Hval­fjarðar og Svína­dalur rafmagns­laus. Mikil selta er á svæðinu.

Suðurland: Truflanir á tólf stöðum. Rafmagns­laust á bæjum undir Eyja­fjöllum og í Vík og í Mýrdal. Rafmagn skammtað í Vík og íbúar beðnir um að fara sparlega með það. Rafmagns­laust í uppsveitum Árnes­sýslu og við Þingvalla­vatn frá Miðfelli að Mjóanesi. Þá er rafmagns­laust í Holtum, Landsveit og upp með Heklu­bæjum. Einnig er rafmagns­laust í Landeyjum og 27 staurar brotnir. Línan milli Kirkjubæjar­klausturs og Víkur er úti og þar með er rafmagns­laust í Álftaveri, Meðal­landi og hluta Skaftár­tungna.

Aðstæður á Suður­landi voru farnar að skána fyrir klukkan ellefu í morgun og vinnu­flokkar voru farnir af stað í Árnes­sýslu. „Þessu til viðbótar er eldinga­veður að koma yfir landið og það getur bæði valdið truflunum, en einnig getur þetta tafið fyrir truflana­leit og viðgerðum.“

Austur­land: Sveitar­félagið Horna­fjörður rafmagns­laust, þ.m.t. Höfn, vegna truflunar í flutnings­kerfinu. Einnig er bilun í dreifi­kerfinu. Eldingar hafa verið á svæðinu.

Heita­vatnslaust varð í Rangár­þingi, þar með talið Hellu og á Hvols­velli og í Ásahreppi vegna rafmagns­leysis hjá Rarik.

Þjóðvegir frá höfuð­borginni voru allir lokaðir um tíma í morgun en hafa svo verið opnaðir fyrir umferð einn af öðrum.

Björgunar­sveitir og lögregla hafa sinnt fjölmörgum verkefnum í morgun. Í Vestmanna­eyjum, þar sem vindhraði fór mest upp í 44 m/s, bárust viðbragðs­aðilum 25 tilkynningar, m.a. vegna foktjóns. Þá sökk bátur í höfninni.

Þá flæddi sjór á land í Reykja­nesbæ og Garði eins og sjá má á mynd­skeiði Víkur­frétta hér að neðan.

Þó að veðrið hafi gengið nokkuð niður víðast hvar ber enn að hafa gætur á veðurspám. Sú nýjasta er þessi:

Snýst í sunnan hvassviðri með deginum, fyrst syðst, en áfram rok og ofankoma um landið norðan­vert fram á kvöld. Lægir talsvert á landinu í kvöld og nótt og styttir upp.

Gengur í austan og norðaustan 13-20 m/s á morgun, en 20-25 um tíma syðst á landinu. Rigning eða slydda um landið sunnan- og austan­vert, en snjókoma á Vestfjörðum. Þurrt á Norður- og Vestur­landi framan af degi, en dálítil úrkoma þar seinni­partinn. Hiti 0 til 7 stig, hlýjast syðst.

Fjöldi eldinga hafa mælst handan skilanna og á Suðaustur­landi eru líkur á að það verði vart við eldingar þegar að skilin ganga yfir. Veður­stofan varar einnig við eldinga­veðri á Suður­landi í dag og á morgun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár