Ýmsir kostir á borðinu varðandi fjármögnun og rekstur „Þjóðarhallar“

Horft er til þess að byggja nýja 19 þús­und fer­metra íþrótta­höll sem tekur 8.600 manns í sæti á íþrótta­við­burðum og allt að 12 þús­und gesti á við­burðum á borð við tón­leika, við hlið gömlu Laug­ar­dals­hall­ar­innar.

Kostn­að­ar­á­ætlun gerir ráð fyrir að verk­efnið komi til með að kosta 15 millj­arða króna, en sam­tal rík­is­ins og Reykja­vík­ur­borgar um það hvernig nýja höllin skuli fjár­mögnuð og rekin er ekki enn útkljáð.

Þetta má lesa í nýrri skýrslu, svo­kall­aðri frum­at­hugun fram­kvæmda­nefndar um nýju höll­ina, sem birt var í dag.  

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra, Ásmundur Einar Daðason félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra og Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri Reykja­víkur kynntu áformin á blaða­manna­fundi og á þeim var að heyra að ein­hugur væri um að koma verk­efn­inu hratt til fram­kvæmda.

Áætlanir gera ráð fyrir að fram­kvæmdir hefj­ist í upp­hafi árs 2024 og verk­lok verði haustið 2025.

Verk­efnið, sem stjórn­mála­menn hafa kallað „Þjóð­ar­höll“ hefur verið lengi til umræðu, en fram­kvæmda­nefndin sem unnið hefur frum­at­hug­un­ina sem kynnt er í dag var skipuð í sumar, í kjöl­far vilja­yf­ir­lýs­ingar rík­is­ins og borg­ar­innar um bygg­ingu hall­ar­innar sem und­ir­rituð var nokkrum dögum fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar í maí í fyrra.

TímalínaSvona sér fram­kvæmda­nefndin fyrir sér að verk­efnið gæti gengið fyrir sig, ef allt gengur eins hratt og mögu­legt er.

Gert er ráð fyrir því að Þjóð­ar­höllin verði sunnan Laug­ar­dals­hall­ar­innar, þétt upp við Suð­ur­lands­braut­ina og að göngu­brú tengi and­dyri hall­ar­innar við stoppi­stöð almenn­ings­sam­gangna á Suð­ur­lands­braut­inni.

Vinna við deiliskipu­lag svæð­is­ins er þegar hafin og gengið er út frá því að það verði stað­fest í upp­hafi mars­mán­aðar og þá verði hægt að ráð­ast í hönn­unar­út­boð vegna verk­efn­is­ins.

Framkvæmdanefnd mælir með því að rekstur verði allur á sömu hendi

FormaðurGunnar Ein­ars­son fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri í Garðabæ er for­maður fram­kvæmda­nefndar um nýju Þjóð­ar­höll­ina, sem skipuð var í ágúst­mán­uði.

Sem áður segir er ekki búið að útkljá hvernig nýja höllin verður fjár­mögnuð og svo rekin í fram­hald­inu, en áætl­aður rekstrar- og við­halds­kostn­aður húss­ins á árs­grund­velli er met­inn um 300 millj­ónir króna í athugun fram­kvæmda­nefnd­ar­innar.

Í dag er rekstur gömlu Laug­ar­dals­hall­ar­innar og nýju frjáls­í­þrótta­hall­ar­innar í höndum félags­ins Íþrótta- og sýn­inga­höllin ehf. (ÍSH), sem er í helm­ing­seigu Reykja­vík­ur­borgar og helm­ing­seigu Samtaka iðn­að­ar­ins, og telur fram­kvæmda­nefndin ríkis og borgar „skyn­sam­legt“ að mæla með því að félagið taki einnig að sér rekstur nýju hall­ar­innar.  

Einnig eru þó settar fram tvær sviðs­myndir til við­bótar. 

Önnur þeirra er sú að ríki og borg stofni hluta­fé­lagið Þjóð­ar­höll ehf. til að halda utan um hags­muni hall­ar­innar, en þó að samið yrði við ÍSH um að sjá um grunn­þætti í dag­legum rekstri. 

Þriðja og síð­asta svið­myndin er svo sú að Reykja­vík­ur­borg taki að sér rekstur nýju hall­ar­innar í sam­vinnu við, eða óháð, ÍSH, sem rekur Laug­ar­dals­höll­ina og frjáls­í­þrótta­höll­ina í dag. 

Ýmsir kostir um fjármögnun settir fram

Fram­kvæmda­nefndin setur í skýrslu sinni fram þrjár sviðs­myndir um mögu­lega fjár­mögnun nýju hall­ar­innar. 

Í fyrsta lagi að ríki og borg fjár­magni bygg­ingu hall­ar­innar í sam­ein­ingu og komi sér saman um hvernig skuli skipta kostn­að­inum sín á milli og nefnir nefndin nokkrar til­lögur að mögu­legri kostn­að­ar­skipt­ingu milli ríkis og borgar.

Ein lausn, sem feit­letruð er til áherslu­auka í skýrsl­unni, er sú að borgin greiði 4-5 millj­arða króna, sem sögð er sú upp­hæð sem borgin þyrfti hvort sem er að greiða til þess að upp­fylla þá tíma­þörf sem er til staðar hjá íþrótta­fé­lög­unum í Laug­ar­dal. 

Í annan stað segir fram­kvæmda­nefndin að ríkið og borgin gætu gert sam­komu­lag við ÍSH um að auka hlutafé félags­ins, veitt því stofn­fjár­magn, og það félag geti svo fjár­magnað fram­kvæmd­ina með lánum eftir því sem líði á verk­efnið.

Í umfjöllun fram­kvæmda­nefnd­ar­innar um þessa sviðs­mynd segir að reynslan af rekstri Laug­ar­dals­hallar og frjáls­í­þrótta­hallar sam­kvæmt samn­ingi ÍSH við Reykja­vík­ur­borg hafi verið góð, en komið hafi fram óánægja vegna þess að íþrótta­æf­ingar falli niður vegna við­burða í núver­andi mann­virkjum.

„Fram­kvæmda­nefndin og ÍBR ásamt fleirum leggja áherslu á auk­inn fyr­ir­sjá­an­leika varð­andi skipu­lagn­ingu æfinga fram í tím­ann,“ segir um þetta í skýrsl­unni.

Í þriðja lagi segir fram­kvæmda­nefndin svo að hægt væri að ráð­ast í alút­boð á verk­efn­inu, þannig að fjár­mögnun, hönnun og fram­kvæmd yrði boðin út og þriðji aðili myndi þannig koma að verk­efn­inu með veru­legum hætti. Þessi kostur myndi, sam­kvæmt mati fram­kvæmda­nefnd­ar­innar, lík­lega lengja fram­kvæmda­tím­ann og leiða til óvissu um útfærslu fram­kvæmdar og rekstrar í fram­tíð­inni, auk þess sem ríki og borg myndu hafa minni áhrif á end­an­lega nið­ur­stöðu. 

Fram­kvæmda­nefndin segir mik­il­vægt að ríki og borg taki afstöðu sem fyrst til þess­ara hug­mynda um kostn­að­ar­skipt­ingu vegna fram­kvæmd­ar­innar, eða bendi á aðrar útfærslur ef svo ber undir.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GGJ
    Guðl. Gauti Jónsson skrifaði
    Hvernig væri að draga nú djúpt andann og íhuga aðeins hvernig þessi áform fara í væntanlegan eiganda "hallarinnar"? Vera í örlitlu sambandi við þá sem koma til með að greiða fyrir þetta? Útlista þessa draumóra aðeins fyrir væntanlegum notendum? Eða varðar þetta kannske þjóðaröryggi sem krefst leyndar? Eða þarf bara að drífa þetta af fyrir næstu kosningar?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár