Stórfelld svikamylla afhjúpuð

Átján evrópskir fjöl­miðlar hafa undir hafa undir verk­stjórn þýsku rannsóknar­frétta­stofunnar Correctiv afhjúpað einhver mestu skattsvik sögunnar. Nokkrir af stærstu bönkum heims eru flæktir í svika­mylluna.

Nokkrir af stærstu bönkum heims eru viðriðnir einu stærsta fjár- og skattsvika­máli sögunnar. Svikin hafa kostað ríkis­sjóði í minnst ellefu Evrópu­löndum, þar á meðal almenning, þúsund milljarða króna. Nýttar voru ýmsar gloppur í skatta­lögum og lögum um afgreiðslu til að svíkja milljarða undan skatti.

Átján evrópskir fjöl­miðlar, anmarks Radio (DR), Politiken, Le Monde, Reuters, Die Zeit og þýska ríkis­sjónvarpið ARDH hafa undir verk­stjórn þýsku rannsóknar­frétta­stofunnar Correctiv rannsakað gífurlegt gagnamagn um málið síðustu mánuði. Frá þessu er greint á Rúv í dag.

Á ríflega 180.000 blaðsíðum sem fjöl­miðlarnir hafa undir höndum koma nöfn og merki banka á borð við Morgan Stanley, BNP Paribas, Deutsche Bank, J.P.Morgan, Credit Suisse, Commerzbank, Barclays og Bank of America fyrir, aftur og aftur, segir í frétt DR. Í gögnum kemur fram hvernig nýttar hafa verið með glæp­samlegum hætti ýmsar gloppur og smugur í skatta­lögum og lögum um hluta­bréfa­viðskipti og uppgjör og afgreiðslur hluta­félaga.

Með beinni aðkomu banka og hátt­settra yfirmanna náðu fjár­glæfra­mennirnir að svíkja nær 7500 milljarða króna undan skatti í Danmörku, Þýska­landi, Belgíu, Frakk­landi og Ítalíu. Meira en helmingur þessarar upphæðar, um 4.300 milljarðar króna, voru sviknir af almenningi í Þýska­landi en tæplega 2.300 milljarðar af frönsku þjóðinni. Í fréttum DR og Der Spiegel er tekið er fram að mögulegt og jafnvel líklegt sé að þessar tölur séu í raun enn hærri.

Lykil­atriði í stórum hluta þessara brota eru reglur um endur­greiðslur skatta vegna hlutabréfa­kaupa. Í grófustu brotunum, segir í frétt DR, tókst svindlurunum að fá sama skattinn endur­greiddan allt að tíu sinnum. Í vægustu brotunum komu þeir sér einfald­lega undan því að borga þann skatt sem þeir hefðu með réttu átt að greiða. Sem fyrr segir nýttu svika­hrapparnir sér ýmsar smugur í skatta­lögum í hverju landi, en einnig tókst þeim að færa sér í nyt þann mun sem finna má á löggjöfinni landa á milli.

Samkvæmt gögnunum hefur þessi brota­starfsemi verið stunduð frá árinu 2001 hið minnsta og fram til 2016. Lögregla, saksóknara­embætti og skatt­yfirvöld í Þýska­landi hafa þegar hafið formlega sakamála­rannsókn á nokkrum málum sem rannsókn fjöl­miðlanna hefur afhjúpað og meðal annars er fjallað um í þýska frétta­skýringa­þættinum Panorama. Viðbúið er að yfirvöld í hinum löndunum fylgi fordæmi þeirra innan skamms. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár