Grasrótarbylting í Verkamannaflokknum

Jeremy Corbyn hefur lengi verið einn róttækasti vinstri­maðurinn á breska þinginu og fyrir skemmstu hefði sigur hans í formanns­kjöri þótt óhugsandi.

Jeremy Corbyn
Jeremy Corbyn Nýkjör­inn leið­togi Verka­manna­flokks­ins í Bret­landi. Mynd: Wikimedia Commons

„Jeremy Corbyn er vinstri­sinnaðasti leiðtogi Verkamanna­flokksins frá upphafi.“ Þetta fullyrðir Tariq Ali, pakistanskur rithöfundur, blaða­maður og kvikmynda­gerðarmaður í pistli sem birtist í The Independent um helgina eftir að Corbyn sigraði með yfir­burðum í formanns­kjöri breska Verkamanna­flokksins. 

Nýr formaður boðar meðal annars þjóð­nýtingu breska lestar­kerfisins, hærri skatta á stóreigna­fólk, afnám háskóla­gjalda og stór­auknar fjár­festingar hins opinbera á sviði orku- og umhverfis­mála, húsnæðis, samgangna og tækni­þróunar. Hann vill að Bretland biðjist afsökunar á Íraks­stríðinu og er mótfallinn loft­árásum á Sýrland. 

Fyrir nokkrum mánuðum hefði fáa órað fyrir að hinn 66 ára gamli þingmaður ætti eftir að gegna forystu­hlutverki í Verkamanna­flokknum. Fulltrúar hins Nýja Verkamanna­flokks (e. New Labour) sem þrýstu flokknum til hægri undir lok 20. aldar, hömuðust gegn Jeremy Corbyn af mikilli hörku, meðal annars Tony Blair fyrr­verandi forsætis­ráðherra, sem fullyrti að sinn gamli flokkur ætti á hættu að þurrkast út ef Corbyn næði kjöri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár