Drög að Íslandsbankaskýrslunni komin til fjármálaráðuneytisins

Ríkis­endurskoðun hefur sent drög að skýrslu um einka­væðingu Íslands­banka til fjármála- og efnahags­ráðuneytis, Banka­sýslu ríkisins og stjórn stofn­un­ar­innar til umsagnar. Skýrslan átti að vera tilbúin í sumar en hefur dregist trekk í trekk.

Til sölu
Til sölu Restin af hlutum rík­is­ins í Íslands­banka er til sölu á þessu ári, miðað við frum­varp fjár­mála­ráð­herra til fjár­laga. Mynd: Heiða Helgadóttir

Ríkis­endurskoðun hefur sent fjármála- og efnahags­ráðuneyti, Banka­sýslu ríkisins og stjórn hennar drög að skýrslu sinni um einka­væðingu Íslands­banka. Nú hafa þessir aðilar tækifæri til 19. október að skila umsögn um skýrsluna, sem ber heitið „Sala á hlut ríkisins í Íslands­banka 22. mars 2022“. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ríkis­endurskoðun þar sem stofnunin áréttar sérstak­lega að trúnaður gildir um drögin að skýrslunni, sem teljast vinnu­skjal í skilningi laga um ríkis­endur­skoðanda og endur­skoðun ríkis­reikninga. „Um skýrslu­drögin verður því ekki fjallað efnislega í umsagnar­ferlinu, hvorki af hálfu Ríkis­endur­skoðunar né umsagnar­aðila,“ segir í tilkynningunni. 

Beðið hefur verið eftir þessari skýrslu í nokkurn tíma en Bjarni Benediktsson fjármála­ráðherra bað Ríkis­endurskoðun um rannsókn á sölu 22,5 prósenta hlut ríkisins í Íslands­banka sem fram fór í mars á þessu ári. Skýrslan átti að vera tilbúin í júní síðastliðnum en henni hefur síðan ítrekað verið frestað. Umfjöllun Ríkis­endur­skoðunar kom í stað sérstakrar rann­sóknar á …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Nú tekur Bjarni spillti Ben. fram stóra strokleðrið.

    "Auðvitað má ég selja pabba hlut í ríkisbanka, spyrjið bara pabba gamla." :-)

    "Ég bara vissi ekki að pabbi gamli hefði áhuga á því að kaupa hlut í bankanum" :-)
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár