Verðbólgan þokast upp í fyrsta skipti síðan í júlí – mælist nú 9,4 prósent

Verðbólga mælist nú 9,4 prósent á ársgrund­velli eftir að hafa mælst 9,3 prósent í síðasta mánuði.

Verðbólga mælist nú 9,4 prósent.
Verð­bólga mælist nú 9,4 pró­sent. Mynd: Bára Huld Beck

Vísitala neyslu­verðs hækkar um 0,67 prósent frá september­mánuði og mælist tólf mánaða verðbólga á Íslandi því 9,4 prósent, eftir að hafa mælst 9,3 prósent í síðasta mánuði, en þetta kemur fram í tilkynningu frá Hagstofunni í dag.

Þetta er í fyrsta sinn frá því í júlí sem verðbólgu­tölurnar hækka, en þá mældist tólf mánaða hækkun vísitölu neyslu­verðs 9,9 prósent. Síðan þá hefur tólf mánaða verðbólga þokast niður á við.

Samkvæmt tölum Hagstofunnar voru helstu áhrifa­þættir hækkunarinnar á vísitölu neyslu­verðs í október þeir að verð á matvælum hækkaði um 1,6 prósent í mánuðinum. Munaði þar að sögn Hagstofunnar mestu um lambakjöt, sem hækkaði um 16,2 prósent á milli mánaða. Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hækkaði um 0,8 prósent.

Seðla­banki Íslands hefur hækkað stýri­vexti nokkuð skarpt und­an­farið til að reyna að vinna gegn verð­­bólgu. Þeir eru nú komnir í 5,75 pró­­sent en voru 0,75 pró­­sent í maí í fyrra. Í Pen­inga­­málum Seðla­­bank­ans, sem birt voru í ágúst, kom­ fram að bank­inn reikn­aði með því að verð­­bólgan yrði komin í 10,8 pró­­­sent fyrir árs­­­lok.

Síðasta vaxta­hækkun bankans var í upphafi þessa mánaðar, en þá voru stýri­vextir færðir upp um 0,25 prósentu­stig. Í yfir­lýs­ingu Pen­inga­stefnu­nefndar sem þá var birt sagði að vís­bend­ingar væru um að vaxta­hækk­anir und­an­farin miss­eri hefðu hægt á vexti almennrar eft­ir­spurnar og umsvifum á hús­næð­is­mark­aði frá því að nefndin kom síðast saman í ágúst.

„Und­ir­liggj­andi verð­bólga jókst hins vegar milli funda. Þá eru vís­bend­ingar um að verð­bólgu­vænt­ingar séu farnar að lækka á ný þótt þær séu enn yfir verð­bólgu­mark­miði bank­ans,“ sagði í yfir­lýsingu nefndarinnar, sem sagðist áfram ætla að tryggja að taumhald peninga­stefnunnar væri nægjanlegt til að verbólga hjaðnaði í markmið innan ásættanlegs tíma.

„Pen­inga­stefnan mun á næst­unni ráð­ast af þróun efna­hags­um­svifa, verð­bólgu og verð­bólgu­vænt­inga. Ákvarð­anir í atvinnu­lífi, á vinnu­mark­aði og í rík­is­fjár­málum munu skipta miklu um þróun vaxta á næstu miss­er­um,“ sagði nefndin.

Næsta vaxta­ákvörðun bankans er 23. nóvember.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár