„Um fádæma siðleysi að ræða“

Ráð Rótarinnar sendir kærleiks­kveðjur til þolanda Einars: „Við trúum þér og stöndum með þér.“

„Í fáum störfum hefur siðferðis­kennd meira gildi en í störfum fyrir fólk með vímuefna­vanda og jaðarsett fólk,“ segir í yfir­lýsingu sem ráð Rótarinnar - félags um velferð og lífsgæði kvenna, sendi frá sér í dag. Undir yfir­lýsinguna skrifar Kristín I. Páls­dóttir framkvæmda­stjóri fyrir hönd ráðsins. Þar segist ráðið harma þann skaða sem skjólstæðingur SÁÁ hefur lýst að Einar Hermannson hafi valdið henni á árunum 2016 til 2018, á þeim tíma sem hann sat í stjórn SÁÁ. 

„Brot Einars gegn konunni er nöturleg valda­misnotkun stjórnar­manns í frjálsum félaga­samtökum sem stjórn­völd hafa í rúm 40 ár treyst til að sjá um megin­þorra heilbrigðis­þjónustu fyrir fólk með vímuefna­vanda. Í þeim hópi er margt af jaðar­settasta fólki landsins og í ljósi þess valds sem stjórn­völd hafa fært SÁÁ í mála­flokknum er um fádæma siðleysi að ræða sem sannarlega hefur haft áhrif á störf Einars sem formanns, þrátt fyrir yfir­lýsingu hans um hið gagnstæða.“ 

Kaup á vændi fellur undir kynferðis­brota­kafla almennra hegningar­laga og varðar sektir eða eins árs fangelsis­vist. Brotin fyrnast á tveimur árum. 

Skortur á verkferlum

Þá segir í yfir­lýsingunni að það sé rétt að gera kröfur hjá aðilum sem veita heilbrigðis­þjónustu ríki „hvorki ógnar­stjórn né annað ofbeldi og að faglegir ferlar séu til staðar til að taka á slíkum málum.“ Árið 2017 hafi Rótin spurt stjórn­endur SÁÁ um verkferla samtak­anna varðandi kynferðis­lega áreitni og ofbeldi og var því svarað að þeirra væri ekki þörf.

Þetta kom sömuleiðis fram í umfjöllun Stundarinnar um starfsemi SÁÁ árið 2017, Það sem SÁÁ vill ekki tala um, en samkvæmt svörum við fyrir­spurn Stundarinnar voru hvorki til skriflegar verklags­reglur né var það skráð sérstak­lega ef áreitni var beitt í meðferð. 

Í umfjöllunninni var haft eftir Valgerði Rúnars­dóttur, forstjóra sjúkra­hússins á Vogi að ekki væri verið að skipta „ónæðis­málum“ í einhverja flokka, eða skrá þau sérstak­lega. „Það er ekki haldin skrá hjá Landlæknisembættinu um kynferðis­lega áreitni frá okkur eða neinum öðrum stöðum sérstak­lega. Ég veit ekki til þess,“ sagði Valgerður. Ekki liggur fyrir hvort ráðist hafi verið í úrbætur á því síðan. 

Í þeirri umfjöllun kom sömuleiðis fram að skortur á verklags­reglum innan stofnunarinnar hefði einnig verið gagn­rýndur af Land­læknis­embættinu, en ekki eru til skriflegar verklags­reglur fyrir marga þætti starfseminnar, meðal annars varðandi eftirlit með veikasta fólkinu, sem er vistað á gátinni á Vogi. 

Öryggi er lykilorð í vímuefnameðferð

Í yfir­lýsingu Rótarinnar segir að það séu vonbrigði að Embætti land­læknis hafi haft vitneskju um brotið án þess að aðhafast. Líkt og fram hefur komið þá var málið aldrei formlega tilkynnt til Embættis land­læknis og virðist ekki hafa ratað á borð land­læknis, þrátt fyrir að heilbrigðis­starfsmaður hafi leitað til starfs­manns embættisins eftir upplýsingum vegna þess að skjólstæðingur hans greindi honum frá vændis­kaupum Einars. 

Þá segjast Rótar­konur hafa orðið fyrir þöggunar­tilburðum, lítið hafi verið gert úr þeim og illa tekið í hugmyndir félagsins innan SÁÁ. Þar væri lítill áhugi á áfalla- og kynja­miðaðri nálgun sem þær telja nauðsyn­lega í meðferðar­starfsemi. „Öryggi er lykilorð í vímuefna­meðferð og í meðferð fólks með erfiða áfalla­sögu. Því miður hefur þetta öryggi ekki verið skapað í meðferðar­kerfinu, eins og kom glöggt fram í rannsókn Rótarinnar og RIKK á reynslu kvenna af meðferð.“ 

Stundin hefur á síðustu árum fjallað um reynslu kvenna sem hafa farið í meðferð þar sem þær hafa kynnst mönnum sem hafa misnotað sér veikleika þeirra og beitt þær ofbeldi. Eins greindi Stundin frá því árið 2016 að ung stúlka hefði komið barns­hafandi út af bangsa­deildinni svokölluðu, sem er sérgangur fyrir ungmenni á Vogi. Tveimur árum síðar var greint frá því að SÁÁ gæti ekki tryggt öryggi ungmenna undir átján ára aldri og vildi axla ábyrgð á skaða sem börn hafi orðið fyrir í meðferð. 

Hlekkur í langri keðju

Í yfir­lýsingunni segir að Rótin hafi ítrekað vakið athygli á vöntun kvenna á öryggi í meðferð. „Og bent á þann vanda að láta meðferð fólks, sem oft á við fjölþættan og flókinn vanda að etja, vera að mestu í höndum áfengis- og vímuefna­ráðgjafa. Stjórn­völd hafa viðurkennt að menntun þeirra sé ekki í samræmi við önnur störf í heilbrigðis­kerfinu en hefur ekki gripið til aðgerða til að bæta úr því.“

MeToo-byltingin snúist um að breyta samfélaginu til hins bvetra og hafna kerfum sem byggjast á misnoktun valds. „Sá hörmulegi atburður að formaður samtaka, sem stjórn­völd hafa gefið vald yfir fólki með vímuefna­vanda, er ekki óheppileg tilviljun heldur hlekkur í langri keðju. Þessi keðja rofnar ekki nema farið sé í mark­vissar aðgerðir til að uppræta ofbeldis­menninguna.“ 

Að lokum sendir ráð Rótarinnar kærleiks­kveðjur til þolanda Einars. „Við trúum þér og stöndum með þér.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár