Segir málið hafa stöðvast þegar hætt var við kæru

Heilbrigðis­starfsmaður hafði samband við starfs­mann hjá Embætti land­læknis vegna þess að skjól­stæð­ingur hans upplýsti hann um vændis­kaup fráfar­andi formanns SÁÁ.

Heilbrigðis­starfsmaður leitaði til starfs­manns hjá Embætti land­læknis vegna máls er varðar vændis­kaup fráfar­andi formanns SÁÁ, Einars Hermanns­sonar. Í tölvu­pósti frá heilbrigðis­starfs­manninum til konunnar sem um ræðir segist hann hafa talað við landlækni og að málið eigi að fara í ákveðinn farveg þar, líkt og fram kemur á meðfylgjandi skjáskoti af tölvupóst­samskiptum sem gengu á milli heilbrigðsstarfsmannsins og konunnar. 

Tölvu­pósturinn var sendur konunni um það leyti sem Einar Hermannsson var í framboði til formanns SÁÁ en konunni óaði svo við því að hann færi með æðsta vald samtak­anna að hún ætlaði að kæra hann til lögreglu vegna vændis­kaupa. 

„Ég fór ekki lengra með málið“

Starfs­maðurinn hefur staðfest í samtali við Stundina að hafa haft samband við starfs­mann hjá Embætti land­læknis og spurst fyrir um í hvaða farveg slík mál færu hjá embættinu. Hann segir að hann hafi fengið góð svör hjá Embætti land­læknis.

…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár